Studia Islandica - 01.06.1937, Page 29

Studia Islandica - 01.06.1937, Page 29
27 gerða af Vita, sem ætlaðar voru til að lesa í kirkj- um, sem Leg. og Aberdeen-brev. sýna). Skal ég nú nán- ar skýra ástæður þeirrar skoðunar. Margt í sögu Magnúsar jarls í Orkn. s. er með klerk- legum blæ, bæði að máli og hugsun. Þetta virðist mér auðveldara að skýra með því, að heimildin hafi verið kirkjulegt rit, heldur en að þessu hafi verið bætt inn í Orkn. s. á eftir, því að það er rótgróið í nálega allri frá- sögn sögunnar af jarli. Og ekki er líklegt, að efnið eitt valdi þessum blæ, því að Orkn. s. er annars ekki með klerklegum blæ eða mærð, og það jafnvel ekki, þegar sagt er frá Rögnvaldi jarli, sem reyndist heilagur eftir dauða sinn. Ástæður þess, að ég hygg það vera einmitt Vita, sem notað er í Orkn. s., eru þessar: Ekki er vitað um aðra gamla ævisögu Magnúsar en þessa. Vér höfum séð, að Vita er notuð í lesi því, sem farið var með á Magnús- messu; það hefur vitanlega verið alþekkt á Islandi. Auk þess má finna ýmsar samsvaranir milli ritanna. Það er að vísu ekki ævinlega vandalaust, því þegar M I er sam- an sett, er öllu sleppt, sem stóð í Orkn. s., og Leg. er ekki nema lítið brot. En oft má þá ráða af líkum. Skal nú gefa yfirlit yfir hið helzta af þessu tagi. 1) Frá bardaganum á Öngulseyjarsundi, þar sem Magnús sat og las saltara, meðan aðrir börðust, og frá því er hann flýði írá Magnúsi berfætt, segir ýtarlega í Orkn. s. (39.—40. kap.). Þessi frásögn er í eðli sinu kirkjuleg, a. m. k. saltaralesturinn: undir- búningur undir helgi hans. I M I er tekinn upp kaflinn úr Orkn. s. En að þessara hluta hafi verið getið í Vita, virðist mega ráða af því, að í öðru hdr. af Leg. hefur verið örstutt frásögn af þessu, líklegast útdráttur af annari lengri (Leg., bls. 300 nm.). 2) Lýsing Magnúsar, sem er í fyrra hluta 45. kap. Orkn. s., er svipuð í M I og M II. Finnur Jónsson telur allan þennan kap. klerklega viðbót í Orkn. s. Það er ekki hægt að segja, að lýsing þessi sé varðveitt í brotunum af Vita í M I á þessum stað né í Leg. En í frásögn M I af veru Magnúsar með Heinreki Engia- konungi (úr Vita) er lýsing Magnúsar og að mörgu lík þessu

x

Studia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.