Studia Islandica - 01.06.1937, Síða 5

Studia Islandica - 01.06.1937, Síða 5
Einkunnarorð: ... því er það ekkert ólíklegt, aS hann (o: Sænmndur fróði) hafi og ritað ættar- tölu á likan hátt, og samtengt við ættbálk sinn, sem var talinn frá Skjöldungum, og sjáum vér þar einnig Ijósa ástæðu til, að Skjöldunga sögur hafa haldizt svo lengi við á Islandi og verið þar ritaðar. Jón Sigurðsson, Dipl. Isl. I 503. I. Af þeim höfðingjaættum, sem mestu ráða hér á landi síðustu öld þjóðveldistímans, verða Oddaverjar einna fyrstir til að koma veldi sínu á fastan grundvöll, og bera þeir höfuð og herðar yfir aðra goðorðsmenn á síð- asta fjórðungi 12. aldar. En hér fer sem oft ella, að þeir setjast síðan í kyrrsetu, og ber miklu meira á öðr- um síðustu hálfa öldina, sem þjóðveldið stóð. Merkilegastur höfðingi ættarinnar á því tímabili, sem hér ræðir um, er vafalaust Jón Loftsson (1124— 1197). Hann var sonur Lofts prests, Sæmundarsonar prests hins fróða. Hann kemur mjög við sögu landsins um sína daga, og kemur allt, sem frá honum er sagt, í einn stað niður. í bók, sem rituð er af óvinveittum manni og til lofs mótstöðumanni hans, Þorláks sögu hinni yngri, er honum lýst svo, að hann var „mestr höfðingi á íslandi; hann var goðorðsmaðr; hann var inn vísasti maðr á klerkligar listir, þær sem hann hafði numit af sínum forellrum. Hann var djákn at vígslu, raddmaðr mikill í heilagri kirkju. Lagði hann ok mik- inn hug á, at þær kirkjur væri sem bezt setnar, er hann hafði forræði yfir, at öllum hlutum. Fullr var hann af

x

Studia Islandica

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.