Fréttablaðið - 20.03.2021, Blaðsíða 49
Söluráðgjafi glugga-
og hurðalausna
Um er að ræða spennandi starf fyrir
einstakling sem hefur áhuga á að takast
á við krefjandi verkefni. Sala á glugga-
og hurðalausnum er vaxandi hluti af
umsvifum fagsölusviðs Húsasmiðjunnar.
Viðskiptastjóri á
fagsölusviði
Um er að ræða spennandi starf fyrir
einstakling sem hefur áhuga á að
takast á við krefjandi verkefni í sölu á
byggingarlausnum til stærstu verktaka
landsins.
Verkefnastjóri
umhverfis- og
samfélagsmála
Vegna aukinna verkefna tengt umhverfis-
málum óskar Húsasmiðjan eftir að ráða
kraftmikinn aðila í spennandi og krefjandi
starf á sviði umhverfismála og fagsölu.
Við leitum að metnaðarfullum og söludrifnum einstaklingum til þess að bætast í hóp öflugra
starfsmanna Fagmannaverslunar. Við leggjum ríka áherslu á jákvætt hugarfar og að vinna saman
að því alla daga að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina.
Við hvetjum alla áhugasama til þess að sækja um, óháð kyni.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ráðgjöf, sala og þjónusta við viðskiptavini
• Tilboðsgerð og öflun viðskipta
• Samskipti við erlenda birgja
• Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi, tækni- eða
iðnmenntun æskileg
• Reynsla af sölustörfum kostur
• Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum
samskiptum
• Gott vald á íslensku og ensku
• Almenn tölvukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ráðgjöf, sala og þjónusta við stærstu
viðskiptavini félagsins
• Afla og viðhalda tengslum við verktaka
og aðra fagaðila
• Tilboðsgerð og öflun viðskipta
• Samskipti við innlenda og erlenda birgja
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun s.s. tækni- eða iðnmenntun eða
reynsla sem nýtist í starfi er nauðsynleg
• Þekking á byggingamarkaðnum er skilyrði
• Reynsla af sölustörfum kostur
• Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum
samskiptum
• Gott vald á íslensku og ensku
• Almenn tölvukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
• Stefnumörkun, verkefnastýring og
eftirfylgni
• Ráðgjöf, sala og fræðsla til viðskiptavina
ásamt innri fræðslu um umhverfismál og
þátttaka í gerð tilboðsgagna
• Skjölun og ábyrgð á samskiptum við
hagsmunaaðila og þjónustuaðila tengt
umverfismálum
• Eftirfylgni markmiða og árangursmælingar
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi eða
reynsla af skyldum verkefnum
• Þekking á umhverfisstöðlum s.s. ISO 140001
og á vistvottunarferlum s.s. BREEAM og
Svansvottun
• Brennandi áhugi á umhverfismálum og
byggingamarkaði
• Frumkvæði og rík hæfni til samskipta og
samvinnu
• Þekking og reynsla af mótun og framfylgd
stefnu er kostur
• Skipulögð vinnubrögð og reynsla af
verkefnastjórnun er kostur
• Mjög góð færni í tjáningu í ræðu og riti
• Góð íslensku- og enskukunnátta er krafa
og góð dönskukunnátta er kostur
Vilt þú vera með okkur í liði?
Spennandi störf í glæsilegri
Fagmannaverslun Húsasmiðjunnar
í Kjalarvogi
Nánari upplýsingar um störfin gefur
Kenneth Breiðfjörð, framkvæmdastjóri
fagsölusviðs á kb@husa.is.
Umsóknarfrestur er til 7. apríl 2021
Sótt er um á ráðningarvef Húsasmiðjunnar
www.husa.is/laus-storf
Gildin okkar eru:
Áreiðanleiki
Þjónustulund
Þekking
Húsasmiðjan býður upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum mikla áherslu á
símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi. Starfsmannafélag
Húsasmiðjunnar er öflugt og stendur fyrir fjölbreyttum og skemmtilegum uppákomum yfir árið.