Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Síða 68
1895
66
2. Berklaveiki (tuberculosis).
Þeim læknum fer nú fjölgandi, sem hafa áttað sig á, hver hætta þjóðinni er að
verða búin af útbreiðslu berklaveiki. Á þessu ári eru tilgreind sjúkdómstilfelli miklu
fleiri en nokkru sinni áður, eða samtals 70, 47 af lungnaberklum og 23 af berklum
í öðrum líffærum. Um veikina segir landlæknir m. a.: Því miður er enginn efi á, að
þessi sjúkdómur er í alvöru tekinn að herja á íslendinga. í skýrslum ræða læknar um,
að sjúkdómsins verði meira eða minna vart, einkum lungnaberkla. Einstaka læknir
telur sig þó aldrei hafa rekizt á tilfelli. í mörgum tilfellum hefur tekizt að rekja smit-
un, og sýkillinn hefur fundizt hvað eftir annað í smásjá. Af þessu má vera Ijóst, að
veikin breiðist hér út, hægt og bítandi, eins og í öðrum löndum. Og enginn efi er á,
að hún er ekki alveg nýtilkomin hér á landi. Það er einkum leit að sýklinum, sem
nú sker úr um greininguna. Lungnasullir eru mjög algengir á íslandi. Einkennin,
sem þeim eru samfara, líkjast oft mjög einkennum við lungnaberkla, og vafalaust
hefur oft verið villzt á berklum og langvinnu lungnakvefi eða öðrum langvinnum
lungnasjúkdómum. Læknar hafa frætt almenning um varúðarráðstafanir, og ef til
vill kunna ábendingar um smithættuna að hefta nokkuð skjóta útbreiðslu veikinnar.
— Fróm ósk.
1. heknishérað. Allt bendir í þá áttina, að þessi voðasjúkdómur sé að færast
hér í vöxt. Ég hef á þessu ári fundið phthisis pulmonum í 10 manneskjum hér í bæn-
um og í grennd við bæinn. Ég hef tvisvar leitað að tuberkelbacillum í hrákum og
fundið þær í hvort tveggja skiptið. Ég hygg, að veikin sé orðin svo algeng hér á landi,
að engin tök séu á því að útrýma henni til fulls, en mikils væri um það vert að fræða
alþýðu manna um þetta sóttnæmi og hvernig helzt má varast það. Það er voðalegt
að hugsa til þess, að berklasjúkt fólk hrækir, hvar sem stendur, sefur hjá heilbrigð-
um manneskjum, tyggur mat í börn, hefur tennurnar fyrir sykurtengur o. s. frv.
— Coxitis tuberculosa 2. Stúlkubarn, 11 ára, hafði líka phthisis pulmonum og dó.
Drengur, 8 ára, hafði í % ár verið í gibsumbúðum. Þegar ég sá hann, hafði hann
hnefastóran congestionsabscess framan á femur. Fóturinn var styttri, caput femoris
gengið upp á við, en engin eymsli um liðamót. Hann gat gengið. Narcosa, incisio,
abscessinn skafinn innan, drain og suturur. Allt gróið eftir 17 daga. Drengurinn nú
(eftir V2 ár) vel hraustur. Tumor albus antebrachii á gamalli konu. — Scrophulosis
17. Yfir höfuð virðist mér kirtlaveikin vægari hér en utanlands. Ég hef alls einu sinni
séð kirtlana suppurera.
2. læknishérað. Phthisis 2 tilfelli. Annar af þessum sjúklingum, stúlka 22 ára,
dó i Hafnarfirði í sumar. Malum Potti 1.
3. læknishérað. Scrophulosis 3 tilfelli.
4. læknishérað. Phthisis 1 tilfelli, scrophulosis 4. Héraðslæknir getur þess, að
auk þessa berklasjúklings hafi hann aðeins séð einn berklasjúkling áður í héraði
sínu og segir síðan: Sú aukning á tæringu, sem menn á síðari tímum eru farnir að
hafa orð á, stafar eðlilega af auknum vistferlum íslendinga til Danmerkur og lang-
dvölum þar. Þeir koma svo upp veikir og sýkja aðra. Helzt munu það vera verzlunar-