Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Page 79
VIRK
BEIÐNI
fulltrúar VIRK og viðkomandi félagsþjónustu
hittast og fara yfir einstök máli og samstarfið
í heild sinni. Slíkt samstarf hefur m.a. átt sér
stað við félagsþjónustuna í Reykjavík, á Akur-
eyri, í Árborg og í Reykjanesbæ, t.d. eru nú til
staðar tengiliðir við VIRK á flestum þjónustu-
miðstöðvum í Reykjavík.
Tryggingastofnun ríkisins
Mikið samstarf er milli ráðgjafa VIRK og sér-
fræðinga TR vegna endurhæfingaráætlana
og endurhæfingarlífeyris einstaklinga í þjón-
ustu VIRK. Auk þess þá eiga fulltrúar VIRK
og TR öðru hvoru samráðsfundi þar sem
Geðheilsuteymi
Verið er að byggja upp samstarf við geðheilsu-
teymin víða um land. Fundað var með geð-
heilsuteymi austur, vestur og suður í upphafi
árs 2021 og ákveðnir fagaðilar hjá VIRK
hafa tekið að sér að funda reglulega með
geðheilsuteymum á höfuðborgarsvæðinu.
Fulltrúi geðheilsuteymis Suðurlands kemur
ætíð inná samráðsfundi VIRK og félags-
þjónustu Árborgar. Ráðgjafar VIRK á Austur-
landi funda einu sinni í mánuði með geð-
heilsuteymi Austurlands. Tekið hefur verið upp
samstarf við Geðheilsuteymi fangelsanna og
munu tilteknir sérfræðingar hjá VIRK sjá um
að halda því samstarfi gangandi.
Reykjalundur og Kristnes
Ráðgjafar VIRK eru alltaf öðru hvoru í samstarfi
við fagaðila á Reykjalundi vegna þjónustu við
einstaklinga. Auk þess hefur verið til staðar
formlegur samstarfsvettvangur milli VIRK og
Reykjalundar þar sem sérfræðingar frá VIRK
hafa fundað með fagaðilum á Reykjalundi
um samstarfið.
Rætt hefur verið um formlegt samstarf milli
VIRK og Reykjalundar um mat á þörf ein-
staklinga sem glíma við alvarleg einkenni
eftir að hafa fengið Covid19 til að tryggja
viðeigandi endurhæfingu hverju sinni. Búið
er að skipa tengiliði frá báðum stofnunum
inn í þetta samstarf.
Ráðgjafar VIRK á Norðurlandi eru í góðu
samstarfi við fagfólk á Kristnesi vegna
einstaklinga í þjónustu.
Geðsvið Landspítala
Öflugt samstarf og samráð er á milli ráðgjafa
VIRK, sérfræðinga VIRK og fagaðila ýmissa
starfseininga Geðsviðs Landspítala. Á Geð-
endurhæfingardeildum Klepps, Hvíta-
bandinu, Teigi (meðferðareining fyrir
einstaklinga með fíknivanda), Átröskunar-
teyminu, Áfallateyminu, ÞOK-teyminu og
Bráðamóttöku geðsviðs eru reglulegir sam-
ráðsfundir og/eða beint samráð tengiliða
frá VIRK og tengiliða einstaka starfseininga
Geðsviðs.
Samráðið hefur það að markmiði að greiða
götu einstaklinga á milli kerfa, tryggja að
einstaklingar fái rétta þjónustu á réttum stað
og bæta samfellu í meðferð/endurhæfingu og
starfsendurhæfingu einstaklinga.
Grensás
Á samráðsfundum VIRK, Grensásdeildar og
Reykjalundar er farið yfir mál einstaklinga
í starfsendurhæfingu og metið út frá hverju
máli hvaða þjónusta sé viðeigandi á þeim
tímapunkti með áherslu á að skapa samfellu
í endurhæfingarferlinu. Vegna Covid19
faraldurs hafa þessir fundir legið niðri og
gerðar ákveðnar breytingar á samstarfinu.
Sérfræðingur hjá VIRK hefur því verið
tengiliður við yfirlækni Grensásdeildar.
Auk þess hefur verið verið óformlegt sam-
starf milli heilaskaðateymis göngudeildar
Grensáss og tengiliðs hjá VIRK í tengslum
við einstaklinga sem hafa farið í gegnum
farið er yfir ýmis mál í samstarfinu með það í
huga að bæta það og tryggja gott vinnuferli og
upplýsingaflæði.
Vinnumálastofnun
Mikið samstarf er milli ráðgjafa VIRK og
Vinnumálastofnunar vegna þjónustuþega
VIRK. Auk þess funda fulltrúar VIRK og
VMST til að ræða almennt um samstarfið.
Tveir ráðgjafar hjá VIRK eru sérstakir tengiliðir
við Vinnumálastofnun. Það hlutverk felur
m.a. í sér að nálgast gagnlegar upplýsingar
hjá VMST og miðla til ráðgjafa og starfsmanna
VIRK. Ráðgjafar á landsbyggðinni eru einnig
oftast í mjög góðu samstarfi við fulltrúa
Vinnumálastofnunar á svæðinu.
Sérfræðingar hjá VIRK hafa síðan tekið þátt í
ýmsum samstarfs- og þróunarverkefnum hjá
Vinnumálastofnun m.a. Evrópuverkefninu
„Youth in transition“ þar sem unnið var m.a.
að því að finna betri leiðir til þjónustu fyrir
ungt fólk í vanda.
heilaskaðamat, endurhæfingu á Grensás og
í kjölfarið verið sótt um starfsendurhæfingu
hjá VIRK.
Þraut
Ráðgjafar VIRK hafa átt samskipti við Þraut
vegna starfsendurhæfingar þjónustuþega.
Ákveðnir tengiliðir hafa verið skipaðir hjá
báðum stofnunum og VIRK fær nokkur pláss
til greiningar hjá Þraut þegar teymi VIRK telja
að einstaklingur ætti að byrja í Þraut áður en
til starfsendurhæfingar kemur, út frá beiðni
og mögulega mati.
Þeir sem eru að útskrifast frá Þraut fá
forgang inn í VIRK ef talin er þörf á starfs-
endurhæfingu í framhaldinu, til að skapa
samfellu í endurhæfingu. Þegar einstaklingur
sækir um hjá VIRK og Þraut samtímis þá
ræða tengiliðir saman og finna hagstæða
niðurstöðu.
79virk.is