Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 79

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 79
 VIRK BEIÐNI fulltrúar VIRK og viðkomandi félagsþjónustu hittast og fara yfir einstök máli og samstarfið í heild sinni. Slíkt samstarf hefur m.a. átt sér stað við félagsþjónustuna í Reykjavík, á Akur- eyri, í Árborg og í Reykjanesbæ, t.d. eru nú til staðar tengiliðir við VIRK á flestum þjónustu- miðstöðvum í Reykjavík. Tryggingastofnun ríkisins Mikið samstarf er milli ráðgjafa VIRK og sér- fræðinga TR vegna endurhæfingaráætlana og endurhæfingarlífeyris einstaklinga í þjón- ustu VIRK. Auk þess þá eiga fulltrúar VIRK og TR öðru hvoru samráðsfundi þar sem Geðheilsuteymi Verið er að byggja upp samstarf við geðheilsu- teymin víða um land. Fundað var með geð- heilsuteymi austur, vestur og suður í upphafi árs 2021 og ákveðnir fagaðilar hjá VIRK hafa tekið að sér að funda reglulega með geðheilsuteymum á höfuðborgarsvæðinu. Fulltrúi geðheilsuteymis Suðurlands kemur ætíð inná samráðsfundi VIRK og félags- þjónustu Árborgar. Ráðgjafar VIRK á Austur- landi funda einu sinni í mánuði með geð- heilsuteymi Austurlands. Tekið hefur verið upp samstarf við Geðheilsuteymi fangelsanna og munu tilteknir sérfræðingar hjá VIRK sjá um að halda því samstarfi gangandi. Reykjalundur og Kristnes Ráðgjafar VIRK eru alltaf öðru hvoru í samstarfi við fagaðila á Reykjalundi vegna þjónustu við einstaklinga. Auk þess hefur verið til staðar formlegur samstarfsvettvangur milli VIRK og Reykjalundar þar sem sérfræðingar frá VIRK hafa fundað með fagaðilum á Reykjalundi um samstarfið. Rætt hefur verið um formlegt samstarf milli VIRK og Reykjalundar um mat á þörf ein- staklinga sem glíma við alvarleg einkenni eftir að hafa fengið Covid19 til að tryggja viðeigandi endurhæfingu hverju sinni. Búið er að skipa tengiliði frá báðum stofnunum inn í þetta samstarf. Ráðgjafar VIRK á Norðurlandi eru í góðu samstarfi við fagfólk á Kristnesi vegna einstaklinga í þjónustu. Geðsvið Landspítala Öflugt samstarf og samráð er á milli ráðgjafa VIRK, sérfræðinga VIRK og fagaðila ýmissa starfseininga Geðsviðs Landspítala. Á Geð- endurhæfingardeildum Klepps, Hvíta- bandinu, Teigi (meðferðareining fyrir einstaklinga með fíknivanda), Átröskunar- teyminu, Áfallateyminu, ÞOK-teyminu og Bráðamóttöku geðsviðs eru reglulegir sam- ráðsfundir og/eða beint samráð tengiliða frá VIRK og tengiliða einstaka starfseininga Geðsviðs. Samráðið hefur það að markmiði að greiða götu einstaklinga á milli kerfa, tryggja að einstaklingar fái rétta þjónustu á réttum stað og bæta samfellu í meðferð/endurhæfingu og starfsendurhæfingu einstaklinga. Grensás Á samráðsfundum VIRK, Grensásdeildar og Reykjalundar er farið yfir mál einstaklinga í starfsendurhæfingu og metið út frá hverju máli hvaða þjónusta sé viðeigandi á þeim tímapunkti með áherslu á að skapa samfellu í endurhæfingarferlinu. Vegna Covid19 faraldurs hafa þessir fundir legið niðri og gerðar ákveðnar breytingar á samstarfinu. Sérfræðingur hjá VIRK hefur því verið tengiliður við yfirlækni Grensásdeildar. Auk þess hefur verið verið óformlegt sam- starf milli heilaskaðateymis göngudeildar Grensáss og tengiliðs hjá VIRK í tengslum við einstaklinga sem hafa farið í gegnum farið er yfir ýmis mál í samstarfinu með það í huga að bæta það og tryggja gott vinnuferli og upplýsingaflæði. Vinnumálastofnun Mikið samstarf er milli ráðgjafa VIRK og Vinnumálastofnunar vegna þjónustuþega VIRK. Auk þess funda fulltrúar VIRK og VMST til að ræða almennt um samstarfið. Tveir ráðgjafar hjá VIRK eru sérstakir tengiliðir við Vinnumálastofnun. Það hlutverk felur m.a. í sér að nálgast gagnlegar upplýsingar hjá VMST og miðla til ráðgjafa og starfsmanna VIRK. Ráðgjafar á landsbyggðinni eru einnig oftast í mjög góðu samstarfi við fulltrúa Vinnumálastofnunar á svæðinu. Sérfræðingar hjá VIRK hafa síðan tekið þátt í ýmsum samstarfs- og þróunarverkefnum hjá Vinnumálastofnun m.a. Evrópuverkefninu „Youth in transition“ þar sem unnið var m.a. að því að finna betri leiðir til þjónustu fyrir ungt fólk í vanda. heilaskaðamat, endurhæfingu á Grensás og í kjölfarið verið sótt um starfsendurhæfingu hjá VIRK. Þraut Ráðgjafar VIRK hafa átt samskipti við Þraut vegna starfsendurhæfingar þjónustuþega. Ákveðnir tengiliðir hafa verið skipaðir hjá báðum stofnunum og VIRK fær nokkur pláss til greiningar hjá Þraut þegar teymi VIRK telja að einstaklingur ætti að byrja í Þraut áður en til starfsendurhæfingar kemur, út frá beiðni og mögulega mati. Þeir sem eru að útskrifast frá Þraut fá forgang inn í VIRK ef talin er þörf á starfs- endurhæfingu í framhaldinu, til að skapa samfellu í endurhæfingu. Þegar einstaklingur sækir um hjá VIRK og Þraut samtímis þá ræða tengiliðir saman og finna hagstæða niðurstöðu. 79virk.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.