Náttúrufræðingurinn - 2009, Page 8
Náttúrufræðingurinn
8
4. Hagavorblóm
(Draba norvegica Gunn.)
Samnefni: Draba rupestris R.Br.21,24
og D. rupestris Ait.f.23
Lýsing: Fjölær. Hæð 5–15 cm.
Blóm hvít, krónublöð 2–4 mm á
lengd. Blöð ýmist í þéttum eða
gisnum stofnhvirfingum, oftast
með bæði greinótt og einföld hár,
stundum nær hárlaus. Stöngull
með stuttar greinar, með einföld
hár eða hárlaus. Stöngulblöð oft-
ast 1–3. Skálpar á svo gott sem
uppréttum leggjum, hárlausir eða
með stuttum, einföldum hárum.
Fræ brún.
Kjörlendi: Breytileg tegund
sem finnst á ólíkum búsvæðum,
lyngmóum, grasbölum, brekkum,
rindum og melum, allt frá láglendi
og upp í 1.520 m y.s.
Útbreiðsla: Finnst á norður-
skautssvæðinu og norðlægum
slóðum beggja vegna Atlantshafs-
ins. Í Evrópu suður til Skotlands
og norðaustanverðra Alpanna, í
Ameríku frá Minnesota í Banda-
ríkjunum og norður eftir til South-
hamptoneyju norðan í Hudson-
flóa og til Norðvestursvæðanna í
Kanada.21,24,37 Hérlendis er tegund-
ina að finna um nær allt land (2.
mynd d).
Litningatala: Sexlitna (2n = 6x
= 48) í Kanada,24 Íslandi,8 Noregi,
Svalbarða,38,39 Finnmörku28 og
Grænlandi.39
5. Heiðavorblóm (Draba arctogena
(E. Ekman) E. Ekman)
Samnefni: Draba groenlandica var.
arctogena E. Ekman.40
Lýsing: Fjölær. Hæð 3–10 cm.
Blóm hvít, krónublöð 2–4 mm á
lengd. Blöð í stofnhvirfingu, heil-
rend; blaðjaðrar með einföldum og
greindum hárum og jafnvel stjör-
nuhárum; neðra og stundum efra
borð með nokkuð af greindum og
stjörnulaga hárum auk einfaldra
hára sem eru í minnihluta. Blóm-
leggir og stöngull hærðir, mest
áberandi eru kvíslgreind hár og
stjörnuhár. Stöngulblöð 0–1. Skálpar
oftast breiðastir um miðjuna, til-
tölulega þétt saman á blómskipun-
inni, hærðir, hárin flest kvíslgreind
en einnig einföld og jafnvel stjörnu-
laga. Fræ brún. (5. mynd).
Líkist: Verður helst ruglað
saman við D. norvegica, einkum ef
um hávaxin eintök af D. arctogena
er að ræða. Fjöldi stöngulblaða,
heilrend stofnblöð og skálpar með
kvíslgreindum hárum og jafnvel
stjörnuhárum eru góð einkenni til
aðgreiningar.
Kjörlendi: Melar, skriður og
klettar. Helst að finna á hálendinu
allt upp í 1.400 m y.s. en finnst einnig
á láglendi.
Útbreiðsla: Grænland,34 Jan
Mayen, Bjarnarey, Svalbarði23 og
nokkuð víða á hálendi Íslands (2.
mynd e).
Litningatala: Sexlitna (2n = 6x =
48) í Rússlandi.36,41
6. Túnvorblóm (Draba glabella
Pursh)
Samnefni: Draba daurica DC., D.
hirta auct. non L., D. hirta L. nom
ambig.21,23,42 og D. magellanica auct.
non Lam.21
Lýsing: Fjölær. Hæð 15–20 cm.
Blóm hvít, krónublöð 3–5 mm á
lengd. Blöð í gisinni stofnhvirfingu,
stundum áberandi græn, stöngul-
blöð 1–4. Blöð og stönglar með
stjörnuhár, oft einnig með einföld
hár, þó ekki gráloðin. Fræ brún. (6.
mynd).
4. mynd. Snoðvorblóm (Draba lactea). Ljósm./Photo: Hörður Kristinsson.