Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Síða 90
1895
88
lögð eða steinsteypt), og í miðbænum eru þær flestar hallalausar. Afleiðingin er sú, að
rennslið stendur kyrrt í þeim, rotnar, þegar heitt er, fyllir bæinn með ódaun og sígur
svo ofan í jarðveginn, en úr þessum sama jarðvegi tökum við allt neyzluvatn. í bæn-
um er auk þess talsvert af salernisforum og fjósforum, en örfáar eru þær steinlímd-
ar og hjálpa því rennunum til þess að óhreinka jarðveginn. Öllu sorpi er safnað í
gryfjur eða hauga. Þar fær það að rotna og er ekki flutt burtu nema einu sinni eða
tvisvar á ári víðast hvar. Skolp og skolvatn fer líka aht niður í jarðveginn að heita má.
Sums staðar eru jafnvel grafnar gryfjur fyrir það til þess að létta því leiðina. Allur þessi
óþrifnaður hlýtur, eins hér sem annars staðar, að valda mikilli óhollustu. Þegar
jarðvegurinn er gegnsósa af rotnunarefnum, stígur ódaunninn upp í húsin og vatnið
í brunnunum skemmist. Ef alvarlegar landfarsóttir ber að höndum (kólera, illkynjaður
typhus o. s. frv.), má búast við, að þær hertaki allan bæinn. Alls staðar annars staðar
hefur það komið í ljós, að heilsufar hefur batnað og manndauði minnkað, þegar bætt
hefur verið úr þessum annmörkum í þrifnaði. Ég tel rangt að skella skuldinni á heil-
brigðisnefnd bæjarins, því ég sé eltki, að hún geti neinu áorkað, fyrr en fengin er
sérstök heilbrigðissamþykkt fyrir bæinn. Þessar greinar um þrifnaðargæzlu, sem
standa í lögreglusamþykkt bæjarins, eru harla ónógar. I danska ríkinu eru nú, auk
bæjanna á íslandi, ekki nema 2 smáþorp, sem enga sérstaka heilbrigðissamþykkt hafa.
— Að endingu skal ég geta þess, að snemma á árinu var sett á fót baðhús hér í bænum
fyrir tilstilli læknanna og ýmissa bæjarbúa. í því eru 2 kerlaugar og 1 steypibað.
9 fyrstu mánuðina, sem það var opið, voru í því teknar ca. 1100 kerlaugar og yfir
3000 steypiböð.
3. aukalæknishéraö. Hvað þrifnaðinn snertir, þá má svo að orði kveða, að hann
sé í allgóðu lagi hér á Skipaskaga, húsakynni manna víðast þokkaleg og góð. Að
visu eru menn oft hirðulausir með vilpur sinar og sjómenn með slor sitt. Kemur þetta
einkum fram á vorin, þegar hitnar í veðri, að megnan daun leggur af þessu. Hér á að
heita, að til sé heilbrigðisnefnd, en hún kemur að Iitlu gagni, þar sem hún ekkert vald
hefur. í Innri-Akraneshreppi er þrifnaðurinn því miður ekki í eins góðu lagi. Híbýli
manna eru, að fáeinum undanteknum, bæði lítil og loftill, og sjaldan mun sums staðar
vera hugsað um að hleypa inn heilnæmu lofti — mér liggur við að segja — svo árum
skiptir. Hvergi í umdæmi mínu er scabies jafnalgengur. Sýnir það eitt ljóslega, hve
þrifnaður er á lágu stigi. Liggur við, að hann sé þar endemiskur. I hinum öðrum
hreppum í umdæmi þessu má kalla, að þrifnaður sé í nokkurn veginn góðu lagi.
4. Bólusetningar.
2. læknishérað. Almenn bólusetning á óbólusettum börnum fór fram á þessu
ári í Keflavík. Annars staðar hefur hún mér vitanlega ekki farið fram, en öll óbólusett
börn, sem ég hef hitt á ferðum mínum um umdæmið, hef ég bólusett.
4. læknishérað. Bólusetning hefur því miður verið vanrækt í mesta lagi, og hef
ég, jafnharðan og mér bárust hin neitandi vottorð frá prestunum, brýnt fyrir þeim,
að við svo búið megi ekki standa. Bóluefnið var sent til þeirra allra í vor, strax og það
barst mér.