Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Blaðsíða 37
Sveppasúpa
Þessi súpa hefur lengi verið í uppá-
haldi hjá mér, einföld í framkvæmd
og ekki dýr máltíð sem allir verða
saddir og sælir af.
Tilvalið að bera hana fram með
góðu baguette-brauði og setja eitt-
hvað gott ofan á það, eins og hér
sýni ég rautt pestó, ólífur og svo
raspa ég parmesanost yfir.
500 ml rjómi
1½ l vatn
1 stk. grænmetisteningur
150 g portobello-sveppir
250 g sveppir
50 g smjör
150 g villisveppaostur
Salt og pipar að vild
Byrjið á að skera villisveppaostinn
niður í minni bita og setjið út í pott.
Hellið rjómanum og vatni saman við
villisveppaostinn og setjið á vægan
hita, leyfið ostinum að bráðna og
hrærið vel í blöndunni.
Á meðan osturinn fær að bráðna
er upplagt að skera alla sveppina
niður og steikja þá í öðrum potti upp
úr smjörinu, þeim er síðan blandað
saman við rjóma/ostablönduna og
leyft að blandast vel saman í um 20-
30 mínútur á vægum hita.
Setjið grænmetistening saman við
og saltið og piprið að vild, mér finnst
gott að hafa nóg af pipar til að gefa
extra gott bragð.
Leyfið súpunni svo að sjóða í um
30-40 mínútur. Ef þið hafið tíma þá
verður hún bara betri því lengur sem
að hún fær að sjóða.
Una í eldhúsinu
Ódýr og fljótgerð súpa sem börn og
fullorðnir elska. Villi sveppaosturinn
er snilld og virkar einnig sem sósa
sé hann bræddur með rjóma og
nautateningi bætt saman við.
MYNDIR/AÐSENDAR
Seðjandi
sveppa -
súpa
MATUR 37DV 26. FEBRÚAR 2021