Stefnir - 01.03.1951, Qupperneq 87
LISTAVERKAFÖLSUN
85
600 fölsuð raálverk. Þar sem þeir
reiknuðu með að eftirspurnin eft-
ir málverkum Millets minnkaði
byrjuðu þeir að eftirlíkja aðra
listamenn eins og t. d. Corot,
Cézanne og Courbet.
1903 komst svo upp um þá,
og þeir voru handteknir. Á þess-
um tíu árum höfðu þeir rakað
saman auðæfum, en eins og svo
margir aðrir höfðu þeir ekki vit
á að hætta, þegar leikurinn stóð
sem hæzt.
Almenningi geta virzt slík
brögð skemmtileg, en fyrir fórn-
ardýrin, sem svikunum verða fyr-
ir, getur það verið mjög örlaga-
ríkt. Vegna Millets falsananna
varð t. d. listmunasali í París
fullkomlega gjaldþrota. Hann
hafði lagt mikinn hluta eigna
sinna í að kaupa 17 málverk af
fölsurunum. Þegar honum barst
fregnin um handtöku þeirra,
greip hann svo mikil örvænting,
að hann kastaði öllum málverk-
unum í Signu.
Lausnir
á skákþrautum í síðasta hefti.
Skákdœmi
eftir Hannes Hafstein.
Hvítt: Kg8, Ha7, Bd4, Bh7. peð b3, c5.
Svart: Kal, Rb2, peð a2, c7.
Mát í 3. leik: 1. Bdl—h8, c7—c6;
2. Ha7—g7, R—eitthvað; 3. Hg7—gl,
íráskák og mát.
Tafllok eftir Reti.
(Mannaupptalning eins og í síðasta
hefti). Hvítur leikur og vinnur. í fljótu
bra'gði mætti virðast, að hvítur ætti
auðveldlega unnið tafl, en þegar nán-
ar er að gætt sést að yfir honum vof-
ir ógnunin Be5 og síðan IIh8+.
1. Kh7—h6! !
f Iívítur að komast úr herkvínni).
1....... Bh2—e5
2. Kh6—g7H Be5—h2
BXD er óþarft vegna gXD. Svartur
lendir í leikþröng og verður að yfir-
gefa hrókinn.
3. c3—c4H b5Xc4
Ekki b4 vegna c5.
4. e4—e5!! Bh2Xe5
5. b3Xc4 Be5 X Dj6
Ekki Bh2 vegna 6. c5, Be5; 7. cXd6
og hvítur vinnur.
6. g5XBj6
Nú er svart í leikþröng. Annað hvort
verður hann að yfirgefa hrókinn eða
leika honum, en hvorttveggja leiðir til
taps; 7. d. 6. —, Hh8. 7. KXH, Kd7;
8. Kg8!, Ke6; 9. Kg7 og hvítur vinn-
ur.
Það skal játað að skákþrautir þess-
ar, sérstaklega tafllokin, eru í þyngra
lagi, svona til að byrja með, en úr
því má bæta, með því að hafa þær
léttari á næstunni.