Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Page 13

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Page 13
11 1891 4. Sullaveiki (echinococcosis). Um sullaveiki segir landlæknir m. a.: Ekki er sjáanlegt, að veikin sé enn á veru- legu undanhaldi í landinu. Almenningur virðist þó farinn að átta sig á sambandinu miili taenia echinococcus í hundum og sulla í jórturdýrum. Á stöku stað er tekið að hreinsa hunda með kamala einu sinni á ári. Auk þess virðist hreinlæti á heimilum fara batnandi, og fólk gætir nú meiri varúðar í umgengni við hunda. 1. læknishérað. Sullaveiki, sem hér liggur enn í landi, virðist vera eins algeng og áður. Hér i mínu umdæmi er hún eigi algeng, að minnsta kosti veit ég eigi til, að mikil brögð séu að henni, þótt að sjálfsögðu komi fyrir einstöku tilfelli. Af þeim 8 tilfellum, sem ég hafði, hef ég á umliðnu ári opererað (i, af þeim dóu 2. Hef ég við- haft Recamiers máta við 3, incision 1, punctur 2. Af þeim 3, sem ég brenndi, tókst allt vel, og batnaði þeim. Af þeim, sem ég stakk, dó önnur, eftir að langt var liðið frá ástungunni, og kenndi ég það öðrum sulli, sem ég eigi vissi um, en sýndi sig fyrst við sectio. Hinn sjúklingurinn var 42 ára gömul stúlka, sem alla tíð hafði verið heilsu- litil og bar sull neðan til í lífinu vinstra megin. Reyndi ég þar aspiration, en sökum þess, að svo ógurleg mergð var af sullhúsum, náðust þau eigi út, svo að ég punkteraði með gildum trokar og síðan drain, og náðist þá mjög mikið út, en hún fékk erysi- pelas phlegmonosa, og kom gangraena í holdið kringum drainrörið, svo að hún missti við það mikla krafta. Þótt allt virtist mundu ganga, veslaðist hún upp. Sectio sýndi mjög stóran sull, sem virtist ganga niður frá miltanu. Alls engin peritonitis. Á sjúkl- ingnum, þar sem ég gerði incision, var sullurinn undir vinstri costal-rönd, og var örgrunnt á honum. Gröftur og sullatæjur komu út, og greri allt fljótt. 3. læknishéraö. Með sullaveiki hafa leitað mín 13 sjúklingar, 6 karlkyns, 7 kvenkyns. Hjá tveimur þeirra, þar sem sullirnir virtust ganga út frá lifrinni, hafa þeir horfið, í öðrum þeirra eyðzt, en sprungið út í lífhimnuholið í hinum við byltu, og fékk hann töluverða lífhimnubólgu. Nú hafa þeir báðir fengið góða heilsu. 4. læknishérað. Einn sullaveikissjúlcling brenndi ég á árinu að hætti Recamiers. Þegar komið var með sjúklinginn, sem var kona um fertugt, var hún sárþjáð og illa haldin. Fyllti meinið holið hægra megin niður að inguen og yfir miðlínu nokkuð til vinstri. Fluctuatio var greinileg skammt ofanvert og hægra megin við nafla, alveg upp að costae og processus ensiformis. Brennt var miðra vega milli umbilicus og rifjabogans. Að 6 vikum liðnum var blaðran opnuð. Rann þá út mikið af daunillum grefti, og með honum flutu sullungar. Tveimur döguin síðar dó sjúklingurinn. Sectio sýndi útbreidda samvexti við magálinn á brennslustaðnum, en engan vott um peri- tonitis. Sullblaðra gekk út frá efstu lifrarbrún, náði upp undir þind, sem var þrýst upp til móts við 5. rif, og þrengdi þannig mjög að lunganu. Lifrin var ívið stækkuð og þrýstist niður að mjaðmarspaðanum. Nýru voru stækkuð. Annars var ekkert óeðlilegt. Þessi sjúklingur dó, að mínu áliti, af igerðinni og almennri veiklun, en ekki af aðgerðinni. — Ég var sóttur til sængurkonu einnar, þar sem svo bar til, að Ijós- móðir var fjarri. Var þó ekki talin nauðsyn á læknishjálp, því að fólkið hugði enga hættu á ferðum. Þegar ég kom, hafði sængurkonan, sem var 33 ára gömul fjölbyrja, óvenjustór og þrekleg, legið í 10 tíma með hríðum. Var haldið, að höfuð lægi fyrir,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.