Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Side 24
1892
22
3. Kikhósti (tussis convulsiva).
Kikhósti er talinn á farsóttaskrám úr 3 héruðum, alls 59 tilfelii, þar af 34 í 4.
iæknishéraði.
4. læknishérað. Þótt kikhósti geisaði víðast hvar annars staðar á landinu á
fyrra ári, hefur hann fyrst á þessu ári gengið hér sem faraldur, aðallega á tíma-
bilinu apríl til nóvember, en virðist svo til horfinn nú í árslok. Hefur hann lagzt
mjög misjafnlega á sjúklinga. Á suma hefur hann lagzt létt og' staðið fremur stutt.
1 öðrum hefur hann verið erfiður og langvarandi. Mjög fáir af þeim, sem veiktust,
hafa þó dáið, en í stöku fjölskyldu hefur veikin verið illkynjuð. Mér er kunnugt, að
úr hópi 5 systkina dóu 2, annað 5, en hitt 8 ára gamalt. Og í annarri fjölskyldu dóu
2 börn af 6. Ég er þess fullviss, að á hvorugum staðnum komu fylgisóttir til greina,
svo sem lungnabólga, diphtheritis eða croup. Dauðaorsökin var blátt áfram örmögnun
vegna þess, hvað veikin stóð lengi.
7. aukalæknishérað. Kikhósti hafði gengið um Snæfellsnes, en var í rénun,
þegar ég kom í ágúst. Hafði hann verið vægur, að minnsta kosti hafði ekkert barn
dáið af honum, það ég veit til.
4. Taugaveiki (febris typhoidea).
Af taugaveiki eru talin 105 tilfelli á farsóttaskrám í 9 héruðum. Hins vegar
telur landlæknir tilfellin 180 og af þeim hafi 25 dáið. Mest bar á veikinni fyrra helm-
ing árs.
I. læknishérað. Á þessu ári veit ég eigi til, að taugaveiki hafi komið fyrir nema
á 2 bæjum, öðrum á Álftanesi og hinum á Kjalarnesi. Eigi breiddist hún samt út,
og enginn dó úr henni. Getur verið, að einhver tilfelli hafi verið, sem mér eru ekki
kunn.
4. læknishérað. 4 tilfelli, 1 mannslát.
5. læknishérað. Síðara hluta janúarmánaðar veiktust 5 á einum bæ af febris
typhoidea. Sluppu þeir við fylgikvilla og fengu góðan bata. í febrúar komu upp 3
tilfelli af sama sjúkdómi. f marz gekk veikin enn, en var hvergi hættuleg. 1 apríl,
maí, júní og júlí breiddist hún út til annarra bæja í sama byggðarlagi, og á einum
bænum veiktust allir. Sótthreinsað var með brennisteini, sums staðar með kreólíni,
og allir sjúklingar fengu pill. creolini en masse, sömuleiðis klyster með aqua cre-
olini, og var þeim einnig þvegið með þessum vökva. Enginn dó úr þessum sjúkdómi.
II. læknishérað. Taugaveiki hefur komið fyrir á þremur bæjum í Möðruvalla-
sókn í sumar. f apríl og septembermánuði veiktust 5 á einum bænum, svo að bónd-
inn einn var á fótum, en á hinum bæjunum sinn maður á hverjum bæ. Ekki veit
ég til þess, að neinn af sjúklingum þessum hafi dáið, og ekki útbreiddist veikin þaðan,
enda voru allar varúðarreglur viðhafðar og samgöngur bannaðar við hin sjúku heimili.
17. læknishérað. Taugaveiki kom hingað í nóvembermánuði með tveimur
mönnum. Annar var úr Skaftártungu, en hinn af Síðu. Sögðust þeir báðir nýkomnir
heim úr ferð til Reykjavíkur. Höfðu þeir orðið samferða. Þeir vissu ekki til þess, að