Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2020, Síða 82
ÖRVIÐTAL
Nafn, fornafn, aldur
Ástrós Erla, hún, 29 ára.
Hvenær fórstu fyrst í
gleðigöngu?
Það var í raun ekki fyrr en
ég stofnaði Hinsegin Ladies
Night í byrjun árs 2019
að ég tengdist hinsegin
samfélaginu almennilega
hér á Íslandi og byrjaði að
vera þátttakandi í hinsegin
málefnum og þar af leiðandi
gleðigöngunni.
Hefur þú farið í gleðigöngu
annars staðar en á Íslandi?
Já, í Barcelona og Madrid
2018. Það var í rauninni
alveg óplanað, við löbbuðum
nokkurn veginn inn á pride
í Barcelona í fríi sem ég var
í. Síðar í ferðinni tókum við
ákvörðun að keyra upp til
Madrid og þá var pride að
byrja þar.
Hver er þín
uppáhaldsminning tengd
Gleðigöngunni og hvaða ár
var það?
Að taka þátt í gleðigöngunni
í fyrra er mín fyrsta og besta
minning. Þetta var í raun
mikil skyndiákvörðun þar
sem við fengum margar
óskir um að koma fram sem
hópur á Hinsegin Ladies
Night viðburðinum sem við
héldum á Hinsegin dögum í
fyrra en það var 3–4 dögum
fyrir gönguna. Ég ákvað að
gera mitt besta og allavega
reyna að koma okkur inn í
gönguna, sem jú gekk allt
eins og í sögu.
Hvers vegna gengur þú?
Til að vekja athygli á
málefnum hinsegin fólks.
Sýnileiki og umræður eru
aðalatriði að mínu mati.
Gleðigangan er einn stór og
mikilvægur partur í að koma
þessum fallega og fjölbreytta
hópi á framfæri svo allir
geti lifað við sömu kjör og
lífsgæði.
Eftirtaldir
ráðherrar styðja
Hinsegin daga
2020:
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og
auðlindaráðherra
Hýrar þakkir fyrir stuðninginn!