Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Síða 33
31
1892
2. læknishérað. Congelatio 6, ambustio 5, fractura claviculae 1, costae 1, cruris
1. humeri 1, radii 1, contusio 31, subluxatio axillaris 1. Vulnera 16. Eitt af þessum
sárum kom fyrir á 8 ára dreng, sem varS undir skriðu. Náði sárið frá angulus ext.
°culi dx. yfir hægri augabrún, upp skáhallt ennið mitt, upp á hvirfil og þaðan í
boga fram að hægra eyra. Var galea rifin frá hægra megin á höfðinu og hékk niður
a hægra eyra. Ég saumaði sárið saman, eftir að hafa nákvæmlega hreinsað það,
uieð 24 suturum, og greri það að mestu per primam. Drengur þessi hafði og, um leið
°g hann varð undir skriðunni, fengið fractura humeri.
3. læknishéraö. Af bruna, er fyrir hefir komið (4 tilfelli), var á einum, 6 ára
dreng, brunasárið allmikið. Það náði yfir allar lendarnar og niður á lærið, og var
hruninn á öðru stigi. Hann hafði dottið aftur á bak ofan i sjóðheitan soðpott, en
verið strax gripinn upp úr. Á hinum sjúklingunum voru brunasárin aðeins á fótum,
orsökuð af þvi, að heitt vatn hafði hellzt ofan á þá. Af kali hef ég haft 3 tilfelli, og
var það í 2 tilfellum aðeins kal á fótum, en í þriðja bæði á höndum og fótum. Einn
af þessum kvöldu sjúklingum kom til min um miðjan desember í fyrra og er þvi
einnig talinn í ársskýrskmni þá. Hann missti mikið af tánum á hægra fæti, en hélt
öllum á þeim vinstra, en kalsárin á höndunum eru að mestu gróin. Contusiones voru
11 og beinbrot 3, fractura claviculae 2 og humeri 1.
4. læknishérað. 11 ára piltur, heilsuhraustur, hlaut brot um miðjan upphand-
legg, er hann var að berja með steini sér til gamans. Vegna þess að þetta gerðist hér
í kaupstaðnum og ég var tafarlaust sóttur og gerði ég mér árangurslaust allt far
Um að komast að því, hvort ekki gæti verið um aðra beina orsök að ræða, er ég þess
fullviss, að brotið hefur einungis orsakazt af vöðvatogi. Combustio faciei et colli 1,
contusio coxae 1, distorsio manus 2.
5. læknishérað. Fractura colli femoris intracapsularis 1. Var það á 73 ára gam-
alli manneskju, en óvist um afdrif.
9. læknishérað. Fractura costae 2, cruris 1, humeri 1, claviculae, 1, haemarthros
genus 1, luxatio claviculae acromialis 1, vulnus incisum arteriae radialis 1, vulnera
alia 12, distorsio articuli humeri 1, combustio 2.
10. læknisliérað. Fractura olli femoris 1, fibulae 1, contusio cubiti 1, costae 2,
femoris með eftirfylgjandi abscess 1.
11. læknishérað. Eitt axlarliðhlaup hef ég haft til meðferðar og af beinbrotum
eitt sköflungsbrot á öldruðum manni, lærbrot á 5 ára gömlum dreng og brot á 3
rifjum á enskum sjómanni, er slasaðist þannig um borð á skipi því, er hann var
ráðinn á. 2 drengir hröpuðu niður fyrir björg í Sandanesi á Upsaströnd. Beið annar
bana af fallinu, en hinn skemmdist lítt og mun vera orðinn jafngóður.
15. læknishérað. Ambusto 4, congelatio 3, distorsio pedis 5, fractura tibiae 1,
radii 1. Laesiones voru sumar æðimiklar, einkum ein, sem orsakaðist af óaðgætni
nieð byssu, er var ónýt og sprakk, en stykki úr henni særði höfuð og andlit mjög
ásamt öðru auganu, sem eyðilagðist alveg. Þá var barn, sem í óaðgætni gleypti 5 aura
pening, er stóð fastur, en komst ofan i maga, og hefur ekkert borið á því síðan, að
barninu hafi orðið meint af því.
16. læknishérað. Fractura antebrachii 1, radii 1, femoris 1.