Studia Islandica - 01.06.1937, Qupperneq 36

Studia Islandica - 01.06.1937, Qupperneq 36
34 brátt“. Síðan standa þessi orð: „Svá segir (sagði M I, hefir sagt M II) Holdboði, réttorðr bóndi í Suðreyjum, frá viðræðu þeira; hann var þá með Magnúsi annarr hans manna, er þeir gerðu hann handtekinn". Þetta er mjög merkilegt; hér er nefnd heim- ild þess, sem Orkn. s. hefur fram yfir Vita á þessum stað og líklega í öllum þessum kafla. Höfundur Orkn. s. leiðréttir þannig frásögn Roðberts eftir þessum manni. Það má láta sér detta í hug, að ekki sé víst, hvort Roðbert hefur verið vandur að heim- ildum. í frásögninni af lífláti Magnúsar jarls er Orkn. s. (50. kap.) fyllri; segir hún, að Hákon skipaði fyrst Ofeigi merkismanni sínum að vega að Magnúsi, en hann vildi ekki, þá skipaði Hákon Lífólfi steikara, og vann hann verkið, enda hughreysti Magnús. hann og gaf honum kyrtil sinn. Síðan segir Orkn. s., að Lífólfur svipti hann lífi í einu höggi, en M I (bls. 266) og Leg. (bls. 3023__2), segja, að hann hafi orðið að höggva tvisvar. M I segir, að Hákon hafi skipað að höggva í síðara skiptið. Líklega er hér aftur að ræða um leiðréttingu. Þannig er þá hægt að skýra allt, sem á milli ber. Það er fljótséð á því, sem ég hef nú nefnt, að Orkn. s. ber Hákoni jarli miklu betur söguna og styðst þó við frásögn Holdboða, vinar Magnúsar. Aðrir staðir í Orkn. s. sýna sama hug til Hákonar. Gott dæmi er þetta: „En er synir þeira tóku at megnask, þá gerðusk þeir ofstopa- menn miklir Hákon og Erlingr... ok sterkir ok velmennt- ir um alla hluti. Hákon Pálsson vildi vera fyrirmaðr þeira bræðra; þóttisk hann vera meiri burðum en synir Erlends, því at hann var dóttursonr Hákonar jarls Ivarssonar ok Ragnhildar, dóttur Magnúss konungs góða“. Þegar sænski vísindamaðurinn spáir fyrir Há- koni, segir hann að vísu, að Hákon muni rata í glæp nokkurn, en það er alveg auðséð, að sá maður, sem hann spáir fyrir, muni verða stórmenni. Eftir dauða Magnúsar fór Hákon pílagrímsferð til Róms og gerðist síðan höfðingi mikill og stjórnsamur, setti lög, sem öll- um líkuðu vel, „tóku við slíkt að vaxa vinsældir hans;

x

Studia Islandica

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.