Heilbrigðisskýrslur - 03.12.1920, Síða 111
Ljett kvefs. á börnum og ungl. í júlí. Fluttist frá Akureyri eða Húsav.
Þ i s t i 1 f j. Var ekki frábrugöin þeirri venjul. og ekkert líkt infl. hefir
sjest þetta ár. Maga- og garna-einkenni þó helclur algengari viö þetta
kvef en venjul.
Vopnaf. 111 kvefsótt fór eins og logi yfir akur í maí—júlí. Kom
líkl. landveg. Flest börn lögöust í rúmið meö hita og slæmu kvefi. Mörg
sjúk í 2 vikur. Hitinn blossaði upp hvaö eftir annað. Eitt barn dó á
i. ári, en mörg sluppu með naumindum. Flest fulloröið fólk varö líka
lasið nokkra daga, sumir jafn vel mikið lasnir svo vikum skifti. Ekki
virtist sótt þesssi venjul. infl. og ekki eins bráösmitandi.
Fljótsd. Þungt kvef fluttist úr Fjörðum í júnímán. Lagðist þungt
á börn á aldrinum i—io ára. Fengu 13 lungnab. og eitt dó. Miklu fleiri
sýktust en skrásettir eru.
— Aftur gekk kvef í ág. og sept., og lagðist þá þyngra á fullorðna en
börn. Lögðust margir rúmfastir, fengu hita, hósta, beinverki, sumir niður-
gang, blóðnasir, en batnaði eftir 3—4 daga. —■ Læknir telur kvef þetta
líklegast infl. Sóttvarnir við slíka veiki ómögul. Komin um alt áður
iæknir veit af.
S e y ð i s f. Ekkert sjerstakt um kvefs. að segja.
Reyðarf, Kvefsótt í júníbyrjun, einkum á börnum. Fjöldi með
bronchitis, capill. bronch. eða bronchopneum. Mörg fengu börnin blóð-
nasir, allmörg hlustarverk, ekkert ot. med. supp. Á einu barni var hitinn
42.9. Barnið lifði. Veikin líkl. borist frá Akureyri. — Kvefs. hjelt áfram
i júlí, en nú sýktust einkum fullorðnir og eldri unglingar. Börnin höfðu
lokið sjer af.
Be r u f. Seint í maímán. barst kvef frá Eskifirði, sem einkum lagðist
á börn og unglinga. Tók hún sjúkl. með miklum hita (um og yfir 40°)
og fyrirvaralaust. Hitinn fór svo smáminkandi næstu 3 sólarhr. Eftir
vikutíma voru sjúkl. albata. Undirbúningsítmi virtist vera 4 dagar. Næm-
leiki mikill. Gekk á skömmum tima um alt hjeraðið.
Seint í ágústmán. kom upp h i t a v e i k i, sem liktist i n f 1. Byrjaði
snögglega með áköfum hita (40—41 °), svita, höfuðverk, svima, upp-
köstum, stundum óráði og miklum verk yfir spjaldhrygginn. Ekkert
objektivt-og mjög sjaldan nokkur hósti eða kvefeinkenni. Veikin var all-
næm. Gekk víða um hjeraðið. Lögðust jafnt gamlir sem ungir, sumstaðar
flest heimilisfólkið, en á sumum heimilum að eins 1—2. Flestir voru al-
bata eftir viku, en margir eftir skemri tíma. Veiki þessi kom úr Fljóts-
dalshjeraði.
S í ð u. Mars. Ivvefs. barst hingað utan úr Mýrdal. Allþung á sumum.
E y r a r b. f maí—júlí gekk kvefsótt, sem virtist koma frá Rvík. Hún
kom víða, ef til vill á flesta bæi, en var svo væg, að tiltölul. fáir leituðu
læknis. Víðast lögðust 1—2 á bæ. Fáeinir fengu lungnab., en enginn dó.
Um sama leyti og fram eftir ágúst og sept. fengu allmargir bráða gast-
ritis, með afarmiklum höfuðverk, og sumir gastro-enteritis. Varaði á
hverjum 1—3 sólarhr. og batnaði svo bráðlega. Virtist farsótt.
K e f 1 a v. Kvefsótt allþung gekk um alt hjeraðið á vetrarvertíðinni
og aftur um haustið, en ekki mannskæð. — Menn virtust kvefsælnari eftir
infl. en áður.