Fréttablaðið - 20.03.2021, Síða 90
Lífið í
vikunni
14.03.21-
20.03.21
VIÐFANGSEFNI
MYNDARINNAR
HLJÓMAR MJÖG ÁTAKANLEGT,
SEM ÞAÐ ER, EN MYNDIN ER SVO
FALLEG. ÞETTA ER MYND UM
SORG, EN SORGIN GETUR SAMT
VERIÐ SVO FALLEG.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Styður við bakið á þér!
Sealy er annar stærsti
dýnuframleiðandi í
heimi og hefur verið
starfandi í 140 ár.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Amerískir dagar
Sealy WASHINGTON
heilsurúm með classic botni
Virkilega vönduð dýna og hentar fólki á öllum aldri.
Washington heilsudýnan er með einstaklega vönduðu tvöföldu
pokagormakerfi, kantstyrkingum og vandaðri og þægilegri yfir-
dýnu Gormakerfinu er skipt upp eftir svæðum þannig að það er
með meiri stuðning þar sem við erum þyngri eins og öxlum og
mjöðmum. Lítil sem engin hreyfing finnst milli rekkjunauta.
Yfirdýnan (topperinn) er samsett úr fjórum lögum og þar á
meðal er gel lag (gel infused memory foam) sem lagast algjör-
lega að líkamanum og heldur honum í réttri stellingu alla nóttina.
Áklæðið utan um dýnuna er silki og bómullarblanda sem andar
einstaklega vel sem og gefur extra mýkt. Millistíf dýna.
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á Classic botni.
20%
AFSLÁTTUR
Amerískir
DAGAR
Verðdæmi: 160 x 200 cm m/Classic
botni – Fullt verð: 264.900 kr.
Aðeins
211.920 kr.
Verðdæmi: 180 x 200 cm m/Classic
botni – Fullt verð: 279.900 kr.
Aðeins
223.920 kr.
HEFUR FARIÐ NÍU SINNUM
Á EUROVISION
FÁSES er Félag áhugafólks um
Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva.
Ritari félagsins,
Laufey Helga,
hefur mikla trú á
lagi Daða, 10
years og vonast
til að komast
á keppnina í
Rotterdam í ár.
Hún hefur farið
á keppnina níu
sinnum áður.
LINDA MYNDAÐI KEILI
Árið 2017 byrjaði hönnuðurinn
Linda Guðrún Karlsdóttir að
mynda Keili. Þegar hún hugðist
loks selja verkin fór allt að nötra
og nú njóta myndir Lindu þess
að allra augu hvíla á Keili. Hún
segir því fjallið sjálft hafa nokkurn
veginn séð um auglýsingaher-
ferðina fyrir sig.
ÞURFTI AÐ FLÝJA LOS
ANGELES
Lára Elíasdóttir
er flutt aftur
heim til Íslands
eftir ellefu ár
í Los Angeles.
Hún upplifði
mikla hræðslu
meðan á óeirðum stóð í borginni.
Hún hefur samið lög fyrir aðra
síðustu árin og stórstjörnur á borð
við Christinu Aguilera og Demi
Lovato hafa sýnt lögunum áhuga.
Hún stjórnar karókí-kvöldum á
Miami alla fimmtudaga.
VIRKJAÐI KRAFTINN
Dögg Mósesdóttir var í fæð-
ingarorlofi þegar hún ákvað að
gera heimildarmynd um heima-
fæðingar. Hún virkjaði kraftinn
sem oft er sagt að konur finni
eftir fæðingu og byrjaði á verki
sem leiddi hana í ó væntar áttir.
Það tók átta ár að ljúka við gerð
myndarinnar Aftur heim?
Fegurðin í sorginni
fundin með tónlist
Heimildarmyndin Er ást, eftir Kristínu A ndreu Þórðar-dóttur, fjallar um á s t a r s a m b a n d listafólksins Hel-
enu Jónsdóttur og Þorvaldar Þor-
steinssonar og hvernig Helena tekst
á við lífið og listsköpunina eftir frá-
fall Þorvaldar árið 2013. Myndin var
frumsýnd á Skjaldborgarhátíðinni
í Bíó Paradís síðasta haust þar sem
hún hlaut Einarinn, áhorfenda-
verðlaun hátíðarinnar. Almennar
sýningar myndarinnar hefjast í
dag og standa yfir næstu daga. Gerð
myndarinnar stóð yfir í fimm ár og
fékk Kristín Andrea Úlf Eldjárn til
að semja tónlistina við myndina.
