Heilbrigðisskýrslur - 03.12.1920, Page 131
131*
1920
Bærinn var nú sóttkvíaöur þ. 7. mars, en margir aökomumenn þurftu
aÖ komast burtu. Voru þeir sóttkvíaöir í 6 daga og teknar til þess 3—4
stofur í Mentaskólanum, auk sóttvarnarhússins. Gekk þetta illa, því sum-
ir, sem einangraðir voru, sýktust og lengdist þá tíminn fyrir hina, og er
slík einangrun lítt framkvæmanleg, nema mörg smáherbergi sjeu til fyrir
einn mann eöa 2. —
Húsnæðiö fyrir sjúkl. i barnaskólanum kom sjer vel. Lágu þar alls
99 sjúkl. og dó enginn. Var sjúkrahaldi þar ekki lokið fyr en 1. maí.
Þ. 4. ;apr. kom Es. ísland og voru 3 menn á því veikir af infl., og taldi
sóttvarnarlæknir veikina þyngri en þá, sem gengið haföi. Ákvaö þá sótt-
varnanefnd, aö einangra skipið, flytja farþega í Kennaraskólann, en sjúk •
linga í sóttvarnarhúsið. 1 kennaraskólanum undi fólkið einangruninni hið
versta. Ekkert af því sýktist.
Við ráðstafanir þessar kom það ljóslega fram, að inflúensusóttvarnir,
sem ekki eiga að vera kák, eru ómögulegar þar sem miklar samgöngur eru,
e) Þyngd veikinnar. R v í k. Veikin var ljett, er ekki getið í dánar-
vottorðum. Af 99 sjúkl. í barnaskólanum dó enginn.
S k i p a s k. ;Yfirleitt var veikin væg á öllum, sem fengið höfðu spönsku
veikina 1918. Kíghóstabörn urðu illa úti, og fengu sum lungnabólgu.
Á einu heimili með 8 mönnum (enginn þeirra hafði fengið spönsku veik-
ina) lagðist alt fólkið þungt og fengu 3 lungnabólgu, engu betri en hún
var verst í spönsku veikinni 1998. .
Borgarnes. Mjög væg og læknis sjaldan vitjað.
Ó1 a f s v. Veikin yfirleitt væg. Margir urðu að eins lítið eitt lasnir
og höfðu alt af fótavist. Hjeraðsl. veit ekki til að neinn hafi dáið.
B í 1 d u d. Infl. var væg og varð engum að bana.
Flateyrar. Fremur væg. Þó dóu 3 börn.
Isafjarðar. Yfirleitt mjög væg. Hjeraðsl. var 3svar var við lungna-
bólgu, og var hún ljett á 2.
Sauðárkr. Haust og vor gekk kvef, líktist infl.
S v a r f d. Svo væg, að sjaldan var vitjað læknis. Fæstir lasnir nema
1—2 daga.
Akureyrar. Svo væg, að læknar voru í vafa um að infl. væri. Fæstir
lágu rúmfastir nema 1—2 daga. Talið að 9 hafi dáið, alt gamalmenni
yfir 70 ára, nema eitt barn á 1. ári. Margir þóttust ná sjer seint.
H ö f ð a h v. Yfirleitt var sóttin svo væg, að fæstir vitjuðu læknis.
Reykdæla. í Mývatnssveit hjelt fólk í fyrstu, að um kvefsótt eina
væri að ræða, og þó í lakara lagi, og leituðu ekki læknis. 1 Reykjadal
veiktust fæstir svo, að þeir þyrftu að hætta vinnu sinni, þó sláttur væri
byrjaður. Þó veiktust menn almennara en vant er að vera í kvefi.
H ú s a v. Mjög væg á Hólsfjöllum. Á Húsav. lágu menn 2—4 daga,
sumir viku.
Þistilf. Mjög væg. Enginn dó. Einn fjekk lungnab.
V o p n a f. Mjög væg i byrjun, þyngri síðar.
F1 j ó t s d. Fæstir vitjuðu læknis. Fáir fengu lungnab.
Seyðisf. Yfirleitt var veikin væg. 2 fengu lungnabólgu 0g einn
„tyfoid“-líkt ástand (af 579 sjúkl.).
Eyrarbakkah. Þótt sóttvörn væri hætt, bar hjer aldrei á farsótt.
....__ 9*