Fréttablaðið - 13.03.2021, Blaðsíða 12
RÚSSLAND Rússneski stjórnarand-
stæðingurinn Aleksei Navalný var
færður úr fangelsi þar sem hann var
í sóttkví. Þetta segir Vadim Kobzev,
einn af lögfræðingum Navalny, í
viðtali við fréttastofu Reuters.
Kobzev seg ist ha fa heim-
sótt Navalný í fangelsið á fimmtu-
daginn, en degi síðar hafi annar
lögfræðingur í teyminu fengið
þær upplýsingar að Navalný hafi
verið færður en ekki fengið svar um
hvert. Ríkisfréttaveita Rússlands
greindi síðar frá því að hann væri
nú í nærliggjandi fangabúðum.
Navalný var handtekinn í síðasta
mánuði og dæmdur í tveggja og
hálfs árs fangelsisvist fyrir meint
brot á skilorði. Í kjölfarið brutust
út mikil mótmæli víða til stuðnings
Navalný. – atv
Navalný var handtekinn
í síðasta mánuði og dæmdur
í fangelsi fyrir skilorðsbrot.
Þjóðarframleiðslan
dróst saman um tæp 3
prósent í janúar.
BRETLAND Útflutningur Bretlands
til Evrópusambandslanda féll um
rúmlega 40 prósent í janúar og inn-
flutningur um tæp 29 prósent. En
janúar var fyrsti mánuðurinn eftir
að aðlögunartímabilinu lauk vegna
útgöngu Bretlands úr Evrópusam-
bandinu. Þetta er hæsta fall í inn- og
útflutningi Bretlands í áratugi. Alls
féll þjóðarframleiðslan um 2,9 pró-
sent samkvæmt hagstofu Bretlands.
Hluti af ástæðunni fyrir minnk-
andi vöruskiptum er að heild-
salar beggja vegna Ermarsundsins
höfðu birgt sig upp af varningi fyrir
áramót. Þetta gildir þó ekki fyrir
ferskvöru eins og fisk f luttan frá
Bretlandi og grænmeti f lutt frá Evr-
ópu. Önnur stór breyta er truflanir
á landamærunum og mikið skjala-
fargan sem hafa haft mikil áhrif á
vöruskipti, ekki síst með ferskvöru.
Þó að minnkun þjóðarframleiðsl-
unnar í janúar sé mikil í sögulegu
samhengi er hún minni en bresk
stjórnvöld áttu von á. Búist var við
að hún myndi falla um allt að 4,9
prósent. Talið er að faraldurinn
skipti þar mestu og þau högg sem
breskum efnahag hafa verið greidd
í faraldrinum. Í apríl, þegar fyrsta
bylgja faraldursins gekk yfir, féll
þjóðarframleiðslan um 20 prósent.
Stjórnvöld búast við að vöru-
sk ipti v ið Ev rópusambandið
aukist aftur þegar uppsafnaðar
birgðir dvína og fyrirtæki aðlagist
breyttu kerfi á landamærunum.
Talsmenn atvinnulífsins hafa hins
vegar áhyggjur af því að vandinn
verði viðvarandi. Bæði vegna
lengri afhendingartíma og aukins
kostnaðar. Þá er tollgæsla á landa-
mærunum ekki enn komin í það
horf sem hún á að vera samkvæmt
lögum og á þessu ári verður eftirlit
og flækjustigið aukið. – khg
Hrun í vöruskiptum
Eftir útgöngu Breta úr Evrópusambandinu hefur orðið hrun í vöruskiptum
milli Breta og ríkja sambandsins. Meðal ástæðna er birgðasöfnun heildsala.
NÁTTÚRUHAMFARIR Matthias Vogt
sem rekur þyrluþjónustuna Volc-
ano Heli segist finna fyrir miklum
áhuga á mögulegu eldgosi á Reykja-
nesskaga erlendis frá. „Fyrirtækja-
nafnið leiðir til þess að erlendir fjöl-
miðlar hafa áhuga,“ segir Matthias,
um áhuga erlendra fjölmiðla á sam-
starfi við fyrirtæki hans ef það færi
að gjósa á Reykjanesskaga.
Einhverjir fjölmiðlar eru komnir
til landsins og von á fleirum komi til
eldgoss á næstu vikum en Matthias
sem kemur frá Liecht enstein seldi
meðal annars efni til fjölmiðla í
gosinu í Holuhrauni árið 2014.
„Þessar fréttir af mögulegu gosi
hafa vakið athygli úti um allan
heim. Það var fréttaf lutningur af
þessu í Bandaríkjunum og Evrópu
og margir bíða spenntir eftir hvað
gerist næst.“ Aðspurður tók hann
undir að fjölmiðlamenn gætu fjöl-
mennt til landsins fari að gjósa.
„Ég veit að það eru tveir fjöl-
miðlamenn staddir á Íslandi vegna
ástandsins. Svo eru margir gos-
gemlingar (e. volcano hunters) sem
gætu reynt að komast til Íslands ef
gosið hefst. Þau reyna að sjá öll eld-
gos sem hægt er að sjá. Ég kynntist
nokkrum gosgemlingum í eldgos-
inu í Holuhrauni, þau eru mjög
spennt eftir fréttum og sum eru til-
búin að ferðast til Íslands ef það fer
að gjósa.“
Nokkrir hafa sent fyrirspurnir
um sóttkví til Vogt sem bendir
áhugasömum á regluverk íslenskra
stjórnvalda. „Það hafa komið þó
nokkrar fyrirspurnir að utan um
sóttkvína. Einhverjir hafa velt fyrir
sér möguleikanum á vinnusóttkví
en ég hef bara bent þeim á opinber-
ar leiðbeiningar um sóttkví.“ – kpt
Fjölmiðlar ytra spyrja mikið um eldgos
JAPAN Fimm fyrrverandi forsætis-
ráðherrar Japans hafa lýst yfir að
landið ætti að hætta allri kjarn-
orkuframleiðslu.
Þetta kemur fram í sameigin-
legri yfirlýsingu þeirra sem gefin
var út á fimmtudaginn, þegar tíu
ár voru liðin síðan jarðskjálfti og
f lóðbylgja riðu yfir Japan og ollu
neyðarástandi í kjarnorkuveri í
Fukushima-héraði. Þá létust um
16 þúsund manns og um hundrað
þúsund flúðu heimili sín.
Framtíð kjarnorku í landinu
hefur verið mikið rædd að undan-
förnu og hefur Yukio Edano, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Japan, talað
fyrir útrýmingu kjarnorku í land-
inu. Hann viðurkennir þó að það
verði ekki auðvelt verk „Á þessum
tíu árum höfum við séð að japanskt
samfélag getur þrifist án kjarnorku-
vers. Ég vil búa til samfélag sem
reiðir sig ekki á kjarnorku,“ sagði
Edano á blaðamannafundi í vik-
unni. – atv
Japanir efast nú
um kjarnorku
Hreinsunaraðgerðir standa enn yfir
í Fukushima. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Navalný færður í fangabúðir
Ginsburg komin til Brooklyn
Stytta af Ruth Bader Ginsburg, fyrrverandi dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna, var af hjúpuð í Brooklyn í New York í gær. Styttan var gerð
af listamönnunum Gillie and Marc en það voru demókratarnir Rodneyse Bichotte Hermelyn, þingkona á ríkisþingi New York og Eric Adams,
borgarfulltrúi í New York borg, sem af hjúpuðu styttuna. Ginsburg lést 18. september 2020 og hefði orðið 88 ára næsta mánudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Boris Johnson undirritaði samning við ESB í desember. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
1 3 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð