Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 19

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 19
 VIÐTAL gekk svo gjörsamlega á vegg. Ótrúlegt að upplifa þetta.“ Hvað kom þér til hjálpar? „Konan mín gerði sér grein fyrir hve illa ég var á mig kominn. Hún gekk í málið, fór beinlínis með mig á Heilsugæslu Suðurnesja í Keflavík. Þar fékk ég viðtal við góðan lækni sem lagði til að ég myndi sækja um þjónustu hjá VIRK. Ég samþykkti það og hann sótti um fyrir mig. Mér leið þó áfram mjög illa og fannst dálítið erfiður tíminn þar til ég fékk samþykki fyrir þjónustu hjá VIRK. Samt tók það aðeins tvo mánuði. Þá var ég orðinn svo illa á mig kominn að ég gat engan veginn komið nálægt starfinu hjá fyrirtækinu. Ég hafði reyndar selt töluvert í því þegar þarna var komið sögu. Ég talaði því við meðeigendur mína sem sýndu líðan minni skilning. Eigi að síður sótti kvíðinn að mér sem aldrei fyrr. Ég hafði lengi átt erfitt með að sofa, vakti á nóttunni og fann fyrir vaxandi spennu. Ég forðaðist eftir megni að svara í síma og átti í mestu erfiðleikum með að svara tölvupósti. Ég einangraði mig líka æ meira. Loks kom sem sagt að því að ég gafst upp. Ég hafði vakað alla nóttina og lá bara í rúminu algjörlega búinn að vera. Það var í febrúar 2019 sem erfiðleikarnir urðu mér óyfirstíganlegir. Þess skal þó getið að vetrarmyrkrið átti ekki neinn þátt í vanlíðan minni né heldur hafði ég þjáðst af neinni geðröskun fram til þess að kulnunin heltók mig.“ Var kominn með sjálfsvígshugsanir Hvernig stóðu fjármálin og einkalífið á þessum tíma? „Vel. Ég var ágætlega settur í einkalífi og fármálin voru líka í góðu lagi, bæði hjá mér sjálfum og fyrirtækinu. En þótt konan mín og börnin styddu mig og sýndu ástandi mínu skilning og hlýju var ég samt kominn með sjálfsvígshugsanir þegar ég fór í þjónustu hjá VIRK vorið 2019. Mér fannst sem ég myndi aldrei geta unnið neitt framar. Þetta var svakalegt tímabil. Líklega bjargaði fjöl- skyldan hreinlega lífi mínu þegar verst horfði. Við hjónin eigum fjögur börn og ellefu barnabörn sem gerðu sitt til að gleðja mig. Jákvætt var líka að í upphafi fékk ég greitt veikindaleyfi hjá fyrirtækinu, síðan kom stéttarfélagið til skjalanna og í lok þjónustu- tímabilsins hjá VIRK var ég kominn með endurhæfingarlífeyri. Ráðgjafi VIRK reyndist frábærlega Strax þegar ég komst í þjónustu hjá VIRK ákvað ég með sjálfum mér að neyta allra úrræða til þess að að ná mér á strik á ný. Ráðgjafi VIRK hjá mínu stéttarfélagi reyndist mér frábærlega. Við mótuðum saman áætlun. Ég hóf þegar meðferð hjá sálfræðingi og áttaði mig til fulls á að áfengi var ekki leið til slökunar. Ég hætti því að fá mér í glas en fór í staðinn að stunda hugleiðslu, jóga og fór í heilsurækt. Það var gríðarlega erfitt að stíga fyrstu skrefin og ég vildi í fyrstu sjálfur reyna að vinda ofan af hinu slæma ástandi án lyfja. Smám saman tók ég þó að átta mig á að lyf gætu hjálpað. Ég gæti þannig fyrr losnað við streituna og kvíðann. Í framhaldi af þessari niðurstöðu fór ég á heilsugæslustöðina í Keflavík þar sem læknirinn minn ávísaði mér kvíðastillandi lyfi. Ég var þá enn þannig stemmdur að ég sat bara út í horni og ef einhver hringdi bjöllunni gat ég varla farið til dyra. Ég var sannarlega gjörsamlega búinn á því þegar ég komst í þjónustu hjá VIRK.