Fréttablaðið - 13.03.2021, Blaðsíða 48
w w w.heilsustofnun.isBerum ábyrgð á eigin heilsu
LAUS STÖRF HJÁ HEILSUSTOFNUN Í HVERAGERÐI
Læknir
Óskum eftir að ráða endurhæfingarlækni eða
annan sérfræðilækni sem hentar starfseminni
vel svo sem heimilislækni, lyflækni,
öldrunarlækni eða geðlækni.
Starfslýsing: Viðtal og skoðun nýrra sjúklinga
og gerð meðferðaráætlunar, þverfagleg
teymisvinna, tilfallandi læknisstörf og bakvaktir.
Um framtíðarstarf er að ræða en
sumarafleysing kemur einnig til greina.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst. Reynsla og áhugi á rannsóknarvinnu er
kostur.
Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Sálfræðingur
Sálfræðingur óskast til starfa. Um framtíðar-
starf er að ræða en sumarafleysing kemur
einnig til greina. Starfið er fjölbreytt og felst
í viðtölum við dvalargesti, að veita almenna
fræðslu og leiða meðferðarhópa, auk
þátttöku í þverfaglegum teymum.
Á síðustu árum hefur áhersla verið lögð á
hvernig núvitund og samkennd nýtist
í meðferðarstarfi.
Starfshlutfall er
eftir samkomulagi.
Sjúkraþjálfari
Sjúkraþjálfari óskast til starfa
í sumar. Starfið er fjölbreytt, auk
hefðbundinnar sjúkraþjálfunar
felur það í sér kennslu í hóptímum,
fræðslu, útigöngur og þátttöku
í þverfaglegu teymisstarfi.
Starfshlutfall er 100%
Íþróttakennari
Íþróttakennari óskast til starfa
í sumar. Starfið er fjölbreytt,
einstaklingsþjálfun og kennsla
í hóptímum, s.s. vatnsleikfimi
og leikfimi, fræðsla, göngur
og þátttaka í þverfaglegu
teymisstarfi.
Starfshlutfall er 50-80%
Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
Möguleiki er á húsnæði á staðnum.
Einnig ekur starfsmannarúta til og frá Olís við Rauðavatn í Reykjavík.
Umsóknir með ferilskrá berist til starfsmannastjóra á aldis@heilsustofnun.is
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á:
heilsustofnun.is/heilsustofnun/storf-i-bodi
Nánari upplýsingar veita:
G. Birna Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri lækninga – birna@heilsustofnun.is
Steina Ólafsdóttir deildarstjóri sjúkraþjálfunar – steina@heilsustofnun.is
Aldís Eyjólfsdóttir starfsmannastjóri – aldis@heilsustofnun.is s. 4830300
Heilsustofnun er ein stærsta endurhæfingarstofnun landsins og veitir árlega 1350 einstaklingum
endurhæfingarþjónustu skv. samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Á Heilsustofnun fer fram
einstaklingsmiðuð læknisfræðileg endurhæfing sem stjórnað er af þverfaglegum teymum.
Áhersla er á að efla líkamlega, andlega og félagslega færni einstaklinga, auka lífsgæði og styrkja
þá til athafna daglegs lífs. Helstu meðferðarsvið eru verkjameðferð, meðferð vegna streitu
og kulnunar, offitumeðferð, geðendurhæfing, hjartaendurhæfing, öldrunarendurhæfing og
endurhæfing eftir alvarleg veikindi, aðgerðir eða slys.
Hæfniskröfur:
• Íslenskt starfsleyfi og góð íslenskukunnátta
• Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
• Reynsla af þverfaglegu meðferðarstarfi er kostur
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Stjórnkerfi flutningskerfis raforku á Íslandi byggir á rekstraröryggi tölvukerfa og því
er um kreandi og ábyrgðarmikið starf að ræða. Linux kerfisstjóri hefur umsjón með
daglegum rekstri upplýsingatæknikerfa Landsnets og hefur eftirlit með aöstum
og rekstraröryggi kerfanna. Upplýsingatækni gegnir lykilhlutverki í framþróun
fyrirtækisins og framundan eru kreandi og skemmtileg verkefni í samstarfi við
innlenda og erlenda birgja. Um er að ræða nýtt starf í samhentu UT teymi okkar.
Umsóknarfrestur er til 28. mars 2021. Sótt er um starfið á landsnet.is. Með umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá
og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist
í starfi. Nánari upplýsingar veitir Ásmundur Bjarnason, forstöðumaður upplýsingatækni, asi@landsnet.is.
Við leitum að Linux sérfræðingi með
ríka öryggisvitund til að takast á við
spennandi verkefni í uppbyggingu
grunninnviða á sviði upplýsingatækni.
Hæfniskröfur
• Reynsla af rekstri og viðhaldi á Linux innviðum
• Reynsla af sýndarumhverfum er kostur
• Reynsla af rekstri gagnagrunna er kostur
• Þekking á skeljaskriftum er kostur
• Góð samskiptafærni og geta til að vinna í teymi
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
LINUX
SÉRFRÆÐINGUR
Starfið felur í sér spennandi og kreandi verkefni á umbótasinnuðum og
metnaðarfullum vinnustað þar sem áhersla er lögð á vellíðan og ánægju alls starfsfólks.