Fréttablaðið - 20.03.2021, Side 20
Þetta hefur verið
þaulrætt í Belgíu í
tæpa tvo áratugi án árang-
urs.
Tom Boudeweel, íþróttafrétta-
maður í Belgíu.HN
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Auglýst er eftir umsóknum um árlega styrki úr
Barnamenningarsjóði Íslands. Sjóðurinn er átaksverkefni
til fimm ára, stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldisins á
hátíðarfundi Alþingis 18. júlí 2018.
Hlutverk sjóðsins er að styðja fjölbreytta starfsemi á sviði
barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka
þátttöku barna í menningarlífi. Verkefni sem stuðla að
lýðræðislegri virkni barna í samfélaginu eða taka mið af inntaki
Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hafa sérstakt vægi.
Áhersla er lögð á samstarf tveggja aðila eða fleiri, svo sem
menningarstofnana, skóla, listafólks og félagasamtaka og er
hvatt til þess að samstarfsverkefni séu unnin í samstarfi ólíkra
aðila, t.d. að stofnanir leiti samstarfs við skapandi einstaklinga
fremur en við aðrar stofnanir.
Umsóknarfrestur rennur út 7. apríl 2021 kl. 15.00.
Upplýsingar og umsóknargögn er að finna á
barnamenningarsjodur.is. Umsóknum og lokaskýrslum
skal skila á rafrænu formi.
Rannís, Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Sími 515 5800, barnamenningarsjodur@rannis.is
Styrkir úr
Barnamenningarsjóði
Umsóknarfrestur er til 7. apríl kl. 15.00 FÓTBOLTI Tom Boudeweel, f jöl-
miðlamaður frá Belgíu, segir að
þrátt fyrir að hugmynd um þessa
sameiginlega deildarkeppni Belgíu
og Hollands í knattspyrnu karla
sé komin vel á veg séu enn margar
hindranir í veginum sem þarf að
yfirstíga áður en hún getur orðið
að veruleika.
„Þetta hefur verið þaulrætt í Belgíu
í tæpa tvo áratugi án árangurs. Það
er engin tilviljun að þessi umræða
sé á lofti núna. Club Brugge sem er í
ákveðnum sérflokki í Belgíu eins og
sakir standa er með langtíma mark-
mið um að komast nær stærstu
félögum Evrópu. Félagið skráði sig
á hlutabréfamarkað á dögunum og
góður árangur liðsins í Meistara-
deildinni undanfarin ár hefur gert
það að verkum að félagið er á öðrum
stað fjárhagslega en önnur lið hér-
lendis. Fyrir vikið lögðu þeir fram
þessa tillögu sem var samþykkt af
félögunum í tveimur efstu deildun-
um,“ segir Tom en lætur þess getið
að ekki séu allir á þessu máli.
„Það er ekki samstaða um þetta
hjá félögunum í landinu. Ég held að
það sé alveg klárt að deildarkeppni
án sterkustu liða landsins mun ekki
skapa jafn mikla spennu. Þá verður
að líta til þess að lið á frönskumæl-
andi svæðum hafa bent á að þau eigi
meiri samleið með frönskum liðum
en hollenskum.“ segir Tom og bætir
við:
„Stuðningsmannahópar hafa
bent á að með þessu væri gengið
gegn sögu félaganna. Einhverjir
nágrannaslagir myndu til dæmis
mögulega heyra sögunni til. Þar að
auki myndi þetta leiða til aukinna
ferðalaga stuðningsmanna.“
Hollenski umboðsmaðurinn
Guyon Philips, sem Fréttablaðið
ræddi við, telur að það verði afar
erfitt að sannfæra hollensku félögin
um að setja deildina á laggirnar en
það sé ekki útilokað. Fjárhagslega
geti þetta reynst félögum vel.
„Þessi deildarkeppni mun ekki
verða að veruleika fyrr en í fyrsta
lagi árið 2024 eins og staðan er
núna. Fyrirkomulag deildanna er
mismunandi í Belgíu og Hollandi
og það þarf að komast að samkomu-
lagi um hvaða leið verði farin í þeim
efnum. Þá er stór munur að í Belgíu
geta félög sem eru ekki atvinnu-
mannafélög farið upp á milli deilda
í neðri deildum á meðan það þarf
fyrr að gera félög að atvinnu-
mannafélögum í Hollandi. Það er
meiri spenna fyrir þessu í Belgíu
eins og sakir standa og ég finn fyrir
meiri efasemdum í hollensku knatt-
spyrnusamfélagi,“ segir Philips
um stöðu mála hvað viðræðurnar
varðar.
