Fréttablaðið - 20.03.2021, Page 10
Gerum heiminn
grænan saman
Ársfundur 2021
Í streymi þriðjudag
23. mars kl. 14
Hlekkur á streymið
á landsvirkjun.is
TRÚMÁL Gyðingar á Íslandi hafa
fengið staðfestingu sýslumanns á
trúfélagsskráningu og brátt verður
hægt að skrá sig í félagið. Stofnfélag-
ar eru á fimmta tug og eingöngu er
beðið eftir kennitölu fyrir hið nýja
félag.
Rabbíni félagsins, hinn banda-
ríski Avi Feldman, segir að ferlið
hafi tekið rúmlega ár og hafi tafist
vegna faraldursins. Miðað við
það skriffinnskufargan sem hann
er vanur í Bandaríkjunum gekk
skráningin þó tiltölulega auðveld-
lega fyrir sig. Margir í samfélagi
gyðinga hafi komið að því að gera
þetta að veruleika.
„Öllum er frjálst að taka þátt
í starfinu og við þrýstum ekki á
fólk að skrá sig. En ég hef trú á því
að félögum muni fjölga á komandi
árum,“ segir Avi sem f lutti ásamt
fjölskyldu sinni til Íslands árið 2018.
„Við erum himinlifandi með
skráninguna. Þegar við komum til
Íslands vissum við að þetta væri
mikilvægt skref fyrir samfélag
gyðinga og höfum lagt mikla vinnu
í þetta,“ segir Avi. Hann bendir þó
á að gyðingar hafi iðkað trú sína á
Íslandi í áratugi án þess að vera í
skráðu trúfélagi.
Samkvæmt lögum um kristnisjóð
er sveitarfélögum skylt að leggja til
ókeypis lóðir undir kirkjur og með
lögjöfnun hefur þetta verið túlkað
sem svo að þetta eigi við um önnur
trúfélög líka. „Við stefnum á að
byggja sýnagógu í framtíðinni og
skráningin flýtir þeirri þróun,“ segir
Avi en segir að félagið geti starfað
fram að því. Sérstakt hús sé ekki
nauðsynlegt heldur geti sýnagóga
verið skilgreind sem staður þar sem
gyðinglegir viðburðir fari fram. – khg
Gyðingar fá trúfélag
og stefna á sýnagógu
Félag gyðinga á Íslandi hefur fengið formlega staðfestingu á trúfélagsskrán-
ingu og getur brátt hafið skráningar. Rabbíni Íslands segir skráninguna mjög
mikilvæga og flýta fyrir því að hægt verði að byggja sýnagógu til trúarathafna.
Avi flutti ávarp á ljósahátíð í Reykjavík 2019. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Við stefnum á að
byggja sýnagógu í
framtíðinni og skráningin
flýtir þeirri þróun.
Avi Feldman,
rabbíni Íslands
2 0 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð