Fréttablaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 45
Póst- og fjarskiptastofnun er eftirlitsstofnun á
fjarskiptamarkaði ásamt því að hafa veiga-
mikið hlutverk á sviði net- og upplýsinga-
öryggis mikilvægra innviða hér á landi.
Tækniþróun á sviði fjarskipta og veitingu
þjónustu mikilvægra innviða endurspeglast
í fjölbreyttum og krefjandi verkefnum innan
stofnunarinnar þar sem ríkt samtal milli
mismunandi sérfræðinga er lykilforsenda
árangurs.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur
um færni viðkomandi til að gegna
starfinu. Umsækjandi þarf að gangast
undir og standast bakgrunnsskoðun og
öryggisvottun ríkislögreglustjóra.
Umsjón með starfinu hafa Jensína Kristín
Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og
Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is).
Fagstjóri eftirlits með öryggi
net- og upplýsingakerfa
Póst- og fjarskiptastofnun leitar að fagstjóra eftirlits með net- og upplýsingaöryggi á sviði
fjarskipta, stafrænna grunnvirkja og stafrænnar þjónustu sem og ráðgjafar við eftirlit annarra
eftirlitsstjórnvalda á mismunandi sviðum atvinnulífsins.
Um er að ræða spennandi starf í nýjum og vaxandi málaflokki innan stofnunarinnar á sviði net-
og upplýsingaöryggis stafrænnar þróunar, þ.m.t. framtíðar fjarskiptaneta og kerfa mikilvægra
innviða hér á landi.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd eftirlits á sviði net- og upplýsingaöryggis.
• Leiðir faglega aðstoð stofnunarinnar við önnur eftirlitsstjórnvöld á grundvelli
samhæfingarhlutverks stofnunarinnar.
• Aðkoma að uppbyggingu á framkvæmd eftirlits mikilvægra innviða.
• Samskipti við hagaðila, þ.m.t. stjórnvöld, eftirlitsskylda aðila varðandi
uppbyggingu og framkvæmd eftirlits.
• Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi á sviði net- og upplýsingaöryggis.
• Ráðgjöf og upplýsingagjöf varðandi net- og upplýsingaöryggi af hálfu stofnunarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verk-, tækni- eða tölvunarfræði eða sambærilegu.
• Þekking á stöðlum á sviði stjórnskipulags upplýsingaöryggis, þ.m.t. ISO-27001 er skilyrði.
• Reynsla á sviði gæða- og stjórnkerfi upplýsingaöryggis, áhættustjórnun og gerð verkferla.
• Góð hæfni í samskiptum og skipulögð nálgun.
• Álagsþol og ögun í vinnubrögðum.
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl 2021.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is