Fréttablaðið - 06.03.2021, Page 16
Gunnar
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Alls staðar í
byggð ættu að
vera til
áætlanir sem
grípa má til
þegar hætta
steðjar að, af
hvaða toga
sem hún er.
Jón
Þórisson
jon@frettabladid.is
Umbrot á Reykjanesskaganum undan-farið hafa vakið íbúum þessa lands-hluta ugg. Það er ekkert grín að búa við stöðuga jarðvá æ ofan í æ. Í rúmt ár hafa íbúar á svæðinu þurft að búa við óvissu um hvert framhald jarðhrær-
inganna verður, sem hófst með jarðskjálftum og land-
risi við Þorbjörn, ofan Grindavíkur, fyrir rúmu ári.
Íslendingar virðast vera haldnir einhvers konar
hamfarablæti. Í hvert sinn sem mikið gengur á, jarð-
hræringar, snjóflóð eða skriðuföll, þyrpast þeir á
fréttamiðla og endurhlaða síður á netinu í gríð og erg.
Í jarðskjálftunum undanfarið keppast menn á vinnu-
stöðum við að giska á hversu stór skjálftinn var.
Þetta er svo sem góðlátlegt, sérstaklega vegna þess
að ekki virðist mikil hætta á ferðum að þessu sinni.
Nábýli við eldfjöll og jarðhræringar er hluti lífsins
í landinu og það hefur meðal annars leitt til þess að
margir læra jarðvísindi hér á landi. Forsenda þess að
hér er gnótt af heitu vatni og þeirra lífsgæða sem við
njótum í því sambandi, er einmitt vegna þessarar
nálægðar. Því má ekki gleyma. Það er aðdáunar-
vert hversu vandaða jarðvísindamenn Ísland á. Og
greiningartæknin sem þeir beita er mögnuð. Á þekk-
ingu þeirra hljótum við öll að hafa traust.
En því verður ekki á móti mælt að sérkennilegt er
að á svæðinu öllu skuli ekki vera til rýmingaráætlan-
ir eða önnur tiltæk plön, brjótist út eldgos. Yfirmaður
lögreglumála á Suðurnesjum hefur sagt í fjölmiðlum
að nú sé unnið að þeim. Var ekki ástæða til þess fyrr
en nú? Alls staðar í byggð ættu að vera til áætlanir
sem grípa má til þegar hætta steðjar að, af hvaða toga
sem hún er.
Ekki verður hjá því komist að víkja aðeins að
samskiptum fjölmiðla og almannavarnayfirvalda á
svæðinu í tengslum við átökin á Reykjanesi.
Þegar svo virtist að líkleg atburðarás myndi leiða
til að hraun tæki að renna, hvenær sem það yrði, biðu
fjölmiðlamenn klukkutímunum saman við afleggj-
arann að Keili, því fyrirmæli þeirra sem lokuðu
slóðanum voru að engum skyldi hleypt inn á hann.
Fjölmiðlar hafa ríkum skyldum að gegna, sér í lagi í
aðstæðum sem þessum. Þeir eru alvanir að umgang-
ast hættur, gæta sín og vita að á hættusvæðum eru
þeir á eigin ábyrgð. Um leið og skilaboð til almenn-
ings voru að halda sig frá svæðinu var eina glugg-
anum sem almenningur gat skyggnst út um og fylgst
með lokað. Það var ekki fyrr en eftir stímabrak við
almannavarnayfirvöld, þar sem hver vísaði á annan,
að fjölmiðlamönnum var veitt leyfi til að fara inn á
svæðið en með fylgd.
Ísland er land í mótun og hver sem framvindan
verður á Reykjanesskaga eru þetta ekki síðustu
atburðirnir af þessu tagi. Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem takmarkanir sem þessar hefta eðlilega fjölmiðla-
umfjöllun. Þetta þarf að færa til betri vegar og við-
bragðsáætlanir þurfa að ná til þess að þeim sem segja
fréttir sé veittur aðgangur að vettvangi svo hægt sé að
varpa ljósi á yfirvofandi eða orðna atburði.
Land í mótun
Næstu íslenskupróf fyrir umsækjendur um íslenskan ríkis-
borgararétt verða haldin sem hér segir:
• Akureyri: 26. maí 2021, kl. 13.00 hjá Símey, Akureyri.
• Egilsstaðir: 27. maí 2021, kl. 13.00 hjá Austurbrú, Egilsstöðum.
• Ísafjörður: 28. maí 2021, kl. 13.00 hjá Fræðslumiðstöð
Vestfjarða, Ísafirði.
• Reykjavík: Vikuna 31. maí til 4. júní. Próf verða haldin kl. 9.00
og 13.00 hjá Mími, Höfðabakki 9, 110 Reykjavík.
Skráning hefst 16. mars og henni lýkur 12. maí.
Skráning á www.mimir.is
Ekki er hægt að skrá sig eftir að skráningarfresti lýkur.
Verð: 35.000 kr.
