Náttúrufræðingurinn - 2009, Qupperneq 9
9
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Líkist: Verður helst ruglað við D.
norvegica og mögulega D. incana en
stjörnuhár á stofnblöðum einkenna
D. glabella.24
Kjörlendi: Einkum í grösugu
mólendi og hlíðum, utan í grónum
bökkum eða giljum, stundum undir
víðirunnum eða lágvöxnu kjarri. Frá
láglendi og upp í 1.160 m y.s.
Útbreiðsla: Finnst allt umhverfis
norðurskautið. Í Ameríku frá Wyo-
ming í Bandaríkjunum og norður
eftir öllu Alaska, og er útbreiddasta
vorblómategundin í Kanada.24 Í
Evrópu frá 61° í Noregi og norð-
ur eftir, m.a. til Svalbarða.21,24,37 Á
Íslandi á Norðurlandi, Vestfjörðum,
miðhálendinu og Austurlandi (2.
mynd f).
Litningatala: Draba glabella hefur
verið greind sem 2n ~ 64 í Alaska,43
sem áttlitna (2n = 8x = 64) og tílitna
(2n = 10x = 80) í Kanada,24 D. daurica
sem áttlitna (2n = 64) í Noregi og
Svalbarða,44 D. hirta L. hefur verið
greind með 2n = 64 á Íslandi8 og
sem bæði áttlitna (2n = 64) og tílitna
(2n = 80) í norðanverðri Asíu.36,45
Eins og fyrr var nefnt eru öll þessi
heiti talin eiga við eina og sömu
tegundina, D. glabella, en mögulega
hefur verið um aðra tegund að ræða
þar sem 2n = 80 hefur komið fram.
7. Grávorblóm (Draba incana L.)
Samnefni: Draba thomasii W.D.J.
Koch, D. bernensis Moritzi og D.
stylaris J. Gay ex W.D.J. Koch.21
Lýsing: Tví- til fjölær. Hæð 15–25
cm. Blóm hvít. Blöð í stofnhvirf-
ingu, tennt, gráloðin. Stöngull oft-
ast nokkuð hár, stundum greindur,
gráloðinn, sérlega mikið af löngum
einföldum hárum á og við blóm-
leggi. Stöngulblöð mörg (>5). Skálp-
ar oft snúnir. Fræ brún. (7. mynd).
Kjörlendi: Mólendi, melar, flög,
vegkantar og beitt graslendi. Lág-
lendistegund sem finnst þó allt
upp í 960 m y.s.
Útbreiðsla: Finnst á norðlægum
svæðum og norðurskautssvæð-
um beggja vegna Atlantshafsins.
Í Evrópu frá Pýreneafjöllum til
austanverðra Alpanna og norður
eftir, m.a. til Íslands og Noregs;
5. mynd. Heiðavorblóm (Draba arctogena). Ljósm./Photo: Gróa Valgerður Ingimundardóttir.
6. mynd. Túnvorblóm (Draba glabella). Ljósm./Photo: Hörður Kristinsson.