Fréttablaðið - 06.03.2021, Page 88

Fréttablaðið - 06.03.2021, Page 88
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 550 5000 Margrétar Kristmannsdóttur BAKÞANKAR Eins og lífið gengur oftast fyrir sig f luttu börn okkar hjóna að lokum að heiman og við þurftum að finna taktinn á ný í tveggja manna tangó. Tóm­ leikinn var þrúgandi um stund en smám saman vandist þetta litla heimilishald og kostir komu í ljós. Frelsið var algjört og einungis ákvörðun tveggja hvað gera skyldi að loknum vinnudegi. Spurningin var bara hvað okkur langaði að gera – það hafði á vissan hátt verið endanlega klippt á naf lastrenginn. Það tók þó suma hluti lengur að aðlagast tveggja manna heimilis­ haldi en aðra. Yfir þvottahúsið færðist ró enda virtist vart taka því að þvo af tveimur einstakling­ um og mun sjaldnar var ágrein­ ingur um hvað horfa skyldi á í sjónvarpinu. En í eldhúsinu virtist hins vegar allt óbreytt. Eigin­ manninum, sem um árabil hafði að mestu séð um eldamennskuna, reyndist lífsins ómögulegt að elda fyrir tvo og frystirinn fylltist af afgöngunum, sem þó sjaldan var munað eftir. Og ástæðan kom f ljótlega í ljós. Eftir að kjötborð hurfu svo að segja úr verslunum og allt kjöt er forpakkað miðast skammtastærðir framleiðenda við einhverjar vísitölufjölskyldur. Að finna hæfilegt magn í kvöld­ mat fyrir tvö reyndist erfitt sem er undarlegt þar sem um 50.000 heimili í landinu eru með 1­2 íbúa. Matarsóun er risavaxið vanda­ mál í heiminum í dag enda talið að um þriðjungur af þeim mat sem framleiddur er endi í ruslinu og kolefnissporið er gígantískt. Ef fataframleiðendur bjóða neyt­ endum upp á stærðir XS­S­M­L­ XL­XXL þá hljóta matvælafram­ leiðendur að geta aukið úrvalið. Heimurinn verður að draga út matarsóun og fyrsta skrefið er að geta keypt inn rétt magn í næstu verslun. Eldamennska og afgangar mottumars.is 21. MARS KL. 20.00 ELDBORG HÖRPU Verslun opin 11-20 – IKEA.is – Veitingasvið opið 10:30-20 VEITINGASTAÐURINN Á matseðli í mars Framundan eru bjartari dagar (og nætur) og fögnuðir með vinum og vandamönnum. Við kynnum nýja línu sem sér þér fyrir því sem þarf fyrir veisluna, sama hvert tilefnið er. INBJUDEN er björt og rómantísk með glæsilegum borðbúnaði sem gerir veitingunum hátt undir höfði. Fegurðin felst í smáatriðunum og því finnur þú einnig servíettur, kertastjaka og skrautmuni í þessari yndislegu línu sem auðvelda þér að skapa ógleymanlegar stundir. Komdu fagnandi og skoðaðu INBJUDEN í allri sinni dýrð, við tökum vel á móti þér! Ómótstæðileg veisla © Inter IKEA System s B.V. 2021

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.