Heilbrigðisskýrslur - 03.12.1920, Page 33
33*
1913
R e y ð a r f. Echinococcot. I, herniot. radic. 2, ex:cisio fasciae palm. I,
oper. pr. paraphimosis i.
IV. Líkskoðun.
R v í k. Tvær líkskoðanir fóru fram. Reyndist önnur fosforeitrun; hinn
maðurinn hafði orSiS úti. Smáblæðingar fundust og í heilanum.
H e s t ey r. Barnslík skoöað. Var meS áverkum, sem báru vott um, aS
dáiS hefSi af mannavöldum.
B 1. ó s. Lík af druknuSum manni var skoSaS. HafSi veriS ölvaSur.
V. Ýmsheilbrigðismál.
i. Heilbrigðis og sóttvarnarnefndir.
SauSárkr. í sveitum eru engar heilbrigöisnefndir og hreppsn. láta
sig heilbrigSismál engu skifta. Á SauSárkr. er heilbrigSisn. aS nafninu,
en hefir lítið vald til aS láta hlýSa fyrirmælum sínum. Þó hefir því veriS
hlýtt, aö salerni skyldi vera viS hvert hús. MiSur er því gegnt, aS bera
sorp alt og kamramykju í sjóinn. ÁburSarhaugar eru víöa í þorpinu og
talsverður óþrifnaSur af þeim, einkum ef kamramykja er borin í þá, þrátt
fyrir aS bannað sje. í leysingum rennur svo forarvatn úr haugunum út
yfir plássiS. HeilbrigSisn. vill fá því framgengt, aö bygSar sjeu lagar-
heldar gryfjur fyrir slíka hauga.
H o f s ó s. HeilbrigSisn. er í kaupt. Lítt reynd, ekki ársgömul.
V o p n a f. Sóttvarna og heilbrigSisn. engin.
E y r a r b. HeilbrigSisn. á Eyrarb. og Stokkseyri, en starfa lítiö. Hafa
hvorki þekkingu nje tíma til þess. Hreppstjórar og sótthreinsunarmenn
besta aöstoðin í sóttvarnarmálum.
2. Meðferð ungbarna.
R v í k. Hún er misjöfn, en flestar konur kosta kapps um aö hafa börn-
in á brjósti, enda mjólk dýr og lítiS um hana. — Kvef og lungnasjúkd.
eru áreiðanl. algengustu banameinin, tiltölulega lítiS um alvarlega melt-
ingarkvilla. Beinkröm og kirtlaveiki eru mjög algengir kvillar á börnum.
H a f n a r f. Yfirleitt aS batna.
S k i p a s k. AllgóS. SíSari árin leggja flestar mæöur börnin á brjóst.
AS eins á stöku heimili utan kauptúnsins hefir læknir rekiS sig á slæma
hirSing á börnum og þá ætíS vandaS um þaS.
Borgarf. Yfirleitt góö. Læknir og yfirsetukonur hafa leiöbeint
mæSrum eftir föngum. Á stöku staS hefir læknir þó sjeS trjetúttur í pel-
um, gerðar úr tvinnakeflum, en tuskutúttur munu orSnar mjög sjaldgæf-
ar. Læknis er yfirleitt fljótt vitjaS ef börn sýkjast. Kvefsótt og lungna-
bólga eru algengustu dauðámein ungbarna.
D a 1 a. Fáar mæSur hafa börn sín á brjósti eingöngu, margar á brjósti
og pela. Máltíöir tíðar og óreglulegar. Pelatottur búa margir til úr trje
eSa beini. Gummitottur þykja mönnum endast illa. Annars eru börnin
ekki illa hirt.
Ó 1 a f s v. Fer altaf batnandi, enda barnadauSi nú miklu minni en fyr-
ir nokkrum árum.
3