Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Qupperneq 86
1895
84
framar, eftir að hún var orðin léttari, og hafði stutta sængurlegu, eftir þvi sem við
mátti búast. Barn hinnar konunnar fæddist lifandi, og báðum heilsaðist vel.
10. læknishérað. Töng lögð á einu sinni vegna adynamia uteri.
11. læknishérað. Umliðið ár hef ég verið tilkvaddur að vera við þrjár barnsfæð-
ingar. Brúkaði ég tangirnar i þeim öllum og frelsaði þannig bæði líf mæðranna og
barnanna. Ég skal geta um eitt af þessum tilfellum ... Þegar ég kom, stóð allt við
sama, og eftir að ég hafði rannsakað og fundið, að allt var rétt, sagðist ég ekki mundu
ná barninu fyrr en daginn eftir. Ég hafði engan frið til að sofa um nóttina, sökum
þess að menn voru einlægt að tala við mig í því skyni að fá mig til að ná barninu,
en ég lét mig ekki, og fyrst klukkan 5 morguninn eftir lagði ég fæðingartöngina á
barnið. Ég var svo að toga i rúma tvo klukkutíma, áður en barnið fæddist með lífi-
Það bogaði af mér svitinn, og ég var orðinn þrotinn að kröftum, var að hugsa um, að
ekki væri um annað að gera en perfórera höfuðið, en þá heyrði ég bresta hátt í höfði
barnsins, og eftir það gekk vel að ná því fram. Eftir þessa barnsfæðingu var konan
sæmilega frísk, en höfuð barnsins var með stórri og djúpri laut, en það var samt lif-
andi og lifir enn, en móðir þess dó nokkru seinna úr barnsfararsótt.
12. læknishérað. Læknir var við 6 barnsfæðingar. Tók 4 börn með töng, eitt
skipti vegna eclampsia, en hin skiptin vegna adynamia uteri. Allar mæðurnar lifðu,
eitt barn fæddist andvana, en um eitt er ekki getið.
16. læknishérað. Héraðslæknir var sóttur til 5 fæðandi kvenna. Virðist aldrei
hafa notað töng. 3 börnin fæddust andvana.
17. læknishérað. Til sængurkvenna var mín vitjað tvisvar á árinu. Annað barnið
fæddist andvana, hitt lifandi, en dó eftir viku. Móðirin dó einnig eftir viku úr barns-
fararsótt, sem endaði með peritonitis universalis.
18. læknishérað. Ég tók 3 börn ineð verkfærum þetta ár, og var atonia uteri
orsök þess. Eina vendingu gerði ég. Mæður þessar og börn eru enn lifandi og vel frískar.
20. læknishérað. Hjá einni þrítugri primipara varð að taka barn með töngum
sakir þrengsla í grindinni. Barnið lifandi.
1. aukalæknishérað. Á árinu hef ég enga fæðingaroperation gert. Hefur mín verið
vitjað til þriggja fæðinga á árinu. Börnum og mæðrum heilsaðist vel.
2. aukalæknishérað. Læknir gerði eina solutio placentae manualis.
3. aukalæknishérað. Læknir var sóttur 8 sinnum til fæðandi kvenna, tvisvar
vegna blæðinga eftir fæðingu, en í hin skiptin vegna sóttleysis eða legu fóstursins.
Hann tók eitt barn með töng og gerði eina vendingu. Allar konurnar lifðu, en eitt barn-
anna dó.
4. aukalæknishérað. Tvisvar lögð á töng, í annað skipti vegna adynamia uteri,
en í hitt skiptið auk þess vegna grindarþrengsla.
5. aukalæknishérað. Af obstetriciskum tilfellum hef ég aðeins haft eina sitjanda-
fæðingu. Fóstrið asfyktiskt og dó eftir ca. 1 klst., en að öðru leyti gekk allt vel. Enn
fremur tvær retentiones placentae, sem ekkert er að athuga við.
7. aukalæknishérað. Tvisvar hef ég á þessu ári þurft að hjálpa til við fæðingar.
f fyrra skiptið varð að brúka töng vegna adynamia. Síðara tilfellið var andlitsfæðing,
samt ein af þeim skárri, því pelvis var rúmgóð, og hakan snerist fram á endanum. en