“ Var líklega lengi í afneitun Áttir þú erfitt með að lýsa ástandi þínu þegar verst var? „Líklega var ég nokkuð lengi í afneitun. En þegar ég fór til læknisins og síðan til VIRK tókst mér að tala af hreinskilni um líðan mína. Þrátt fyrir að ég væri á þeim tíma lokaður inn í eigin ruglingslegum heimi. Ég stríddi við ólýsanlegan kvíða vegna fyrirtæki- sins. Mér fannst ég ekki gera skyldu mína. Síðast en ekki síst dró ég ekki undan sjálfs- vígshugsanirnar sem ásóttu mig. Vafalaust þess vegna var tekið fast á málum. Það var ekki fyrr en síðla árs 2019 sem ég fór að sjá til sólar. Úrræðin sem ég og ráðgjafinn settum stefnuna á voru fyrst og fremst sálfræðiþjónusta, heilsurækt, hugleiðsla og jóga. Hugleiðslan hjálpaði mér heilmikið, ég tók að róast og í framhaldinu að hugsa minn gang. Hægt og bítandi byggði ég þannig upp andlega og líkamlega heilsu.“ Ákvað að leita á nýjar slóðir Hvenær fannst þér tímabært að hefja vinnu á ný? „Ég stefndi á að fara aftur til starfa hjá fyrirtækinu mínu í upphafi árs 2020. En við þá tilhugsun eina versnaði mér aftur og kvíðinn tók að sækja á mig á ný. Fljótlega varð því ljóst að sú fyrirætlun að fara aftur til vinnu í fyrirtækinu myndi ekki ganga. Ég hélt áfram í þjónustunni hjá VIRK og þremur mánuðum síðar tók ég ákvörðun um að selja það sem ég átti eftir í fyrirtækinu og leita á aðrar slóðir. Annað var bara ekki í boði.“ Hvert stefndir þú á atvinnumarkaði eftir sölu fyrirtækisins? „Ég ákvað að sækja um afleysingavinnu hjá Sorpeyðingarstöð Suðurnesja í Keflavík um sumarið og fékk hana. Ekki var um að ræða möguleika á að byrja í hálfu starfi. Ég varð að kasta mér út í djúpu laugina, ef svo má segja, fara í hundrað prósent starf seinnipartinn í maí 2020. Það voru mikil viðbrigði en það hjálpaði mér mikið að ég þekkti staðinn og samstarfsfólkið og kunni til verka. Mér jókst sjálfstraust, fékk aftur trú á sjálfan mig.“ Aldrei liðið eins vel og nú Hvað kom til að þú ákvaðst að flytja búferlum, kaupa hús í Reykholti í Borgarfirði? „Í markþjálfun sem ég sótti á vegum VIRK var eitt þeirra markmiða sem ég setti mér að flytja á friðsælan stað. Þann draum höfðum við hjónin lengi átt. Við ókum jafnan framhjá Reykholti á leiðinni í sumarbústaðinn okkar í Fljótstungulandi og smám saman mótaðist sú hugmynd að þar væri eftirsóknarvert að búa. Þegar okkur stóð svo til boða að kaupa hús í Reykholti slógum við til. Við höfðum engu að tapa. Ég sæki nú þaðan vinnu í sorpeyðingarstöðina í Keflavík viku í senn og held þá til í hjólhýsi. Þetta er ekki löng leið að keyra – flutningurinn í Reykholt er ein besta ákvörðun sem við höfum tekið hjónin.“ Ertu búinn að ná fullri heilsu? „Mér hefur aldrei liðið eins vel á ævinni eins og nú. Ýmislegt hefur þó breyst, ég er ekki eins mannblendinn og ég var, einbeitingin er ekki alveg komin, ég les minna og horfi minna á sjónvarp í frítímum. Áður hafði ég áhuga á ljósmyndun en sinni því lítt nú. Ég á því eitt og annað óunnið ennþá. Ég var kominn á þann myrka stað að hugsa um að taka eigið líf. Allt sem fyrir mig var gert hjá VIRK kom mér til heilsu og vinnu á ný. VIRK var mitt björgunarskip.“ Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir Mynd: Lárus Karl Ingason 19virk.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.