Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 4

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 4
Náttúrufræðingurinn 4 Vorblóm á Íslandi Gróa Valgerður Ingimundardóttir, Kesara Anamthawat-Jónsson og Hörður Kristinsson Vorblóm (Draba L.) eru áberandi í flóru norðurskautslanda, með um 360 tegundir á heimsvísu sem flestar er að finna á norðurslóðum eða í fjalllendi. Menn hafa lengi átt í erfiðleikum með að ákvarða tegundir innan ættkvíslarinnar enda er hún mjög flókin frá flokkunarfræðilegu sjónarhorni. Hér á landi hafa helst Draba alpina L., D. nivalis Liljebl., D. fladnizensis Wulf., D. lactea Adams, D. norvegica Gunn., D. daurica DC., D. cinerea Adams og D. incana L. talist tilheyra flóru landsins. Í grein þessari eru teknar saman upplýsingar um og lýsingar á þeim tegundum vorblóma sem við teljum sannað að finnist í flóru Íslands miðað við fyrirliggjandi gögn. Við verk okkar notuðum við gagnagrunn og háplöntusafn Náttúrufræðistofnunar Íslands, fjölda heimilda auk athugana á plöntunum á vettvangi og í ræktun. Niðurstaðan var að hér væru eftirtaldar átta tegundir: Draba oxycarpa, D. nivalis, D. lactea, D. norvegica, D. glabella, D. arctogena, D. incana og D. verna. D. arctogena er ný fyrir Ísland, D. glabella er áður getið undir D. daurica og D. verna hafði áður verið skráð Erophila verna. Tegundin D. alpina hefur nýlega verið klofin í tvennt og fellur íslenska fjallavorblómið undir D. oxycarpa. Þótt ekki hafi tekist að staðfesta tilvist D. alpina, D. fladnizensis og D. cinerea er ekki útilokað að nánari athuganir geti síðar leitt annað í ljós. 1. mynd. Fjallavorblóm (Draba oxycarpa). Ljósm./Photo: Hörður Kristinsson. Ritrýnd grein Náttúrufræðingurinn 77 (1–2), bls. 4–14, 2008

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.