Studia Islandica - 01.06.1937, Qupperneq 8

Studia Islandica - 01.06.1937, Qupperneq 8
6 vígja goðorðsmenn.1) Annar liður í sambandi höfðingja við kirkjuna er kirkjueign einstakra manna, sem Þor- lákur biskup reyndi að fyrirkoma, eins og þegar var sagt, og einmitt á þessum sömu áratugum, en Árni biskup síðar, en fengu þó ekki af tekið með öllu. Eins og kunnugt er, varð kirkjueignin fyrst arðvæn- leg með tíundarlögunum 1096, sem sett voru af Gizuri biskupi með tilstuðlun Sæmundar fróða. Ákveðinn hluti tíundar (Va) rann til kirkju, en auk þess hlutu margar kirkjur gjafir og ítök í jörðum, og hefur eign þeirra orðið mjög tekjusæl. Auk þess var fé það, sem kirkju var eignað, skattfrjálst.2) Nú voru lögákveðnar tekjur goðorðsmanna ekki miklar og sjálfsagt ekki nægar til að lyfta höfðingjastéttinni fjárhagslega yfir alþýð- una.3) Á sumum stöðum í Sturlungu er getið um gjöld til goðanna, svo sem sauðatoll eða sauðakvöð,4) en þau geta eins vel verið komin til á Sturlungaöld, og ekki er þeirra getið í héraði Oddaverja. En þeir frændur hafa því betur kunnað að nota sér kirkjueignina — eins og raunar aðrar íslenzkar höfðingjaættir, en Oddaverjar hafa þó að öllum líkindum verið fyrstir að koma undir sig fótum að þessu leyti — og gert það rækilegast. Sæ- mundur fróði lét gera kirkju í Odda „ok auðgaði hann þann stað með stórum tillögum ok miklum ríkdómi".5) Um auð kirkjunnar gefur máldagi hennar góða hug- mynd; hann er frá 1270, og þó að allmikið hafi vafa- laust bætzt við á næstu 50 árum á undan, þá er kjarni 1) Skipun Eiríks erkibiskups um 1190, Dipl. Isl. I 289—91. 2) Grág. II 46, Bisk. I 732—3. 3) Hversu kirkjueignin varð fjárhagsleg undirstaða höfð- ingjanna hefur prófessor Árni Pálsson sýnt fram á í fyrirlestr- um sínum. 4) Sturl. II 85, 153, 275, sbr. II 279, 305. 5) Bisk. I 320, sbr. 693, Dipl. Isl. II 96. Sjálfsagt hefur þó verið þar kirkja áður, því að Sigfús, faðir Sæmundar, var líka prestur (Landn. 1925, bls. 18).

x

Studia Islandica

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.