Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Page 10

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Page 10
1891 8 5. Taugaveiki (febris typlioidea). Skráð tilfelli á árinu voru 56 í 11 héruðum. 3 eru taidir dánir. Landlæknir lætur þess getið, að veikin hafi verið væg og yfirleitt sé taugaveiki mjög væg á Islandi. I. læknishérað. Taugaveiki hefur mér vitanlega ekki komið fyrir nema á Álfta- nesi. Kom hún þar upp á einum bæ og breiddist lítið eitt út, og mun fullsannað, að hún hafi fyrst breiðzt út með mjólk, sem keypt var á þeim bæ, sem veikin var á. Dóu tvær manneskjur, en hinar áttu lengi í veikinni, en batnaði. Það voru gömul kona og ung kona, sem önduðust. Sá ég eigi nema annan sjúklinginn, ungu konuna, og er ég kom til hennar, var hún aðframkomin og dó 2 eða 3 dögum eftir komu mína. II. læknishérað. Taugaveiki hefur ekki komið fyrir umliðið ár, að því er mér er kunnugt. 15. læknishérað. Typhoidfeber kom ekki fyrir nema sporadisk, yfir höfuð að tala væg. 2 tilfelli voru lethal, og kom í öðru tilfellinu pneumonia til. 6. Blóðsótt og iðrakvef (dysenteria, cholerina et catarrhus intestinalis acutus). Blóðsótt er skráð í 5 héruðum, 28 tilfelli, og iðrakvef í 13 héruðum, 444 tilfelli. 3. læknishérað. Af dysenteria komu fyrir 5 tilfelli á sama bæ í ágústmánuði, en í öllum var sóttin væg, og ekki breiddist hún út þaðan. 4. læknishérað. Af iðrakvefi voru 25 tilfelli, sem komu nokkurn veginn jafnt á mánuðina janúar—júlí, en eftir það virðist ekki hafa borið á því. Það er mjög senni- legt, að iðrakvefið og kvefsóttin séu sumpart fylgikvillar inflúenzunnar árið áður. 15. læknishérað. Lítil „cholerine“-epidemi kom upp í nóvember í Reyðarfirði meðal þeirra, sem sýsluðu við síldarveiði. Var um 70 manns hrúgað saman í heldur loftslæmu húsi, bæði Norðmönnum og Færeyingum. Getur veikin ef til vill hafa flutzt með skipi. Samt er þar engin vissa fyrir. 17 fengu veikina, en þá tókst að tak- marka hana svo, að hún greip ekki fleiri og komst ekki á önnur heimili. 7. Barnsfararsótt (febris puerperalis). Veikin er skráð í 3 héruðum, alls 7 tilfelli. 15. læknishérað. 4 tilfelli af febris puerperalis. 3 tilfellin voru væg (metritis et perimetritis). 2 tilfelli orsökuðust líklega af því, að placenta var föst og hefur ef til vill ekki náðst alveg. I 2 tilfellum var fæðing burðarins erfið og sein. í öðru af fyrri tilfellunum, því eina, sem varð nokkuð úr að mun, fannst í annarri viku sængurleg- unnar palpabel tumor í gegnum abdominal-vegginn, svo exsudatið var æðimikið hægra megin. Per vaginam fannst ekkert með vissu, enda var varazt að rannsaka mikið per vaginam svo snemma að ráði Stadfeldts. Lochia voru ekki foetid. Tumor óx fljótt, og þar sem útlit var fyrir, að hann mundi opnast út, var gerð incisio. Tæmd- ist þá mikið af pus út. Síðan var viðhaft drænage og antiseptik eftir megni, enda hefur konan náð svo heilsu eftir 6 vikur, að hún er komin á flakk eða getur setið uppi. I byrjun veikinnar var kuldahrollur, feber og þorsti, temperatur jókst, uterus nokkuð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.