Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 57

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 57
 VIRK tæknin var til staðar lærðu allir að nýta fjarfundabúnað til samskipta, hvort sem um var að ræða einstaklinga í þjónustu, þjónustuaðila, ráðgjafa og/eða starfsfólk VIRK. Staðúrræðum var umbylt yfir í fjar- úrræði þar sem því var við komið. Einstaklingsviðtöl fóru fram með fjarfundabúnaði eða á staðnum og ýmis hreyfitengd úrræði fóru fram utandyra eða heima í stofu hjá fólki þegar líkamsræktarstöðvum var lokað. Einstaklingar fengu áfram þá þjónustu sem þeir þurftu á að halda þótt með breyttu sniði væri. Einhver úrræði féllu þó niður eða hófust síðar en ráð var fyrir gert vegna lokana í samfélaginu, en reynt var að bregðast við slíku og setja úrræðin af stað um leið og vilyrði fékkst til þess. Sérfræðingar VIRK settu inn fróðleik og ráð á erfiðum tímum á forvarnarvefinn Velvirk. Má þar nefna tengla á námstengd úrræði, efni tengt hreyfingu og útivist á tímum sóttvarna o.fl. gagnlegt fyrir einstaklinga og vinnuveitendur. Þjónustuaðilar voru einnig hvattir til þess að nýta þessi verkfæri í vinnu sinni með einstaklingum. Má þar nefna ýmsar bakslagsvarnir og úrræði sem þróuð voru í ljósi aðstæðna. Það sem stendur upp úr nú þegar sér fyrir endann á faraldrinum eru skjót viðbrögð þjónustuaðila sem sýndu mikla seiglu og fagmennsku í að aðlaga starfsemi sína að þeim veruleika sem blasti við í þjóðfélaginu. Skapandi og lausnamiðuð hugsun hefur leitt af sér fjölda nýrra og endurbættra úrræða og t.d. hefur framboð á fjarúrræðum aukist mikið. Vonandi er sú þróun komin til að vera, þar sem fjarúrræði nýtast fólki í starfsendurhæfingu alls staðar á landinu og því má segja að heimsfaraldurinn hafi verið nýttur til nýsköpunar úrræða í starfsendurhæfingu hjá VIRK. Yfir 500 þjónustuaðilar á landsvísu VIRK átti í samstarfi við fjölda þjónustuaðila á landsvísu á árinu 2020. Kaup á úrræðum jukust á árinu og námu þau 1540 milljónum króna eins og sjá má á mynd 1. Myndin sýnir þróun útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu á föstu verðlagi. Í árslok 2020 voru rúmlega 500 þjónustuaðilar um allt land með virkar pantanir í upplýsingakerfi VIRK Á mynd 2 má sjá skiptingu útgjalda milli mismunandi tegunda þjónustu á árinu 2020. Kostnaður vegna sálfræðiþjónustu og sjúkraþjálfunar hélst svipaður milli ára og kostnaður vegna sérhæfðrar starfsendurhæfingarþjónustu dróst saman um 1%. Kostnaður vegna náms og námskeiða dróst saman um 2% og einnig varð 3% samdráttur í heilsutengdum úrræðum enda voru líkamsræktarstöðvar lokaðar um tíma. Atvinnutengd úrræði drógust líka saman, markþjálfun stóð í stað og aukning var í öðrum úrræðum eins og ráðgjöf og þjónustu. Þá bættist við nýr flokkur, sjálfsefling, en úrræði úr öðrum flokkum voru færð í þennan flokk og skýrir það m.a. samdrátt í öðrum flokkum. Þjónustuaðilar VIRK Tæplega 150 sálfræðingar veittu sálfræðiþjónustu hjá VIRK á árinu 2020. Sálfræðingar veita einstaklingum með geðrænan og streitutengdan vanda einstaklingsviðtöl og hópmeðferðir sem byggja á gagnreyndum aðferðum. Búið er að þrepaskipta þjónustu sálfræðinga eftir eðli vanda einstaklinga og mælst er til þess að sálfræðingar styðjist við klínískar leiðbeiningar í meðferð. Sálfræðingar auk fleiri fagstétta bjóða auk þess upp á fjölda úrræða á sviði sjálfseflingar. Þróun útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu frá fagaðilum um allt land á árunum 2010-2020 1.600 1.400 1.200 1.000 800 600 400 200 0 Útgjöld á ári í millj. kr. 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 Mynd 1 Sálfræðiþjónusta Sjálfsefling Sjúkraþjálfun Sérhæfð starfsendurhæfingar- úrræði Nám og námskeið Heilsuefling / líkamsrækt Atvinnutengd úrræði Markþjálfun Önnur úrræði Mynd 2 Hlutfallsleg skipting útgjalda á árinu 2020 vegna aðkeyptrar þjónustu frá þjónustuaðilum 23% 6% 6% 2% 1% 1%1% 2% 58% 57virk.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.