Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Síða 37
Taílenskur karrýréttur
Hollur réttur sem einfalt er að út
búa og tilvalið er að nýta græn
metið í ísskápnum sem er á sið
asta séns. Mér finnst gott að bera
núðlur, hrísgrjón eða jafnvel góðar
baunir fram með réttinum.
1 msk. kókosolía
300 g gulrætur
1 paprika rauð
½ paprika, appelsínugul
½ brokkólíhaus
1 hvítlauksrif
1 laukur
2 msk. rautt karrýmauk
1 msk. sojasósa
400 g kjúklingabaunir
500 ml kókosmjólk
2 msk. kókósmjöl, gróft
Ferskt kóríander
Kókosflögur
(Núðlur, hrísgrjón eða baunir að
vild)
Byrjið á að skera gulræturnar niður
í þunnar sneiðar og laukinn og
paprikuna smátt.
Skerið brokkólíið gróflega niður.
Mér finnst best að rífa hvítlaukinn
á fínu rifjárni.
Seikið grænmetið á pönnu upp úr
kókosolíu.
Skolið kjúklingabaunirnar vel með
köldu vatni og bætið þeim saman
við grænmetið á pönnunni.
Hellið kókosmjólkinni saman við
og látið malla vel saman við vægan
hita.
Að lokum er rauða karrýmaukinu
bætt saman við ásamt sojasósunni
og öllu leyft að malla vel saman í
um 20-30 mínútur.
Stráið kókosflögum og fersku kórí-
anderi yfir áður en þið berið fram.
Bæði gott að bera fram eitt og sér
í skál en einnig upplagt að sjóða
núðlur með, spæla egg yfir þær
(eggjanúðlur) eða hrísgrjón.
Una í eldhúsinu
Una Guðmundsdóttir mælir með
léttum og bragðmiklum græn-
metisrétti í súldinni sem nú herjar
á landsmenn.
MYNDIR/AÐSENDAR
BESTA LEIÐIN TIL AÐ GEYMA FERSKT KRYDD
Flest ferskt krydd eins og kóríand
er og steinselja kemur í plast
bökkum. Kryddið geymist ekki vel
í þeim sökum raka. Besta leiðin til
að lengja líftíma kryddsins (virkar
fyrir salat líka) er eftirfarandi:
1. Skolið og þerrið vel. Til dæmis
í salatvindu. Eða með eldhús
pappír. Engan raka, takk!
2. Fjarlægið öll skemmd lauf, því að
þau skemma út frá sér.
3. Rúllið kryddinu upp í eldhús
pappír – stilkana öðrum megin.
Varist að setja of mikið í hverja
rúllu.
4. Setjið pappírinn í loftþétt box
eða ziplock poka og geymið í
kæli.
Ef um salat er að ræða er það sett
hreint og þurrt í poka eða loftþétt
box með eldhúspappír í botninn til
að draga í sig raka.
Basilunnendur
athugið!
Aðrar reglur
gilda um basilíku
sem þolir illa kulda –
hún geymist best við stofuhita
– stilkurinn ofan í vatni og poki
yfir laufin. Best er þó að kaupa
hana í potti og geyma úti í glugga
– athugið að ekki má liggja vatn á
rótum hennar. Vökvið oft og lítið.
MATUR 37DV 5. MARS 2021