Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Qupperneq 39
37
1893
lenzkur fótabúnaður og þó alveg sérstaklega óreglulegar máltíðir og hinn illi vani,
sem er mjög almennur, að borða rétt áður en menn taka á sig náðir.
5. læknishérað. Talin eru 2 tilfelli af litlu kóleru, sem læknir sá þó ekki, og dóu
báðir sjúklingarnir.
7. læknishérað. Tók að brydda á litlu kóleru eftir veturnætur.
9. læknishérað. í desember komu fyrir allmörg tilfelli af áköfum niðurgangi,
að kalla samtímis á mörgum bæjum víðs vegar í héraðinu. Veikin barst til Sauðár-
króks, og þar sá ég nokkra sjúkiinga. 1 ljós kom, að hér var væg dysenteri á ferð. Eng-
inn dó.
10. læknishérað. Nokkur tilfelli af cholerina. 1 barn dó úr þeim sjúkdómi.
15. læknishérað. Dreifð nokkuð jafnt á flesta mánuði ársins.
17. læknisliérað. Blóðkreppusótt gekk hér i maí og júní, fluttist hingað að austan
úr Austur-Skaftafellssýslu. Sú sótt gengur hér stundum á vorin og sýnist í fyrstu stafa
af óholiu og óhentugu mataræði. Einkum kennir almenningur illa verkuðu fiskmeti
um sótt þessa. Þeir, sem sóttina fengu, voru verstir um vilcutíma. Voru þó eftir sig
margir um tíma. Enginn dó.
7. aukalæknishérað. Síðast í nóvember og desember gekk hér dálítill faraldur
af akút intestinalkatarrh.
6. Gigtsóít (febris rheumatica).
Skráð eru 8 tilfelli í 4 héruðuin. Læknar nefna ekki veikina, en Iandlæknir segir,
að eftir sinni reynslu sé hún mjög sjaldgæf hér.
7. Lungnabólga (pneumonia crouposa).
Skráð tilfelli eru með langfæsta móti, aðeins 79 á landinu. Getið er 6 mannsláta
af völdum veikinnar. Læknar geta hennar að litlu.
11. læknishérað. Lungnabólga hefur lítið eitt komið fyrir þetta ár, og skal ég
geta þess, að einn af sjúklingum þeim, er ég var sóttur til, dó í júlímánuði næstliðið
sumar.
7. aukalæknishérað. Fyrra hluta ársins var lungnabólga að stinga sér niður
við og við, en aldrei nema eitt og eitt tilfelli á stangli.
8. Kvefsótt (bronchitis et pneumonia catarrhalis).
7. læknishérað. Tók einkum að gera vart við sig eftir veturnætur.
15. læknishérað. Sú bronchitis, sem hér kom fyrir í desember, var æðiþung,
enda var tíð þá mjög svo umhleypingasöm, þótt hún væri heldur mild.
17. læknishérað. Kvef, ekki þungt, gekk víða um vorið, í marzmánuði og um það
bil, og svo aftur um haustið, í októbermánuði eða um það leyti.