Guy tekur undir að fjárhagsleg
hlið samkomulagsins hafi ákveðið
aðdráttaraf l. „Það er alveg rétt að
fjárhagslegur ábati af þessu getur
orðið töluverður og ég held að
það sé langt síðan félög í þessum
löndum stóðu jafn illa fjárhagslega
vegna kórónaveirufaraldursins. Það
er aldrei að vita hvað gerist þegar
félögin sjá hvað þau geta fengið út úr
þessu fjárhagslega. Það er samt sem
áður mín tillaga núna að íhalds-
semin fái að ráða ríkjum í Hollandi
og það verði ekki samþykkt að fara
þessa leið þar í landi.“
Stór hluti ástæðunnar fyrir því að
belgísk félög eru spennt fyrir sam-
eiginlegri deild er fjárhagslegur.
Fjármálafyrirtækið Deloitte telur
að þessi deild gæti skilað markaðs-
og sjónvarpstekjum upp á 476 millj-
ónir evra á ári. Það er ekki nálægt
því sem fimm sterkustu deildirnar
skila félögunum þar en minnkar
bilið þó umtalsvert. Gangi þessar
hugmyndir upp yrði þessi deild lík-
lega sjötta sterkasta deildarkeppni
í Evrópu og myndi færa belgísk og
hollensk lið nær því að verða aftur
samkeppnishæf í Evrópukeppnum
félagsliða.
Þörfin fyrir stofnun BeNe Liga
er ekki síst sprottin út frá þeirri
staðreynd að belgísk og hollensk
félög hafa ekki riðið feitum hesti
frá Evrópukeppnum félagsliða líkt
og félögin gerðu á níunda áratug
síðustu aldar og framan af þeim
tíunda.
Undanfarna áratugi hafa lið úr
sterkustu deildarkeppnum Evrópu,
Englandi, Frakklandi, Ítalíu, Spáni
og Þýskalandi, verið allsráðandi í
keppnum innan UEFA. Sautján ár
eru liðin síðan félag utan Englands,
Ítalíu, Spánar og Þýskalands vann
Meistaradeild Evrópu.
Staðan er aðeins öðruvísi í Evr-
ópudeildinni en þar er Ajax þó
eina liðið utan fimm sterkustu
deildanna sem hefur komist í úrslit
keppninnar síðustu fimm tíma-
bilin. Tíu ár eru liðin frá því að lið
utan fimm sterkustu deildanna
vann Evrópudeildina síðast en á
áratugunum fyrir aldamótin voru
reglulega lið frá minni deildum
í úrslitaleikjum Evrópukeppni
félags- og meistaraliða.
hjorvaro@frettabladid.is
Hugmyndin er góð en
mörg ljón í veginum
Á dögunum samþykktu stærstu knattspyrnufélög Belgíu að fara í viðræður
um stofnun sameiginlegrar deildarkeppni með sterkustu félagsliðum Hol-
lands. Hugmyndin hefur verið rædd í þessum löndum síðustu tvo áratugina.
Ajax vann Meistaradeild Evrópu árið 1995 og komst í undanúrslit í sömu keppni árið 2018. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
HANDBOLTI Stelpurnar okkar í
handboltalandsliðinu töpuðu með
sjö marka mun gegn Norður-Make-
dóníu í undankeppni HM 2021 í
gær. Leiknum lauk með 24-17 sigri
heimakvenna í Skopje þrátt fyrir
frábæra byrjun íslenska liðsins.
Þetta var fyrsti leikur kvenna-
landsliðsins af þremur á þremur
dögum í Skopje. Í dag mæta þær
Grikklandi og ljúka riðlakeppninni
gegn Litháen á morgun. Tvö efstu lið
riðilsins fara í tuttugu liða umspil
um miða á HM.
Ísland lék frábærlega fyrsta kort-
er leiksins og kom Steinunn Björns-
dóttir Íslandi 7-2 yfir um miðbik
fyrri hálf leiks. Steinunn meiddist
í markinu en við það hrundi leikur
íslenska liðsins og leiddu heima-
konur í hálfleik.
Ísland byrjaði seinni hálf leik-
inn vel og náði forskotinu á ný, en
eins og í þeim fyrri hrundi sóknar-
leikurinn síðasta korterið. Með því
náðu heimakonur 10-2 kaf la sem
innsiglaði sigurinn.
Á seinustu fimmtán mínútum
fyrri- og seinni hálf leiks breytt-
ist leikurinn með nítján mörkum
Norður-Makedóníu gegn þremur
mörkum íslenska liðsins . – kpt
Kaflaskipt í tapi í Skopje
Stelpunum tókst ekki að fylgja eftir
góðri byrjun í Skopje í gær. MYND/HSÍ
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
2 0 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT