Fréttablaðið - 06.03.2021, Side 18
FÓTBOLTI Knatt spyrnumaður inn
Böðvar Böðvars son hef ur samið við
pólska úr vals deild ar fé lagið Jagiell
onia Bia lystok. Böðvar tilkynnti
þetta á Instagram í gær.
Böðvar, sem gekk til liðs við
Jagiellonia Bialystok frá uppeldis
félagi sínu, FH, árið 2018, var fasta
maður hjá pólska liðinu framan af
yfirstandadi leiktíð en missti svo
sæti sitt í liðinu um áramótin.
„Eins og staðan er núna er ég
samningslaus og er ekki í viðræð
um við neitt félag. Ég er að vonast
til þess að semja við félag í Skandi
navíu áður en glugginn lokar þar,“
segir Böðvar um stöðu mála.
„Ég er á leiðinni heim núna til
Íslands og eins og staðan er núna
mun ég æfa með FH næstu vikurnar
þar til málin skýrast. Ég vonast til
þess að ganga frá mínum málum
sem fyrst,“ segir vinstri bakvörður
inn um framhaldið.
Böðvar varð Íslandsmeistari með
FH árin 2015 og 2016 en hann hefur
spilað fimm Alandsleiki og 11 leiki
með U21 ára landsliðinu á ferli
sínum. – hó
Böðvar vonast
eftir boði frá
Skandinavíu
Böðvar er farinn frá pólska liðinu
Jagiellonia. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
KÖRFUBOLTI Reykjavíkurfélögin
KR, Stjarnan, Valur og Haukar, eru
búin að leggja fram tillögu fyrir
næsta ársþing KKÍ, þar sem aftur
verður deilt um fjölda erlendra leik
manna inni á vellinum á hverjum
tíma. Samkvæmt tillögunni um
breytingu á 15. grein sem fjallar um
erlenda leikmenn, er lagt til að það
þurfi alltaf þrír leikmenn sem eru
uppaldir hjá liði innan KKÍ að vera
inni á vellinum á sama tíma.
Undanþága er veitt þegar leik
maður hefur dvalið á Íslandi sam
fellt í þrjú ár eða lið getur sý nt fram
á að hann sé búfastur á Íslandi.
Önnur undanþága verður fyrir lið
utan suðvesturhorns Íslands, en
landsbyggðalið fá samkvæmt nýju
reglunum heimild til að tefla fram
einum erlendum leikmanni til við
bótar og þurfa því aðeins að hafa
tvo uppalda leikmenn inni á velli
hverju sinni.
Reglubreytingin nær til efstu
deildar og 1. deildar í karla og
kvennaf lokki ásamt bikar og
meistarakeppni KKÍ. Brjóti lið
gegn þessari reglu teljast þau hafa
teflt fram ólöglegum leikmanni og
þurfa að sæta viðurlögum.
Í greinargerðinni sem fylgir til
lögunni kemur fram að vægi upp
alinna leikmanna innan félaga KKÍ
hafi minnkað verulega. Mínútum
hafi fækkað sem og skottilraunum
og fráköstum, en með þessu á að
auka spilatíma íslenskra leikmanna
um 20 prósent.
Mínúturnar sem íslensku leik
mennirnir fá séu yfirleitt undir
lok leikja þegar úrslitin eru ráðin
og skipti því ekki máli. Þetta telja
félögin leiða til þess að áherslan
á yngri f lokka starf minnki og að
yngri leikmenn fái ekki tækifæri til
að þroska hæfileika sína, en flestir
af núverandi landsliðsmönnum hafi
komið upp þegar regluverkið um
fjóra Íslendinga var í gildi.
Til rökstuðnings benda félögin á
að í nýrri skýrslu FIBA um erlenda
leikmenn komi sömu áhyggjur fram
og að fyrir vikið sé búið að grípa til
aðgerða. Í því samhengi er nefnt að
í Svíþjóð, Finnlandi og Noregi sé
búið að grípa til aðgerða.
Þess er getið að til að gæta jafn
ræðis sé gert ráð fyrir að lið utan
suðvesturhorns landsins geti haft
fleiri erlenda leikmenn inn á hverju
sinni, til að mæta þeim sjónarmið
um liða af landsbyggðinni að erfitt
sé að fá leikmenn af höfuðborgar
svæðinu. Línumörkin eru dregin
við Borgarnes og Selfoss samkvæmt
tillögunni.
Aðspurður út í þessa tillögu og
undanþágu fyrir landsbyggðaliðin
segir Viðar Örn Hafsteinsson, þjálf
ari Hattar, að slíkar undanþágur séu
ekki til að bæta regluverk, sem hann
sé fyrir ósammála um.
„Þetta er glórulaust. Allar þessar
undanþágur f lækja þetta enn
meira,“ segir Viðar hreinskilinn,
aðspurður út í f lækjustigið sem er
á bak við tillöguna. „Það verður
örugglega ekki samstaða um þetta.
Segjum sem svo að landsbyggðalið
eins og Tindastóll verði Íslands
meistari á næsta ári með einn auka
erlendan leikmann. Þá verða liðin
fyrir sunnan fljót að fara að kvarta
um að þetta sé ósanngjarnt,“ segir
hann hreinskilinn.
Hann segir það ekki hafa mikil
áhrif á spilatíma yngri leikmanna ef
félög geta samið við nokkra lands
liðsmenn til móts við erlendu leik
mennina.
