Ársrit um starfsendurhæfingu - 2021, Síða 51
VIÐTAL
löngu veikindaleyfi. Við vorum í sameiningu
að undirbúa hvernig það ætti að fara fram.
Það var verulega gaman að heyra hann
lýsa því hvernig úrræðin sem hann var í
hjá VIRK höfðu veitt honum styrk á ný sem
manneskju. Og hvernig hann sá fyrir sér að
hann gæti nýtt reynslu sína til að styrkja sitt
fólk á vinnustaðnum. Þarna sá ég kristallast
hvað þessi úrræði og stuðningur sem VIRK
býður upp á skiptir gríðarlega miklu máli
varðandi endurkomu til vinnu.“
Reynum að koma til móts við
fólk eftir bestu getu
Hvað er það helst sem þjáir ykkar fólk
sem þarf á starfsendurhæfingu VIRK
að halda?
„Ástæðurnar eru margvíslegar sem
liggja þar að að baki. Allt frá afleiðingum
alvarlegra sjúkdóma á borð við krabbamein
og til álagseinkenna af ýmsu tagi, kulnunar
eða geðheilsuvanda.“
Þegar starfsfólk kemur aftur til starfa úr
þjónustu hjá VIRK býðst því þá að koma
fyrst í hlutastarf?
„Við metum hvert og eitt tilvik fyrir sig í
samráði við einstaklinginn sem um ræðir og
trúnaðarlækni okkar. Stundum kemur fólk
aftur í lægra starfshlutfall eftir að við höfum
metið möguleikana á að slíkt sé gerlegt.
Það fer eftir samspili aðstæðna hvort þetta
er hægt – svo sem heilsu einstaklingsins,
eðli starfs sem hann gegnir, aðstæðum
á vinnustaðnum og fleiru. Við þurfum að
taka tillit til ólíkra aðstæðna hverju sinni.
Við gerum allt sem við getum til að koma til
móts við fólk og fá það til baka.
Það er hins vegar ekki í ákvæðum kjara-
samnings réttur til endurkomu á vinnustað
í hlutastarf. Hins vegar er heimildarákvæði
til að hæfa það inn aftur. Það ákvæði nýtum
við þegar unnt er. Stundum er viðkomandi
enn í þjónustu hjá VIRK. Þá reynum við að
hafa sem mesta samfellu í úrræðum þar og
kringumstæðum á vinnustaðnum. Almennt
gengur þetta vel, viðkomandi hefur unnið
vel í sínum málum og kemur sterkari til
baka með góð verkfæri til að nýta sér jafnt í
starfi sem í einkalífi.“
Hvenær hófst þetta samstarf milli
Póstsins og VIRK?
„Það hefur staðið í nokkuð mörg ár. Ég
hef verið mannauðsstjóri hjá Póstinum í
þrjú ár en ég þekkti vel til starfsemi VIRK
áður. Ég kynntist þeim góðu úrræðum sem
þar bjóðast strax þegar VIRK var komið
á laggirnar, þá var ég mannauðsstjóri í
Mosfellsbæ. Á þeim vettvangi fór fram
farsælt samstarf við VIRK.
Reyndar hef ég ákveðnar skoðanir á því
hvernig mætti bæta enn samstarfið við
VIRK hvað varðar endurhæfingu starfsfólks
sem fær þar þjónustu. Nú er vinnustaðnum
haldið utan við allt sem viðkemur
endurhæfingunni en þannig var það ekki
áður. Þá var samráð milli einstaklingsins,
VIRK, trúnaðarlæknis og vinnuveitanda.
Mín ósk er sú að VIRK hafi meira samráð
við vinnuveitanda varðandi endurhæfingu
starfsfólks. Við vildum gjarnan eiga meiri
möguleika á að eiga samráð varðandi
endurhæfinguna og undirbúning endur-
komu til starfa. Á þann hátt held ég
að hægt væri að ná enn betri árangri
í endurhæfingu og stytt tímann sem
viðkomandi er frá vinnu. Þannig myndi
þjónusta VIRK ná hæstu hæðum að mínu
mati.“
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
Mynd: Lárus Karl Ingason
Almennt gengur
þetta vel, viðkomandi
hefur unnið vel í
sínum málum og
kemur sterkari
til baka með góð
verkfæri til að nýta
sér jafnt í starfi sem
í einkalífi.“
51virk.is