Heilbrigðisskýrslur - 03.12.1920, Side 91
91*
1918
sjer til aðstoöar hjúkrunarstúlku, sem stundaö hafði sjúka, en ekki sýkst
sjálf. Kom ekki að sök. — Bátsmenn tóku smíðisgripi hjá járnsmiðum,
sem voru nýstaðnir upp úr veikinni, en snertu þó ekki við þeim. Þeir
sýktust ekki.
F 1 a t e y r. Sýkti nær alt fólk á Flateyri, sem yngra var en 50 ára, að
undanteknum börnum á 1. viku.
N a u t e y r. Á einum bæ í Nauteyrarhr. sýktist helmingur heimilsfólks,
sem svaf í sama herbergi, en hinn helmingurinn slapp. — Hjeraðslæknir
var sóttur til Bolungarvíkur (veikin var þar þung), einangraði sig er heim
kom og sýktist ljett (vægur hiti í 3 daga). Enginn sýktist á heimili hans.
H e s t ey r. Sjómenn, sem dvalið höfðu 2 sólarhr. í sýktu plássi, veikt-
ust daginn eftir heimkomuna. 12—14 klst. eftir komu þessara manna
veiktist fyrsti sjúkl., sem fyrir var í landi. Eftir 6 daga voru 23 orðnir
veikir af 28, sem voru i verstöðinni, og ýú mánuði eftir komu mannanna
var veikin komin um allan hreppinn. — 1 Sljettuhr. fór veikin hægt yfir,
var væg og tók fáa.
S í ð u. Bóndi á Brunasandi kom á sýkt heimili í Meðallandi. Veiktist
2 dögum eftir heimkomuna. — Virtist ekki mjög næm. Á einu heimili
sýktist ein gömul kona.
Eyrarb. 25 ára karlm. sýktist 2 dögum eftir smitun (19. júlí). —
Sumir bæir sluppu alveg við veikina, þó ekki reyndu þeir að verjast. —
Maður sá, sem flutti veikina til Eyrarb., varð svo veikur á leiðinni, að
hann gisti á bæ í Ölfusi um nóttina. Þar smitaðist enginn, en er heim
kom, smitaði hann heimili sitt og ýmsa þorpsbúa.
Ekki varð hjeraðsl. þess var, að þeir veiktust síður af Spánarveikinni,
sem fengu infl. um sumarið, eða veiktust að jafnaði vægar. Hann hafði
nokkrum sinnum tækifæri til að skoða sama manninn veikan af báðum
sóttunum. T. d. fjekk 22 ára gömul stúlka infl. 14. okt. og svo Spánar-
veikina 12. nóv.
Veikin barst jafnan með mönnum, sem sjálfir höfðu tekið hana. Þó
virtist einn bær, Krókur, hafa sýkst á annan hátt. Veikin kom þar fyr
en á öðrum bæjum í grendinni. Enginn maður hafði komið þangað lengra
að um langan tíma, þó nokkrar samgöngur væru við næstu bæi, er allir
voru heilbrigðir. Heimilismenn á Króki halda, að hún hafi flust með
hundi. Vinnumaður frá Króki hafði farið til Rvíkur og lagst þar, en
hundur hans kom aftur eftir nokkra daga. Daginn eftir að hundurinn
kom heim, varð fyrst vart við veikina. Hundurinn hafði legið fyrir 2 daga
eftir heimkomuna, og var haldið að það stafaði af þreytu. Ef veikin hefir
flust með hundinum, hefir undirbúningstími verið í mesta lagi \y2 sólar-
hringur. Annars var stysti undirbúningstími sem hjeraðsl. athugaði, 48—
55 klst.
Af fólkinu veiktist áreiðanlega__8o—þar sem veikin kom, líklega
næ'r seinm"tölunni’eða yfir hana ef peir eru tala'r, sem ljettast sýktust
og fóru ekki í rúmið.
Á einu mannmörgu heimili veiktust 3. Hitt fólkið slapp alveg, þar af
3 ungar manneskjur.
Keflav. Maður úr Keflav. fór til Hafnarfj. Kom heim 6. nóv. Þ. 7.
sýktist hann, og þ. 8. tvö börn hans um tvítugt.