Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 56

Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 56
Náttúrufræðingurinn 56 átti sér stað vorið 2001. Sex mítlar fundust í feldi þessa hunds og voru tveir þeirra sendir til greiningar að Keldum. Voru þar í báðum til- vikum fullorðin kvendýr á ferðinni (3. mynd). Annað þeirra verpti hundr- uðum eggja fljótlega eftir komuna að Keldum en kvendýrin verpa allt upp í 7200 eggjum.1 Hinn hund- urinn kom til landsins í apríl 1998, líka frá Bandaríkjunum. Á honum fundust þrír mítlar. Einn þeirra var sendur að Keldum til greiningar og reyndist það vera fullorðinn kvenmítill. Báðir hundarnir voru meðhöndlaðir og smitið upprætt. Ameríski hundamítillinn Í byrjun júní 2004 fannst 4,5 mm langur blóðsjúgandi mítill í hárs- verði húsfreyju á sveitaheimili á Vesturlandi og var mítillinn sendur að Keldum til greiningar. Þarna var á ferðinni Dermacentor variabilis, mítill sem er algengur á hundum í Norður-Ameríku og gengur yfir- leitt undir nafninu ameríski hunda- mítill (5. mynd). Um var að ræða fullorðið kvendýr. Þegar það fannst og var fjarlægt hafði mítill- inn náð að sjúga nokkuð af blóði. Full af blóði eru kvendýrin samt margfalt stærri, allt að 13 mm löng og 10 mm breið.2 Ameríski hundamítillinn hefur ekki áður verið staðfestur á Íslandi eftir því sem best er vitað. Líklegt er að mítillinn hafi borist til landsins í föggum heimafólks á bænum, sem hafði vikuna áður verið á tjaldferðalagi í Wisconsin í Bandaríkjunum. Lífsferill hundamítla Báðar tegundirnar hafa áþekkan þriggja hýsla lífsferil.1,2 Egg mítl- anna eru dökkbrún að lit og kúlu- laga. Lirfurnar sem úr þeim klekjast eru um hálfur millimetri að lengd og þekkjast á því að þær eru ein- ungis með þrjú fótapör. Lirfa þarf að sjúga blóð til að geta haft ham- skipti og þroskast í gyðlu (nymph) sem er næsta þroskastigið í lífs- ferlinum. Gyðlur eru með fjögur fótapör og líkjast fullorðinsstiginu í útliti, nema hvað þær eru smá- vaxnari (1,1–1,3 mm langar). Eins og lirfurnar þurfa gyðlurnar einnig að sjúga blóð til að geta skipt um ham og þroskast í fullorðna, sérkynja mítla sem makast í feldi hundanna. Karldýrin verða ekki nema 2–3 mm löng og er stærð þeirra svipuð kvendýrunum, áður en þau sjúga blóð og þenjast út (1. mynd). Þegar kvendýrin hafa náð að fylla sig og eru orðin um 12 mm löng, láta þau sig falla til jarðar, ýmist ofan í bæli hundsins eða þar sem gengið er með hunda eða þeim sleppt lausum. Stuttu síðar verpa kvendýrin þúsundum eggja. Það tekur nokkra daga og drepast þau að varpinu loknu. Lífsferill brúna hundamítilsins krefst hitastigs sem er yfir 20°C. Best þrífst hann þar sem hitinn er milli 20 og 30°C og loftraki mik- ill. Vegna þess að lirfur og gyðlur tegundarinnar þroskast eðlilega á hundablóði einu saman, fjölgar teg- undin sér auðveldlega inni í upp- hituðum húsum og viðhelst þar sem einungis einn hundur er til staðar. Skemmst tekur lífsferill-inn um tvo mánuði en dýrið getur lifað í 3–5 mánuði á hverju þroska-stigi án þess að fá næringu.1 Lífs-ferill ameríska hundamítilsins fer aft- ur á móti fram við mun kaldari aðstæður utanhúss og tekur yfir- leitt mun lengri tíma, jafnvel 2–3 ár. Iðulega þrífast lirfur og gyðlur þessarar tegundar á villtum nag- dýrum. Þótt fullorðinsstigið sé al- gengast á hundum, getur það einnig þrifist á mörgum öðrum tegund- um spendýra.2 Verum á varðbergi Blóðsjúgandi mítlar nota greini- lega ólíkar leiðir til að viðhalda útbreiðslu sinni og til þess að dreifa sér til nýrra staða. Eitt af tilfellunum fjórum þar sem hunda- mítlar bárust til landsins með öðru móti en að halda til í feldi hýsilsins, leiddi til tímabundins landnáms brúna hundamítilsins hér á landi. Rétt viðbrögð dýra- lækna og heilbrigðisyfirvalda náðu að hindra frekari útbreiðslu og uppræta óværuna. Líklegt er að svipað hefði getað gerst hefði staki kvenmítillinn sem hingað barst frá Flórída verið búinn að makast og fengið að lifa áfram óáreittur á hundinum. Hér er sleppt umfjöllun um sjúkdómsvalda sem blóðsjúgandi mítlar geta stundum borið milli hryggdýra, þar með talið sjúkdóms- valda sem geta lagst á fólk. Slíkt kallar á sérstaka umfjöllun. Rétt er samt að benda á að skráðar eru 16 tegundir sjúkdómsvalda (veirur, bakteríur og sníkjudýr) sem stað- fest hefur verið að brúni hunda- mítillinn getur borið.1 Það er því að nokkru að keppa að hindra land- nám blóðsjúgandi mítla hér á landi. 5. mynd. Fullorðið kvendýr ameríska hunda- mítilsins Dermacentor variabilis. Dýrið er 4,5 mm langt og hafði náð að sjúga nokkuð af mannablóði, áður en það fannst. Mítillinn er talinn hafa borist til land- sins með viðlegubúnaði frá Wisconsin í Bandaríkjunum. – An adult American dog tick Dermacentor variabilis female prob- ably brought to Iceland with camping lug- gage from Wisconsin, USA. Ljósm./Photo: Karl Skírnisson.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.