Fréttablaðið - 13.03.2021, Blaðsíða 43
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is
Hlutverk þróunar- og þjónustusviðs er að leiða stafræna þróun Fjársýslu ríkisins og stuðla að aukinni
skilvirkni með framþróun í verklagi. Meðal verkefna er ráðgjöf og stefnumótun varðandi fjárhags- og
mannauðskerfi, rekstur og þróun þeirra kerfa ásamt eftirliti með virkni og gæðum. Sviðið kemur
að forgangsröðun og mati þróunarverkefna og verkefnastjórnun þeirra ásamt samningagerð
og samskiptum við birgja. Stuðlað er að samþættingu og þróun ferla, hagnýtingu gagna og
gervigreindar ásamt fræðslu, leiðbeiningum og námskeiðahaldi.
FORSTÖÐUMAÐUR ÞRÓUNAR-
OG ÞJÓNUSTUSVIÐS
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun kostur
• Reynsla í að leiða stafræn umbótaverkefni, breytingastjórnun og endurhönnun ferla
• Reynsla af uppbyggingu, skipulagi og rekstri stórra upplýsingatæknikerfa
• Reynsla af stefnumótun og skilvirkri verkefnastjórnun
• Reynsla af stjórnun teyma og að byggja upp sterka liðsheild
• Leiðtogahæfni og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Mjög góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku
Fjársýslan er þjónustu- og þekkingar-
stofnun á sviði opinberra fjármála
sem sinnir fjölbreyttum krefjandi
verkefnum. Gildin okkar eru þekking,
áreiðanleiki og þjónusta. Við leggjum
áherslu á góðan starfsanda, jákvæð
og opin samskipti og framþróun og
metnað í verkefnum okkar.
Sótt er um starfið á hagvangur.is
Umsókn skal fylgja ferilskrá og
kynningarbréf sem greinir frá ástæðu
umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni
í starfið.
Umsóknarfrestur er til 29. mars n.k. og
verður öllum umsækjendum svarað.
Um 100% starf er að ræða og eru laun
samkvæmt gildandi kjarasamningi
milli fjármála- og efnahagsráðherra og
Félags háskólamenntaðra starfsmanna
stjórnarráðsins.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem,
sverrir@hagvangur.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er kostur
• Mikil þekking og reynsla af vinnu við kjaramál og vinnurétt
• Reynsla af stjórnun mannauðsmála kostur
• Reynsla af breytingastjórnun og endurhönnun ferla kostur
• Reynsla af stefnumótun og skilvirkri verkefnastjórnun
• Reynsla af stjórnun teyma og að byggja upp sterka liðsheild
• Leiðtogahæfni og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Mjög góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku
Hlutverk launasviðs er að skila ríkisaðilum ábata með metnaðarfullri þjónustu á sviði launa og tengdra
mannauðsmála. Sviðið ber ábyrgð á launaafgreiðslu ríkisins. Unnið er með Kjara- og mannauðssýslu
ríkisins að túlkunum og útskýringum kjarasamninga, ráðgjöf, þróun og stefnumótun í mannauðs- og
launakerfum, tölfræðivinnslu, upplýsingagjöf, fræðslu, gerð leiðbeininga og námskeiðahald. Mikil
samskipti eru við ýmis ráðuneyti og aðra ríkisaðila.
FORSTÖÐUMAÐUR LAUNASVIÐS
FORSTÖÐUMENN Í TVÆR LYKILSTÖÐUR
Fjársýsla ríkisins veitir ríkisaðilum fjölbreytta þjónustu á sviði opinberra fjármála og stuðlar
að skilvirku verklagi á því sviði. Tækniþróun undanfarinna ára hefur opnað á margvísleg
tækifæri í sjálfvirknivæðingu ferla og framþróun sem unnið er markvisst að því að nýta. Við
leitum að öflugum leiðtogum sem hafa metnað og getu til að nýta þessi tækifæri og vera
hluti af stafrænni vegferð næstu ára. Störfin heyra beint undir fjársýslustjóra og eru hluti af
stjórnendateymi.
ATVINNUBLAÐIÐ 3LAUGARDAGUR 13. mars 2021