Studia Islandica - 01.06.1937, Síða 44

Studia Islandica - 01.06.1937, Síða 44
42 ast við) og Hrólfs sögu kraka. Að þessar sagnir hafi verið í hávegum hafðar með hinum síðari Oddaverj- um, mun ég brátt minnast á. VI. Snemma á 13. öldinni er rituð saga eins Oddaverja, Páls biskups, en hún er grein af öðrum stofni en þeim, sem hér hefur verið fjallað um; hún er í flokki biskupa- sagna, sem eiga rætur að rekja til íslendingabókar Ara fróða, en spruttu upp í sambandi við helgi Þorláks biskups og Jóns. Biskupasögurnar eru vitanlega kirkju- legar að anda og mótaðar af allt öðrum hugsjónum og hugsunarhætti en þeim, sem ríkti á höfðingjasetrinu Odda. Þó er kannske eitt þessara rita ekki alveg laust við að bera merki Oddaverja, og það er það, sem sízt væri ætlandi: JarteiknabóJc Þorláks helga. Þessa bók lét Páll biskup skrá, og hefur hann vafalaust stjórnað þar pennanum. Af þessu riti óbreyttu er nú til töluvert brot. Tilgangur þess er auðvitað að boða helgi Þorláks biskups, með því að segja frá jarteiknum, sem gerðust fyrir árnaðarorð hans við guð. Það er alkunn reynsla, að slík rit voru á miðöldunum að jafnaði mjög óáreið- anleg, líkt og stríðsfréttir nú á dögum, því að prédik- unin bar dómgreindina og sannleiksástina ofurliði. En í Jarteiknabók Páls er sagt frá öllu með gætni og var- færni, og á einum stað (þegar segir frá sveininum, sem féll í sýrukerið) er beint tekið fram, að sumir menn taki miklu dýpra í árinni um jarteiknina og svo mundi gert, ef þetta hefði borið við 1 útlöndum: „en ek kann ekki meira taka af (o: fullyrða) en svá sem ek nú hefi sagt“.‘) Þetta er sami gagnrýnisandinn, sem kemur fram í Orkneyinga sögu — og líka sama gætnin, sem kemur fram í afstöðu Páls biskups til helgi Þorláks yfirleitt.1 2) Á einum stað kemur fram ósvikinn innlend- 1) Bisk. I 337. 2) Sjá um þetta efni greinina Jarteiknir, Skírnir 1936.

x

Studia Islandica

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.