Íslenskupróf fyrir umsækjendur
um íslenskan ríkisborgararétt
Í miðborg Parísar er torg sem hét einu sinni Torg Loðvíks XV. Á miðju torginu stóð stytta af Loð-vík XV., konungi Frakka. En styttan fékk ekki að
standa lengi. Árið 1789 hófst franska byltingin. Styttan
af Loðvík var rifin niður. Í hennar stað var reist fallöxi
á torginu sem fékk nýtt nafn: Byltingartorgið. Ríkjandi
konungur var hálshöggvinn, skrifuð var stjórnarskrá
og hugmyndir um lýðræði tóku að breiðast út.
Sex árum fyrr, árið 1783 hófst eitt mesta eldgos
Íslandssögunnar: Skaftáreldar. Hraunkvikan lagði
tugi bæja í eyði og olli eitruð gjóskan mikilli mengun
um allt land og gífurlegum búfjárdauða. Talið er að tíu
þúsund manns, eða fimmtungur þjóðarinnar, hafi látið
lífið.
Það voru ekki aðeins skyndilegar óvinsældir
konunga sem ollu frönsku byltingunni. Eitruð gjóska
úr Skaftáreldum dreifðist um allt norðurhvel jarðar
og olli í mörgum löndum kulda og uppskerubresti.
Margir telja ástæður frönsku byltingarinnar hafa verið
efnahagslegar; fólk krafðist betri lífskjara í kjölfar upp-
skerubrests sem rekja mátti til eldgossins á Íslandi.
Ekki þarf annað en að opna dagblað og það blasir
við: Veröldin er garnhnykill; allt er samtvinnað.
n Í vikunni vöruðu vísindamenn við veikingu haf-
strauma sem f lytja hlýjan sjó norður á bóginn.
„Það er ekkert eitt sem hefur jafnmikil áhrif á hita-
far hér hjá okkur eins og meðalhitinn í sjónum, af
því að við erum eyja úti í miðju Atlantshafi,“ sagði
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur, en hringrás
Golfstraumsins gerir Ísland byggilegt.
n Samkvæmt fréttabréfi landlæknis jókst einmana-
leiki hér á landi á síðasta ári. Af leiðingarnar eru
margþættar en rannsóknir sýna að skortur á
félagstengslum er jafnhættulegur heilsunni og
reykingar.
n Sandfok frá Saharaeyðimörkinni barst nýverið alla
leið til Frakklands. Í ljós kom að sandkornin eru
geislavirk. Rekja má geislarykið aftur til sjöunda
áratugar síðustu aldar þegar Frakkar gerðu til-
raunir með kjarnorkuvopn í eyðimörkinni.
n Bóluefni gegn COVID-19 kláraðist fyrr en ætlað
var í Laugardalshöll í vikunni. „Enginn er óhultur
fyrr en allir eru óhultir,“ sagði Tedros Ghebreyesus,
framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar, og biðlaði til ríkra þjóða að tryggja
fátækum ríkjum aðgengi að bóluefni. Á sama tíma
rifust menn um það hvort þakka ætti einkafram-
takinu eða ríkisframtakinu fyrir þróun COVID-19
bóluefnanna. Hagfræðingurinn Mariana Mazzuc-
ato skammaði heiminn fyrir að hefja á stall
frumkvöðulinn í eintölu og færði rök fyrir því að
allar helstu tækni- og vísindaframfarir síðustu
áratuga – Google, iPhone-inn, framfarir í læknis-
og lyfjafræði – byggðu á afrakstri rannsókna sem
fjármagnaðar hefðu verið með skattfé, rann-
sóknir sem leiddu af sér internetið, GPS-tæknina,
snertiskjáinn og örf löguna.
Tíðarandinn og veruleikinn
Enginn er eyland. Nema einn. Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisf lokksins, stendur keikur í aug-
lýsingu fyrir f lokkinn ásamt tilvitnun: „Okkar stefna
snýst um að veðja á einstaklinginn.“
Fréttir herma að heimurinn sé jafnvel enn tengdari
en við héldum. Samkvæmt nýrri rannsókn doktors-
nema í landafræði við Arizonaháskóla, ollu Skaftár-
eldar hungursneyð meðal Inúíta í Alaska.
Jörð skelfur og eldgos ógnar á ný. Frakkar fjar-
lægðu styttuna af Loðvík XV. í kjölfar eldhræringa
á Íslandi. En ekki einu sinni hamfarir fá haggað
pólitískri hugmyndafræði Sjálfstæðisf lokksins.
Vatnsgreiddir í teinóttu standa Sjálfstæðismenn
staðfastir við sjónvarpsskerm og tilbiðja skurðgoð
sitt frá níunda áratugnum, Gordon Gekko, óskilgetið
af kvæmi Thatcher og Reagan, með Maxí popp í ann-
arri og ÍsCola í hinni, ótengdir við strauma, stefnur,
orsakir, af leiðingar, aðra menn og móður náttúru;
sambandslausir við tíðarandann og veruleikann.
Veröldin er garnhnykill
6 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN