Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Síða 89
87
1895
En verri plágu fyrir fólk álít ég þá flökku- eða farandskottulækna, er stundum eru
hér á ferð með meðalatöslcur sínar og bjóða og selja fólki homopatisk meðul, er þeir
svo kalla. Hef ég einkum heyrt þrjá tilgreinda, Lárus Pálsson af Vatnsleysuströnd
°g Jón Arnljótsson og Andrés Davíðsson, báða úr Reykjavík. Er það óþolandi ósiður
að láta pilta þessa flakka um landið og svikja fé út úr mönnum fyrir hið gagnslausa
meðalagutl sitt. Væri mesta þörf á að reyna að stemma stigu fyrir þeim ósóma.
16. læknishérað. Þegar ég kom hingað 1886, þá voru hér 3 smáskammtalæknar,
en nú er hér aðeins einn, sem sé Eyjólfur Runólfsson hreppstjóri á Reynivöllum.
18. læknishérað. Skottulæknum hef ég lítið haft af að segja, og eru þeir að
minnsta kosti ekki til skaða í héraðinu, enda nota menn hér mest héraðslækninn.
19. læknishérað. Skottulæknar eru hér 5 og geta verið fleiri, sem lítið láta á sér
bera.
1. aukalæknishérað. Þegar ég kom hingað (1890), voru hér tveir menn, sem fást
við svonefnda homopathiu, og eru þeir hér enn, bændur innan Dalasýslu.
2. aukalæknishérað. Hvað skottulækningum viðvíkur, þá er aðeins einn skottu-
iæknir (homöpath) í þessu umdæmi, og hefur hann mjög litla aðsókn.
3. aukalæknishérað. í umdæmi þessu er einn skottulæknir, Sigurður Jónsson frá
Lambhaga. Gegnir það mestu furðu, hvað almenningur getur trúað blint á lækningar
þessa manns. Maður þessi mun vera miður kynntur hér á Akranesi og í sinni sveit
en annars staðar út í frá. Kemur það þannig alloft fyrir, að hann er sóttur út fyrir
þetta hérað, enda sparar hann ekki að ginna fáfróðan almenning með lækningaskrumi
sínu, þegar hann getur komið því við.
4. aukalæknishérað. Skottulækningar hafa verið talsverðar hér, en þær eru
óðum að minnka, og er trú manna á homopötum óðurn að dofna. Nú sem stendur er
hér aðeins 1 homopati og 2, sem fást litið eitt við blóðtökur.
6. aukalæknishérað. Tveir smáskammtalæknar eru í umdæminu, en ekki er mér
kunnugt um þá praksis, sem þeir hafa.
2. Sjúkrahús.
Frá sjúkrahúsinu í Reykjavik er engin skýrsla finnanleg fyrir þetta ár. Á sjúkra-
húsinu á Akureyri lágu 7 manns á árinu, 6 þeirra voru brautskráðir, en um afdrif
eins er ekki getið. Tilefni til innlagningar var: Abscessus articuli talocruralis 1, ampu-
tatio digiti manus 1, cancer mammae 1, fract. comminuta brachii dx. 1. tumores cystici
capitis 1, ulcera pedum 1.
3. Húsakynni og þrifnaður.
1. læknishérað. Að því er snertir Reykjavík, þá verða menn að játa, að allt það, er
að þrifnaðarháttum lýtur, er á fremur lágu stigi í samanburði við það, sem tíðkast í
bæjum erlendis. Húsakynni fátæks fólks eru mjög þröng og loftill. Get ég ekki betur séð
en að steinbæirnir nýju séu að því leyti talsvert verri en torfbæirnir gömlu. Grjótið er
dýrara en torfið. Allt afrennsli úr bænum er í ólagi, því engin renna er vatnsheld (stein-