Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 51

Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Blaðsíða 51
 VIÐTAL löngu veikindaleyfi. Við vorum í sameiningu að undirbúa hvernig það ætti að fara fram. Það var verulega gaman að heyra hann lýsa því hvernig úrræðin sem hann var í hjá VIRK höfðu veitt honum styrk á ný sem manneskju. Og hvernig hann sá fyrir sér að hann gæti nýtt reynslu sína til að styrkja sitt fólk á vinnustaðnum. Þarna sá ég kristallast hvað þessi úrræði og stuðningur sem VIRK býður upp á skiptir gríðarlega miklu máli varðandi endurkomu til vinnu.“ Reynum að koma til móts við fólk eftir bestu getu Hvað er það helst sem þjáir ykkar fólk sem þarf á starfsendurhæfingu VIRK að halda? „Ástæðurnar eru margvíslegar sem liggja þar að að baki. Allt frá afleiðingum alvarlegra sjúkdóma á borð við krabbamein og til álagseinkenna af ýmsu tagi, kulnunar eða geðheilsuvanda.“ Þegar starfsfólk kemur aftur til starfa úr þjónustu hjá VIRK býðst því þá að koma fyrst í hlutastarf? „Við metum hvert og eitt tilvik fyrir sig í samráði við einstaklinginn sem um ræðir og trúnaðarlækni okkar. Stundum kemur fólk aftur í lægra starfshlutfall eftir að við höfum metið möguleikana á að slíkt sé gerlegt. Það fer eftir samspili aðstæðna hvort þetta er hægt – svo sem heilsu einstaklingsins, eðli starfs sem hann gegnir, aðstæðum á vinnustaðnum og fleiru. Við þurfum að taka tillit til ólíkra aðstæðna hverju sinni. Við gerum allt sem við getum til að koma til móts við fólk og fá það til baka. Það er hins vegar ekki í ákvæðum kjara- samnings réttur til endurkomu á vinnustað í hlutastarf. Hins vegar er heimildarákvæði til að hæfa það inn aftur. Það ákvæði nýtum við þegar unnt er. Stundum er viðkomandi enn í þjónustu hjá VIRK. Þá reynum við að hafa sem mesta samfellu í úrræðum þar og kringumstæðum á vinnustaðnum. Almennt gengur þetta vel, viðkomandi hefur unnið vel í sínum málum og kemur sterkari til baka með góð verkfæri til að nýta sér jafnt í starfi sem í einkalífi.“ Hvenær hófst þetta samstarf milli Póstsins og VIRK? „Það hefur staðið í nokkuð mörg ár. Ég hef verið mannauðsstjóri hjá Póstinum í þrjú ár en ég þekkti vel til starfsemi VIRK áður. Ég kynntist þeim góðu úrræðum sem þar bjóðast strax þegar VIRK var komið á laggirnar, þá var ég mannauðsstjóri í Mosfellsbæ. Á þeim vettvangi fór fram farsælt samstarf við VIRK. Reyndar hef ég ákveðnar skoðanir á því hvernig mætti bæta enn samstarfið við VIRK hvað varðar endurhæfingu starfsfólks sem fær þar þjónustu. Nú er vinnustaðnum haldið utan við allt sem viðkemur endurhæfingunni en þannig var það ekki áður. Þá var samráð milli einstaklingsins, VIRK, trúnaðarlæknis og vinnuveitanda. Mín ósk er sú að VIRK hafi meira samráð við vinnuveitanda varðandi endurhæfingu starfsfólks. Við vildum gjarnan eiga meiri möguleika á að eiga samráð varðandi endurhæfinguna og undirbúning endur- komu til starfa. Á þann hátt held ég að hægt væri að ná enn betri árangri í endurhæfingu og stytt tímann sem viðkomandi er frá vinnu. Þannig myndi þjónusta VIRK ná hæstu hæðum að mínu mati.“ Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir Mynd: Lárus Karl Ingason Almennt gengur þetta vel, viðkomandi hefur unnið vel í sínum málum og kemur sterkari til baka með góð verkfæri til að nýta sér jafnt í starfi sem í einkalífi.“ 51virk.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Ársrit um starfsendurhæfingu

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit um starfsendurhæfingu
https://timarit.is/publication/1412

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.