Heilbrigðisskýrslur - 03.12.1920, Blaðsíða 22
1912
22*
en öllu meiri utanhúss en innan. Fráræsla er í ólagi, salerni óvíða og
óhreinindum oft fleygt of nærri vatnsbólum.
B í 1 d u d. Húsakynni víða þröng. ÞrifnaSur innanhúss bærilegur. —
Böð tíökast lítiö nema í sjó aö sumrinu og þá aö eins af karlmönnum.
S a u ö á r k r. Húsakynni mjög misjöfn. Sumstaðar góö, víöa afar-
ljeleg. Jafnverst eru þau á landssjóðsjörðunum. Víöa eru bæirnir líkari
peningshúsum en manna-bústööum: þröngir, loftlitlir, rakafullir, dimmir
og með moldargólfum, löngum, dimmum og krókóttum göngum. Hlóðir
mjög víöa í staö eldstóa. Á Sauðárkrók eru flest hús úr timbri,*nokkrir
kofar úr timbri og torfi. Býr fjöldi fólks í svo litlum herbergjum, aö
ekki koma nema fáein loftfet á mann, og fer svo viöa annar þrifnaður
eftir ])ví. Fráræsla er þar engin eöa aö eins í örfáum húsum. Fólk hellir
skólpi, og sumstaðar sorpi kringum hús sín, svo alt verður að for um-
hverfis þau. Fólk er tregt á að lagfæra slíkt, jafnvel þó þaö kannist viö,
að aðfinningin sje rjettmæt. Salerni eru við flest hús, en ekki alstaðar
notuð. Þykir þrifalegra að ganga í fjöruna til þarfinda sinna. Opinber
salerni eru engin. Á sveitabæjum eru salerni óvíöa.
Böð eru að færast í vöxt og baðáhöld á mörgum heimilum.
V o p n a f. Húsakynnum alþýðu fer lítið fram og byggingasniö oft
óhentugt og mjög misjafnt. Víðast baðstofur með gamla laginu, sperrum,
langböndum og reisifjöl, stafgólfin i—3 og oft eldstó í einu. Sumstaðar
tru kýr, sumstaðar stóarhús undir palli. Á einstöku stað er ofn í baðstofu.
Timburhús eru fá og ekkert steinhús. Baðstofugluggar eru heldur aö
stækka. Hiti er sumstaðar ófullnægjandi, þegar frost ganga. Salerni lje-
leg, sumstaðar engin. f sveitinni er neysluvatn gott og nægilegt.í kaup-
túninu ónógt og fremur slæmt. Mjög erfitt úr því að bæta. — Þrifnaður
og hreinlæti fara í vöxt. Stöku unglingar iðka líkamsæfingar með böðum.
Reyðarf. Eskifjörður hefir nú fengið rafmagnsljós. Má fullyrða,
að almenningur hefir þrefalt meira Ijós en áður, auk þess sem híbýlin
verða loftbetri. Stöðin kostaði 22.500 kr.
F á s k r ú ð s f. Neysluvatn er alstaðar mjög gott og víða er því veitt
inn í húsin. Þrifnaði öllum og klæðaburði fer smámsaman fram.
M ý r d a 1 s. Húsakynni batna. Flestir byggja nú orðið timburhús og
á síðustu árum steypuhús. Yfirleitt eru húsin sæmilega gerð, sumstaðar
ágætlega. Þrifnaður fer óðum batnandi.
R a n g á r. Húsakynni alþýðu hafa batnað mjög, þannig, að þau eru
loftbetri og hreinlegri, en kaldari eru þau en gömlu baðstofurnar, enda
er óviðast hitað upp. Fólkið situr skjálfandi í þessum húsum með kulda-
bólgu í höndum og fótum og sífelt kvef. Tilfinnalegast er þetta fyrir
börn og kvenfólk.
Salerni eru óvíða nema á betri bæjum og stendur þetta hjerað t. d. langt
að baki Öxarfjarðarhjeraði í þeim efnum. Þrifnaður eykst þó árlega.
Eyrarb. Húsakynni alþýðu fara batnandi. Víðast til sveita járn-
varðar baðstofur á palli, en að mörgu leyti hentugar. Á stöku stað eru
timburhús, en þau reynast köld. Lakast er að húsakynni eru of lítil og
lítið þiljuð sundur og kemur það sjer illa, er sóttir ganga. Gluggar eru
sæmilega stórir, en því miður eigi opnaðir svo oft sent skyldi. Ofnar
óvíða. Salernum heldur að fjölga. Böð þekkjast tæpl,