Studia Islandica - 01.06.1937, Page 12

Studia Islandica - 01.06.1937, Page 12
10 sama er að segja um Pál Sæmundarson og Jón Orms- son. En síðan virðist ekki fara saman vígsla og manna- forræði með þeim frændum; prestur er einn sona Sæ- mundar, Vilhjálmur, en ekki höfðingi, en annars menn úr öðrum knérunnum í ættinni.1) Arons saga segir, að þeir bræður Haraldur Sæmundarson, Vilhjálmur og Filippus hafi elskað Guðmund biskup; þeir voru nógu fjarri svo mörgum stóratburðum, að þeir gátu leyft sér þá rómantík — og aðra. Vafalaust er beztur kjarni í þeim frillusonum Jóns Loftssonar, Páli og Ormi, en þeir urðu skammlífari en Sæmundur. Páll biskup andaðist 1211, en Ormur var veginn 1218. Hvílíkrar virðingar Sæmundur naut, má gjörla sjá á því, að orð fóru milli hans og Haralds jarls Maddaðarsonar í Orkneyjum, að jarlinn gifti honum Langlíf dóttur sína, „ok var þat milli, at Sæmundr vildi eigi sækja brúðkaup í Orkneyjar, en jarlinn vildi eigi senda hana út hingat“.2) Hér hefði þó farið betur minna kapp og meiri forsjá, því að slíkar mægðir gátu vel stutt að því, að Oddaverjar væru enn um langt skeið fyrir öðrum ættum hér á landi. En þetta fór á aðra leið, Sæmundur brá á sömu venju og faðir hans, átti börn með ýmsum konum og flestum ókunnrar ættar, og er ekki annað líklegra en sú blöndun hafi dregið afl úr ættstofni þeirra. Meðan Sæmundur er lífs, verður þeim frændum ekki frýjað þess, að þá skorti stórmennskuhug, en ekki er höfðingskapur hans með fullri giftu til loka, og er ýmist við of eða van. Hann á ekki hinn jafnvæga þrótt Jóns. Og þrátt fyrir mikla virðingu gnæfir hann ekki yfir aðra höfðingja eins og faðir hans. Það er auðséð, 1) Sj'á upptalingvna í greininni Nafngiftir Oddaverja, Bidrag till nordisk filologi tillagnade Emil Olson, Lund 1936, hls. 192 nm. Þar við má bæta Eyjólfi presti (Bisk. I 314), sem hefur Jík- lega verið sonur Jóns Loðmundarsonar (Sturl. I 47, 501). 2) ísl. s., 22. kap., Sturl. I 274.

x

Studia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.