„Ég hef gert aðeins af kvikmynda-
tónlist. Þetta var mjög fallegt og
skemmtilegt verkefni. Ég er á fullu
að hvetja fólk sem þorir að fara í bíó
að fara á þessa mynd. Hún kemur
einhvern veginn fallega við hjartað
í manni,“ segir Úlfur.
Var mörgum innblástur
Hann segir myndina einstaka og
einlæga.
„Viðfangsef ni my ndar innar
hljómar mjög átakanlegt, sem það
er, en myndin er svo falleg. Þetta er
mynd um sorg, en sorgin getur samt
verið svo falleg. Myndin er í raun
ekki heimildarmynd um hann, né
hana beinlínis. Hún fjallar um hvað
gerist eftir að hann deyr. Eyðan sem
hann skilur eftir sig og hvernig Hel-
ena tekst á við það. Þetta hljómar
kannski frekar þungt, en að mörgu
leyti er þetta mjög inspírerandi
mynd og það var það sem ég upp-
lifði þegar ég var að semja tónlist-
ina,“ segir hann.
Úlfur kynntist Þorvaldi lítillega
þar sem þeir unnu verkefni saman.
„Hann hefur síðan þá verið á
ákveðnum stalli í mínum huga. Það
sama má segja um marga vini mína
og konuna mína. Það voru margir
sem lærðu hjá honum og það er oft
talað um að hann hafi haft áhrif
á marga, svona á bak við tjöldin.
Myndin fjallar um þeirra samband,
þau voru listamenn af lífi og sál.“
Með skarpa sýn
Úlfur segir að Kristín Andrea hafi
verið með skarpa sýn á það hvernig
tónlistin ætti að vera.
„Henni var annt um þetta verk-
efni. Hún er vinkona Helenu og í
raun þeirra beggja. Fyrir henni var
þetta því mjög persónulegt og við-
kvæmt mál. Þetta var mjög merki-
legt ferli þar sem við höfðum mjög
stuttan tíma, eins og kemur oft fyrir.
Ég hafði innan við mánuð, sem er
frekar lítið. Á móti kemur að hún
var með mjög skýra sýn á það sem
hún vildi.“
Sýnin var sú að tónlistinni væri
ekki ætlað að gefa of dramatískan
eða væminn undirtón.
„Það er merkileg stúdía í því.
Þegar við vorum komin af stað þá
föttuðum við að það varð samt ein-
hvern veginn stundum að leyfa sér
að fara smá í þann gír. Eða allavega
tilfinningarnar, fyrst að hún var að
opna sig svona fyrir myndavélinni.
Stundum þarf maður bara að fara
þangað. En við vorum frekar að gera
það í þeim tilgangi að sjá fegurðina
í sorginni og vonina. Enda fjallar
myndin ekki síður um þá gleði, ást
og hamingju sem þau áttu saman.
Sorgin felur nefnilega í sér svo
margar ólíkar tilfinningar,“ segir
hann.
Gagnvirk upplifun
Undanfarið hefur Úlfur unnið að
tónlist fyrir verkefnið Reykjavík
GPS.
„Það verk er í raun alltaf í gangi og
virkar þannig að þú getur hlustað á
það í snjallsímanum þínum. Þetta er
tónverk sem breytist eftir því hvar
þú ert staðsettur í miðbænum. Upp-
lifunin á heiminum breytist mikið
eftir því hvernig tónlist þú setur
undir hana. Ég er að koma þessu
út og vinn verkefnið með bróður
mínum Halldóri, sem forritar. Hann
hefur góða reynslu, þar sem hann er
bæði forritari og tónlistarmaður,“
segir hann.
Er ást fer í sýningu í dag í Bíó Para-
dís og tónlistina úr myndinni er
hægt að finna á Spotify. Gagnvirka
tónlistarupplifun Úlfs og Halldórs
er hægt að finna á rvkgps.com.
steingerdur@frettabladid.is
Heimildarmyndin Er ást er komin í sýningu, en hún fjallar um sam-
band Helenu Jónsdóttur og Þorvaldar Þorsteinssonar og hvernig
Helena tekst á við sorgina eftir fráfall Þorvaldar. Myndinni er leik-
stýrt af Kristínu Andreu sem fékk Úlf Eldjárn til að semja tónlistina.
Úlfur er jafnt og þétt að gefa út tónlist í tengslum við verkefnið Reykjavík
GPS, sem hann vinnur að með bróður sínum Halldóri. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 0 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð