Fréttablaðið - 20.03.2021, Page 68
Þetta hefur verið mark-miðið síðan ég byrjaði að tefla. Ég ætlaði alltaf að verða stórmeistari. Það munaði mjög litlu fyrir sex árum, einu
sandkorni eða svo. Fyrir vikið
þurfti ég að sýna þolinmæði og
halda áfram, sumir vilja meina að
ég sé þrjóskur,“ segir Guðmundur
Kjartansson, nýjasti stórmeistari
Íslands í skák.
Guðmundur komst í fimmtán
manna hóp íslenskra stórmeistara
um síðustu helgi með því að vinna
aðra skák sína í einvígi við Hjörvar
Stein Grétarsson stórmeistara í
undanúrslitum Íslandsbikarsins.
Guðmundur fékk ekki mikinn tíma
til að fagna þessum tímamótum en
daginn eftir var bráðabani þar sem
Hjörvar hafði betur. Guðmundur
gat þó huggað sig við stórmeistara-
titilinn.
„Maður er enn þá að meðtaka
þetta. Ég vissi að það myndi lík-
legast duga að vinna eina skák gegn
Hjörvari en var lítið að spá í þetta
og vissi í raun ekki að mér myndi
duga sigur í seinni skákinni. Um
kvöldið fékk ég staðfestingu, 27
árum eftir að þetta fór á markmiða-
listann, að þetta væri í höfn. Ég er
samt ekki kominn á topp fjallsins.
Að mínu mati er ég kominn á syllu
en stefnan er sett enn hærra. Þessi
nafnbót ætti að færa mér boð á
sterkari mót og möguleikann á að
einblína meira á skákina.“
Undanfarin ár hefur Guð-
mundur oft verið nálægt stór-
meistaratitlinum.
„Fyrir sex árum er ég hárs-
breidd frá þessu. Það
vantaði 0,1 ELO-stig til
að ná stórmeistaratitl-
inum. Þá tapa ég fyrir
einum af bestu skák-
mönnum heims og við
tekur slæmt gengi. Það
reyndist ekki í síðasta
skiptið sem ég var hárs-
br eidd f r á þ e s s u m
áfanga. Ég fann það á
mér að þetta myndi koma
einn daginn, en var farinn
að klikka fulloft á síðustu
hindruninni. Síðasta haust
tef ldi ég við Helga Áss
Grétarsson stórmeist-
ara, þar sem sigur hefði
dugað mér til að verða
stórmeistari. Ég var
með allt í mínu horni
þegar skammt var
eftir, en klúðraði því.
Það er í raun ótrúlegt
að í skákinni gegn
ÞESSI NAFNBÓT ÆTTI AÐ
FÆRA MÉR BOÐ Á STERK-
ARI MÓT OG MÖGU-
LEIKANN Á AÐ EINBLÍNA
MEIRA Á SKÁKINA.
Er ekki kominn
á topp fjallsins
Fimmtándi og
nýjasti stórmeistari
Íslands í skák, Guð-
mundur Kjartansson,
þurfti að sýna þolin-
mæði og þrautseigju,
enda liðu rúm ellefu
ár frá fyrsta stór-
meistaraáfanganum
að stórmeistaratitl-
inum. Átta mánaða
dvöl við að tefla
í Suður-Ameríku
hafði mikil áhrif á
líf hans og segist
hann hafa upplifað
ómetanlega tíma á
ferðalögum sínum.
MÍN UPPLIFUN ER AÐ
ÞETTA SÉ KEPPNISGREIN
OG ÍÞRÓTT SEM REYNIR
BÆÐI Á LÍKAMLEGA OG
ANDLEGA. Í SKÁK ÞARFTU
AÐ HALDA EINBEITINGU,
EF ÞÚ MISSIR FÓKUS Í EINA
SEKÚNDU GETURÐU MISST
LEIKINN ÚR HÖNDUM ÞÉR.
Kristinn Páll
Teitsson
kristinnpall@frettabladid.is
Hjörvari gerði ég mistök í byrjun
en vann samt skákina,“ segir Guð-
mundur, sem fór fögrum orðum
um keppinauta sína.
„Ég hef mikið unnið með Helga
frá því að hann kom aftur árið
2018. Hann vildi hjálpa mér í þessu
og ég er mjög þakklátur honum,
rétt eins og öðrum sem hafa komið
að þessu ferli, eins og Hannesi Hlíf-
ari og Hjörvari Steini.“
Skák er íþrótt
Guðmundur hefur tef lt fyrir hönd
Taf lfélags Reykjavíkur frá sex ára
aldri og fór snemma að skara fram
úr. Eftir menntaskóla tók hann
sér eins árs frí til þess að einbeita
sér að skákinni og náði í kjöl-
farið fyrsta stórmeistaraáfang-
anum árið 2009. Hann hætti
síðar í háskólanámi sínu til að
elta stórmeistaratitilinn. Guð-
mundur segist rekja skák-
áhugann til eldri bróður
síns sem kynnti íþrótt-
ina fyrir honum.
„Ólafur, eldri bróðir
minn, kynnti mér íþrótt-
ina og kenndi mér mann-
ganginn. Hann kom mér í
Skákskóla Íslands þar sem
ég lærði meðal annars af
Helga Ólafssyni stór-
meistara. Ólafur borgaði
það með launum sem hann
fékk með því að bera út blöð,
þannig að hann á stóran hlut
í þessu. Svo eiga fjölskylda
og vinir stóran þátt í þessu
ferli og ég er sérstaklega
þakk látur foreldrum
mínum sem hafa alltaf
stutt við bakið á mér.“
Um árabil hefur
verið deilt um hvort
skák sé íþrótt, en
hún reynir helst á
hugann.
„Fyrir mér er skák alveg klárlega
íþrótt, sama hvað aðrir segja,“ segir
Guðmundur hlæjandi. „Mín upp-
lifun er að þetta sé keppnisgrein og
íþrótt sem reynir bæði á líkamlega
og andlega. Í skák þarftu að halda
einbeitingu, ef þú missir fókus í
eina sekúndu geturðu misst leik-
inn úr höndum þér. Fyrir vikið hef
ég reynt að leggja áherslu á andlegu
hliðina og hugleiðslu. Það er mikil-
vægt að geta hreinsað hugann og
vera í góðu andlegu jafnvægi. Ég
hef iðkað Sahaja Yoga-hugleiðslu
undanfarin sex ár og hún hefur
hjálpað mér gríðarlega.“
Átta mánuðir í
Suður-Ameríku
Eftir að hafa hætt í háskólanámi
ferðaðist Guðmundur víða í von
um að ná markmiði sínu. Átta
mánaða dvöl í Suður-Ameríku
reyndist eftirminnileg.
„Árið 2012 hætti ég í námi
og fer til Suður-Ameríku
að tefla. Það var ótrúleg
lífsreynsla og tímabil
sem hefur haft mikil áhrif
á mitt líf. Fyrsta ferðin var
átta mánuðir en ferðirnar
eru orðnar f leiri. Lengst
af dvaldi ég í Ekvador en
fór oft að tef la í næstu
löndum.“
Guðmundur hefur oft tef lt
í borgum sem hafa hættu-
legan stimpil á sér, á borð
við Medellín í Kólumbíu.
Undirrituðum lék forvitni
á að vita hvort Guðmund-
ur hefði lent í háska-
legum aðstæðum, en
hann segir kynni sín af
heimamönnum yfir-
leitt hafa komið í veg
fyrir slíkt.
„Maður sér ýmis-
legt í fréttum og hefur
ákveðna hugmynd um þessi svæði,
en ég lærði það að hvert sem maður
fer kynnist maður yfirleitt yndis-
legu fólki. Það eru hættur þar, eins
og alls staðar annars staðar en ég var
yfirleitt í góðum höndum og reyndi
um leið að sýna skynsemi. Auðvitað
komu upp aðstæður þar sem maður
vissi að hættan væri ekkert endilega
langt undan, í hættulegum hverfum
þar sem slæmir hlutir hafa gerst, en
ég slapp vel.“
Á sama tíma hefur Guðmundi
tekist að sjá marga fallega staði í
Karíbahafinu.
„Það er oft hægt að skipuleggja
frídaga í kringum mótin. Eftir mót
í El Salvador nýtti ég tækifærið til
að fara í stutt frí og skoðaði meðal
annars kóralrifið í Blue Hole í Belís.
Það er ein af eftirminnilegustu
minningunum frá öllum þessum
ferðalögum.“
Spurður hvort hann eigi sér uppá-
haldsskák segir Guðmundur þær
vera nokkrar.
„Það eru nokkrar skákir sem eru
minnisstæðar. Árið 2009 á alþjóð-
legu móti í Skotlandi vann ég tvo
indverska stórmeistara í röð og náði
fyrsta stórmeistaraáfanganum, það
var eitt skemmtilegasta mót sem ég
hef tekið þátt í, en ég var þar með
vini mínum Aroni Inga og hressum
hópi skoskra vina, sem ég tel að hafi
átt þátt í árangrinum. Svo er ofar-
lega á lista skák í El Salvador árið
2014, gegn einum sterkasta skák-
manni Suður-Ameríku og þegar ég
fór fyrir Íslands hönd á Evrópu- og
Ólympíumótum,“ segir Guðmund-
ur, sem hefur einnig lent í skringi-
legum aðstæðum.
„Það var í móti í Indlandi, ég er í
miðri skák og tek þá eftir tveimur
öpum að slást fyrir utan gluggann,
svona tvo metra í burtu. Þar missti
ég einbeitinguna og skákina úr
höndum mínum, en heimamenn
kipptu sér ekkert upp við þetta.“
Ómetanleg reynsla og þekking
Það er óhætt að segja að Guðmund-
ur hafi fengið að kynnast ýmsu á
ferðalögum sínum í tengslum við
stórmeistaratitilinn.
„Ég held að þetta hafi skilað heil-
miklu. Um leið og ég hef fengið að
kynnast ótrúlegu fólki hef ég fengið
að sjá heiminn. Það er algjörlega
ómetanlegt.“
Honum hefur tekist að bæta
tungumálakunnáttuna á ferða-
lögum sínum, meðal annars í rúss-
nesku, spænsku og portúgölsku og
vinnur í dag sem túlkur.
„Á ferðalögunum í Suður-Amer-
íku tókst mér að læra spænsku
og einhverja portúgölsku. Svo
nýtti ég ferðir í rússneskar
skákbúðir í St. Pétursborg
til að læra rússnesku. Frí-
tímann reyni ég að nýta til
þess. Ég fékk þennan tungu-
málaáhuga fyrir nokkrum
árum, en var áður ekkert
framúrskarandi í þeim
málum í skóla.“
Auk þess kennir Guð-
mundur ungum krökkum
skák í afrekshóp Taf lfélags
Reykjavíkur.
„Ég er mjög heppinn í starfi
þar sem ég fæ að vinna með
skemmtilegum hópi. Þau
fengu mig til að lofa því
að ég myndi baka köku
ef ég yrði stórmeistari.
Ég er meira í elda-
mennsku en bakstri
en við göldrum eitt-
hvað fram,“ segir Guð-
mundur kankvís.
Guðmundur hefur iðkað hugleiðsu síðustu ár sem hjálpar honum að hreinsa hugann milli skáka. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 0 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð