Fréttablaðið - 20.03.2021, Side 35
Þverholti 2 | 270 Mosfellsbær | Sími 525 6700 | mos.is
Skólastjóri Varmárskóla
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf kennara og kennslureynsla skilyrði
• Viðbótarmenntun í stjórnun og/eða á sviði uppeldis- og
menntunarfræða er skilyrði
• Þekking á stjórnsýslu, fjármálastjórnun og stefnumótunarvinnu
• Reynsla á sviði stjórnunar í mennta- og menningarstofnunum
• Þekking á sviði upplýsingatækni
• Frumkvæði, sjálfstæði og góðir skipulagshæfileikar
• Framúrskarandi lipurð og færni í samskiptum
• Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Almenn tungumálakunnátta
Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2021.
Sækja skal um starfið á ráðningarvef Mosfellsbæjar, www.mos.is/storf. Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir
frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar veitir Linda Udengård framkvæmdastjóri
fræðslu- og frístundasviðs í síma 525-6700 eða á linda@mos.is. Um framtíðarstöðu er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru
samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru
leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Nýr skóli á gömlum grunni
Mosfellsbær er í fararbroddi í nýbreytni í skólastarfi. Á næsta skólaári verður
Varmárskóli fyrir 1.-6. bekk með um 400 nemendur. Skólinn starfar í anda
uppbyggingarstefnunnar og leggur áherslu á útinám.
Skólastjóri Varmárskóla ber ábyrgð á starfsemi skólans, rekstri og
mannauðsmálum. Hann gegnir lykilhlutverki í að móta góðan skólabrag og
samstarfsvettvang skóla og íbúa. Skólastjóri ber ábyrgð á að skólinn starfi í
samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá grunnskóla og stefnumörkun
Mosfellsbæjar.
Mosfellsbær leitar eftir metnaðarfullum einstaklingi sem hefur víðtæka
þekkingu á skólastarfi, býr yfir áræðni og leiðtogafærni.
Fyrirmyndarfyrirtæki
2020
hagvangur.is
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára