Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Side 73
71
1895
veikur dó núna rétt fyrir nýárið. Af 4 öðrum sjúklingum veit ég hér í næstu sveit-
um. Læknir getur um ráðstafanir til hundahreinsunar.
9. læknishérað. Sullaveiki 22 tilfelli.
10. læknishérað. Stúlkubarn 11 ára hafði þjáðst af verk undir hægra rifjahylk-
inu í 4 ár, mataróslyst, uppsölu og gulu. Hún er mjög mögur og föl í andliti. Tum-
orinn nær ofan á við í línu við umbilicus. Ég punkteraði tumorinn, þar sem mestur
var prominensen, og kom þá út % pottur af tæru vatni. Eftir rúma viku punkteraði
ég á ný, og kom þá út töluvert af graftarlituðu vatni með sullungum í, en eftir nær
sólarhring fékk sjúklingur peritonitis og dó.
12. læknishérað. Loks þykir mér vert að geta um sjómann hér á Húsavík, lið-
lega tvítugan. Hann hafði um langan tíma fundið til þvagtregðu, en þó eigi svo, að
hann leitaði læknis. 1 sumar, sem leið, ágerðist þessi kvilli hans mjög, og eina nótt
var ég vakinn upp til hans. Gat hann þá með engu móti kastað þvagi. Ég katheteri-
seraði hann með nelatons-katheter, og fór svo nokkrum sinnum, en eftir því tók
ég, að þegar ég hafði tæmt blöðruna, var greinilega palpabel tumor, eftir því sem
mér virtist milli vesica og rectum, og olli hann auðvitanlega þvagtregðunni. Ég
kenndi manninum sjálfum að brúka katheterið, og fór svo fram um hríð. Undir
haustið var ég sóttur til hans, því að nú kvaðst hann eigi lengur ná þvaginu sjálfur.
Reyndi ég nú fyrst nelaton-katheter, en mætti ákafri mótstöðu í blöðruhálsinum.
Maðurinn hafði krampakenndar verkjahviður fyrir ofan os pubis, að honum fannst
í vesica. Ég reyndi nú silfurkatheter, en án resultats. Þrengslin í blöðruhálsinum
voru mikil og spenningurinn á móti katheterinu ákafur. Ég ásetti mér því að gera
punctio suprapubica og punktera síðan þennan tumor, sem ég þóttist viss um, að
væri echinococcus. (Faðirinn dáinn fyrir 3 árum úr e. hepatis). Undir antiseptic,
en án narcose, gerði ég með stórum prövetroikart punctio vesicae urinariae. Þvag
rann þegar út um pípuna, en ekki nema svo sem Yz lítri. Nú fannst tumorinn glöggt,
mjög spenntur. Ég bjóst til að punktera hann, en þá sagði maðurinn allt í einu:
».Nú sprakk það“. Þreifaði ég þá eftir tumornum, en hann var horfinn. Ég ordiner-
aði: ró, cingulum abdominis og gaf honum 25 dropa af sol. chlor. morphici. Skömmu
síðar var ég aftur sóttur til hans, því hann var „allur að hlaupa upp í þrimla“. Hann
hafði fengið ákafa urticaria, og var þannig diagnose: echinococcus með „sæde“
líklega við plica Douglasii, staðfest. Maðurinn síðan frískur. Enginn tumor finnan-
legur. — Á sullaveiki ber annars lítið í þessu héraði, enda er það fyrir mörgum
árum orðin sýslunefndarsamþykkt að gefa hundum árlega inn ormameðal og það,
sem betra er: almenningur varast nú ógætilega umgengni við hunda.
13. læknishérað. Sullaveiki 4 tilfelli.
15. læknishérað. Lifrarveikir með echinococci voru 19. Tvisvar sprakk inn í
abdomen. í hvort tveggja skipti erythem. Tvisvar kom icterus fyrir. Tvisvar kom
fyrir haemoptysis, og gengu sprungin og heil smásullahús upp á eftir. Einu sinni
gengu sullahús niður með þvaginu. Þau voru öll mjög lítil, eins og krækiber eða
bláber. Þetta síðast nefnda tilfelli var kona, primipara. Um seinna part meðgöngu-
tímans var hún oft lasin af verkjum um holið og stundum um mjóhrygginn. partus.
Gekk heldur vel og heilsaðist vel fyrstu dagana. % um kvöldið fékk hún allt í einu