Fréttablaðið - 20.03.2021, Page 35

Fréttablaðið - 20.03.2021, Page 35
Þverholti 2 | 270 Mosfellsbær | Sími 525 6700 | mos.is Skólastjóri Varmárskóla Menntunar- og hæfniskröfur: • Leyfisbréf kennara og kennslureynsla skilyrði • Viðbótarmenntun í stjórnun og/eða á sviði uppeldis- og menntunarfræða er skilyrði • Þekking á stjórnsýslu, fjármálastjórnun og stefnumótunarvinnu • Reynsla á sviði stjórnunar í mennta- og menningarstofnunum • Þekking á sviði upplýsingatækni • Frumkvæði, sjálfstæði og góðir skipulagshæfileikar • Framúrskarandi lipurð og færni í samskiptum • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti • Almenn tungumálakunnátta Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl 2021. Sækja skal um starfið á ráðningarvef Mosfellsbæjar, www.mos.is/storf. Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar veitir Linda Udengård framkvæmdastjóri fræðslu- og frístundasviðs í síma 525-6700 eða á linda@mos.is. Um framtíðarstöðu er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni. Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Nýr skóli á gömlum grunni Mosfellsbær er í fararbroddi í nýbreytni í skólastarfi. Á næsta skólaári verður Varmárskóli fyrir 1.-6. bekk með um 400 nemendur. Skólinn starfar í anda uppbyggingarstefnunnar og leggur áherslu á útinám. Skólastjóri Varmárskóla ber ábyrgð á starfsemi skólans, rekstri og mannauðsmálum. Hann gegnir lykilhlutverki í að móta góðan skólabrag og samstarfsvettvang skóla og íbúa. Skólastjóri ber ábyrgð á að skólinn starfi í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá grunnskóla og stefnumörkun Mosfellsbæjar. Mosfellsbær leitar eftir metnaðarfullum einstaklingi sem hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, býr yfir áræðni og leiðtogafærni. Fyrirmyndarfyrirtæki 2020 hagvangur.is Mest lesna atvinnublað Íslands* Atvinnublaðið Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621 *Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.