„Það eru lið að leggja þetta til sem
eru búin að semja við marga lands
liðsmenn undanfarin ár. Get ég þá
ekki alveg eins haft fjóra erlenda
leikmenn? Ég skil ekki muninn þar
á milli. Auðvitað getur verið að fólki
finnist of margir erlendir leikmenn
í deildinni núna, en menn sníða sér
stakk eftir vexti og fara ekki fram
úr sér. Reynslan hefur sýnt að verð
á Íslendingum mun snarhækka með
breytingum sem þessum, þannig að
þetta skiptir ekki miklu máli pen
ingalega.“
Viðar tekur undir að það sé erfitt
að finna rétta leið í þessum málum.
„Með núverandi fyrirkomulagi
fá þeir sem eiga það skilið mínútur
og hlutverk. Efsta deild á ekkert að
vera fyrir alla heldur þá bestu,“ segir
Viðar og heldur áfram:
„Mín sýn er sú að það sé ekki
endilega gott að fækka erlendum
leikmönnum. Það eru allir með
sínar hugmyndir um hvernig breyta
mætti mótafyrirkomulaginu. Mér
dettur helst í hug að að fara í þre
falda umferð í efstu og næstefstu
deild og gefa félögum færi á að vera
með Blið í næstefstu deild. Þar
gætu yngri leikmenn fengið dýr
mætt tækifæri í fullorðinsbolta á
leið sinni í efstu deild. “
kristinnpall@frettabladid.is
Undanþáguhugmyndirnar
aðeins til að flækja hlutina
Fjögur lið á Reykjavíkursvæðinu eru búin að leggja fram breytingartillögu fyrir ársþing KKÍ, sem á að
takmarka fjölda útlendinga inni á vellinum hverju sinni. Í útskýringu kemur fram að þetta sé gert til að
hlúa að yngri leikmönnum deildarinnar með ýmsum undanþágum, sem gera tillöguna talsvert flóknari.
Haukar eru eitt þeirra höfuðborgarliða sem unnu að tillögunni sem myndi einnig ná til Þórs Þ. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Reynslan hefur sýnt
að verð á Íslend-
ingum mun snarhækka með
breytingum sem þessum,
þannig að þetta skiptir ekki
miklu máli peningalega.
Viðar Örn Haf-
steinsson, þjálfari
Hattar
HANDBOLTI Arnar Pétursson, þjálf
ari íslenska kvennalandsliðsins í
handbolta, hefur valið leikmanna
hóp fyrir forkeppni heimsmeistara
móstins 2021 sem fram fer í Skopje
seinna í þessum mánuði.
Þrír nýliðar eru í hópnum en það
eru Saga Sif Gísladóttir, markvörður
Vals, Harpa Valey Gylfadóttir, leik
maður ÍBV og Tinna Sól Björgvins
dóttir hjá HK.
Díana Dögg Magnúsdóttir, leik
maður BSC Sachsen, á ekki heim
angengt í þesssa leiki vegna sótt
varnareglna í Þýskalandi. Elín Jóna
Þorsteinsdóttir, leikmaður danska
liðsins Vendsyssel, er eini leikmað
urinn í hópnum að þessu sinni sem
leikur með erlendu liði.
Riðill íslenska liðsins fer fram
dagana 19. 21. mars. Með íslenska
liðinu í riðli eru Litháen, Grikkland
og heimakonur í NorðurMakedón
íu. Stelpurnar okkar koma saman
11. mars og halda utan 14. mars.
Hópur íslenska liðsins er þannig
skipaður fyrir þetta verkefni:
Markverðir: Elín Jóna Þorsteins
dóttir, Katrín Ósk Magnúsdóttir og
Saga Sif Gísladóttir.
Aðrir leikmenn: Ásdís Guð
mundsdóttir, Birna Berg Haralds
dóttir, Eva Björk Davíðsdóttir,
Harpa Valey Gylfadóttir, Helena
Rut Örvarsdóttir, Hrafnhildur
Hanna Þrastardóttir, Karen Knúts
dóttir, Lovísa Thompson, Ragn
heiður Júlíusdóttir, Rut Jónsdóttir,
Sigríður Hauksdóttir, Steinunn
Björnsdóttir, Sunna Jónsdóttir,
Thea Imani Sturludóttir og Tinna
Sól Björgvinsdóttir. – hó
Þrír nýliðar valdir í hópinn fyrir komandi keppni
Efstu tvö lið riðilsins fara í umspil um sæti á HM á Spáni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SUND Sundkonan Snæfríður Sól
Jórunnardóttir setti í gær nýtt
Íslandsmet í 200 metra skriðsundi í
fimmtíu metra laug þegar hún kom
í mark á 2:00,50 í Vejle í Danmörku.
Með því bætti hún eigið Íslandsmet
um rúma sekúndu, en áður átti hún
metið á 2:01,82.
Með þessum tíma komst Snæ
fríður um leið inn á Evrópumótið í
50 metra laug sem fer fram í Búda
pest síðar á þessu ári og náði um leið
Blágmarki á Ólympíuleikana sem
fram fara í Tokýo í sumar. Blág
markið var 2:00,8 og var Snæfríður
því 0,3 sekúndu á undan því í mark.
Líklegt er að það dugi henni til að
öðlast þátttökurétt í Tókýó, en ef
það dugar Snæfríði varð hún annar
íslenski keppandinn til að tryggja
sér farseðil til Tókýó á eftir sund
kappanum Antoni Sveini McKee.
– kpt
Snæfríður náði
B-lágmarki ÓL
Snæfríður Sól. MYND/SUNDSAMBANDIÐ
Snæfríður Sól var valin
sundkona ársins í fyrra.
6 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT