Studia Islandica - 01.06.1937, Side 32

Studia Islandica - 01.06.1937, Side 32
30 Magnús jarl glaðligr, sem honum væri til veizlu boðit,1) hvárki mælti hann með styg'gð né reiðiorðum, ok eptir þessa ræðu íell hann til bænar ok laut í gaupnir sér ok hellti út mörgum tárum í guðs augliti. Þá er inn helgi Magnús jarl var til dauða ráðinn, bauð Hákon Ófeigi merkismanni sínum at drepa jarl“. Leg. (bls. 301) segir, þegar Magnús var leiddur fyrir Hákon: „_______Hakonis præsentiæ præsentatur, in tali constantia perseverans, ut nec corpus terrore nec mens horrore concuteretur. Nec mora, electus Dei Magnus ab Hakone lictori tradebatur ut capitis sententia plecteretur. Eductus ergo hilari mente et intrepido animo quasi ad epulas invitatus, agonem suum Domino precibus commen- tans ...“. M I (bls. 264) er hér sem fyrr með blönduðum texta, en þó koma fyrir hreinir, eða a. m. k. nærri því hreinir Vita- kaflar, t. d. þessi: „ok leiddr þann veg fyrir hinn ágjarna dóm- ara Hákon jarl. En þessi inn styrki guðs kappi var svá með mik- illi staðfesti i öllum þessum þrautum, at hvárki skalf hans líkamr af hræzlu né hugp- af ótta eða harmi .... Hann var svá glaðr ok kátr, er þeir handtóku hann, sem honum væri til veizlu boðit, ok með svá staðföstum hug ok hjarta, at hvárki talaði hann til sinna móstöðumanna með nokkurri styggð, reiði eða skelfdri raust“. Þá segir frá lífláti hans, og ber heimildum ekki alveg saman. Innan um í Orkn. s. (bls. 118) er ýmislegt kirkjulegt, svo sem að Magnús bað fyrir óvinum sínum og færði guði sjálfan sig að fórn, o. s. frv. Þetta mætti vel vera úr Vita, en M I hefur hér texta úr Orkn. s„ og Leg. er stuttorð, svo að það verður ekki prófað. Að þessu loknu segir Orkn. s., að Magnús signdi sig, „ok !aut hann undir höggit, ok leið önd hans til hirnins", og má það vel vera eftir Vita, sem hefur um þetta mörg orð, einkum í M I (26619-25, stytt í Leg. 3012—3021). 5) Þá kemur í 51. kap. Orkn. s. jarteiknasaga: staðurinn, þar sem Magnús var veginn, varð grænn völlur. Þetta er sjálfsagt úr Vita eða jarteiknabókinni, þó að ekki sé nú til nema texti Orkn. s. 6) Þá segir Orkn. s. (51. og 52. kap.) frá því, að Hákon jarl leyfði ekki, að lík Magnúsar væri flutt til kirkju, en gerði það þó um síðir að bón Þóru, móður Magnúsar, og var það þá flutt til Hrosseyjar. Þetta hefur verið í Vita eða jarteiknabókinni, því að í Leg. stendur (bls. 302) : „Mater vero ejus Yra nomine ad Ha- 1) Hér er þó annað orðalag í M II og dönsku þýðingunni.

x

Studia Islandica

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.